Heilsuvernd - 01.09.1959, Blaðsíða 28
90
HEILSUVERND
lega sykur, hvítt hveiti og niðursuðuvörur, til þessara eyja,
eins og til annarra frumstæðra þjóða, í skiptum við fram-
leiðslu hinna innfæddu.
Dr. Price kom einnig til Hawai, en þar er lítið orðið eftir
af frumbyggjum.
Meöál Afríkuþjóða.
Árið 1935 heimsótti dr. Price um 30 kynflokka í Austur-
Afríku, allt frá miðbaug til Miðjarðarhafs. Hvarvetna
fann hann áberandi mun á hreysti og heilbrigði innfæddra
manna og innfluttra. Stafaði þessi munur bersýnilega ekki
af mismuni á þjóðerni, því að hinir innfæddu sýktust á
sama hátt og 'hvítir menn, er þeir tóku upp lifnaðarhætti
þeirra.
Hvítur spítalalæknir í Kenya skýrði svo frá, að í margra
ára starfi meðal innfæddra hafi hann varla séð botnlanga-
bólgu, gallsjúkdóma, blöðrubólgu eða magasár og mjög
sjaldan krabbamein.
Meðal 6 ættbálka fann dr. Price ekki eina einustu
skemmda tönn né skakka, og yfirleitt voru tannskemmdir
hverfandi litlar, nema hjá þeim, sem höfðu breytt matar-
æði sínu.
Fæði þessara þjóða er með ýmsu móti. Við sjó eða vötn
og ár borða menn mikið fiskmeti. Sumstaðar er kvikfjár-
rækt, og þar borða menn kjötmeti og mjólk. Aðrir stunda
dýraveiðar. Og allstaðar er grænmeti og aldin verulegur
þáttur í mataræðinu, svo og kornmatur. Sumir lifa ein-
vörðungu á jurtafæðu. Meðal annars eru borðaðar sætar
kartöflur, baunir, mais o. s. frv.
Sumstaðar drekka menn blóð úr lifandi nautum. Þeir
taka blóðið úr æð á hálsi nautsins, allt að 4 lítrum í senn.
Þeir hræra í blóðinu til að ná úr því trefjunum, sem þeir
steikja og eta, en blóðið drekka þeir hrátt. Þetta er endur-
tekið á mánaðar fresti, án þess skepnunum verði nokkuð
meint af. Sé þess nokkur kostur, fá börn daglega hrátt
blóð að drekka.