Heilsuvernd - 01.09.1959, Blaðsíða 32
94
HEILSUVERND
SAMBAND NORRÆNNA WAERLANDSFÉLAGA.
Hinn 31. jan. og 1. febr. 1959 komu saman í Stokkhólmi
fulltrúar frá waerlandsfélögum í Svíþjóð, Finnlandi, Nor-
egi og Danmörku. Félögin kenna sig ýmist við Waerland,
náttúrulækningar eða heilsuvernd, en markmið þeirra
allra er eitt og hið sama. Því miður var enginn fulltrúi frá
Islandi, og kom á þinginu fram ósk um, að það tæki síðar
þátt í þessari samvinnu. Sambandið hlaut heitið Allnord-
isJca förbundet for folkhálsa. Frú Ebba Waerland tók þátt
í störfum stofnþingsins, og var hún kjörin heiðursfélagi
sambandsins. Eitt af fyrstu verkefnum sambandsins mun
verða barátta gegn sælgætisáti barna og unglinga. Enn-
fremur verður unnið að auknum kynnum félagsmanna m.
a. með því að koma á víxlheimsóknum milli landanna.
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG REYKJAVÍKUR
hélt aðalfund fimmtudaginn 2. júlí 1959. Formaður,
Steinunn Magnúsdótir, flutti skýrslu um störf félagsins á
árinu 1958. Auk fundahalda stóð stjórn félagsins fyrir
matreiðslunámskeiði, og efnt var til grasaferðar. Félagar
eru nú 948, þar af 86 ævifélagar. Gjaldkerinn, Njáll Þór-
arinsson, las upp reikninga félagsins, sem voru samþykkt-
ir. Stjórn félagsins var endurkosin, en hana skipa: For-
maður er Steinunn Magnúsdóttir og meðstjórnendur Guð-
rún Árnadóttir, Klemens Þorleifsson, kennari, Njáll Þór-
arinsson, stórkaupmaður, og Svava Fells. Á fundinum voru
kosnir fulltrúar á næsta landsþing Náttúrulækningafélags
Islands. Samþykkt var áskorun á stjórn NLFl um að efna
til merkjasölu á afmælisdegi forseta NLFÍ, Jónasar læknis
Kristjánssonar, hinn 20. sept., til ágóða fyrir Heilsuhæli
NLFl, eins og gert var um margra ára skeið.