Heilsuvernd - 01.09.1959, Síða 8
70
HEILSUVERND
Ebba Waerland:
Mesti
heilsuvoðinn. -
Geislunareitrun
(Framhald).
Hvaða sjúkdómar eru það aðallega, sem aukin geisla-
virkni hefir í för með sér? Það eru starblinda, illlæknan-
legar ígerðir, einkum í munni og hálsi, skemmdir á háls-
eitlum, skjaldkirtli og eitlum víðsvegar um líkamann, svo
og á innkirtlum, á lifur og milti, ennfremur sár í maga
og þörmum, skemmdir á beinmerg, innvortis blæðingar
og sár, krabbamein og hvítblæði.
Konur eru 6 sinnum viðkvæmari en karlar fyrir þess-
um geislum, og börn ennþá viðkvæmari. Og allra viðkvæm-
ast er fóstrið í móðurkviði. Þessu er haldið fram af
prófessor Harries við frumeindarannsóknarstöðina í Oak-
land í Bandaríkjunum. f nýútkominni ritgerð eftir dr. Beck,
yfirlækni við barnasjúkrahúsið í Bayreuth, er frá því sagt,
að síðan 1950 hafi tala vanskapaðra barna í sjúkrahúsi
hans þrefaldast, og að auðvelt sé að sanna, að þessi aukn-
ing sé afleiðing af aukinni geislavirkni. Það hefir sem sagt
komið í ljós, að vansköpuð börn fæðast flest nokkrum
mánuðum eftir hverja kjarnasprengjutilraun.
Þýzki erfðafræðingurinn prófessor R. W. Kaplan, hefir
Iátið í Ijósi þá skoðun sína við þýzku kjarnorkunefndina,
að ef geislavirkni í umhverfi okkar yrði að staðaldri iielm-