Heilsuvernd - 01.09.1959, Blaðsíða 25
HEILSUVERND
87
unz hann brýzt út í verri mynd en áður. Þessi ranga með-
ferð veikir náttúrulega varnarkrafta líkamans. Bezta ráðið
til varnar og lækningar telur hann hið forna heilræði
Hippókratesar, sem sagði: „Læknisdómur yðar skal vera
fæða yðar, og fæðan skal vera læknisdómur yðar“.
Hann bendir á náttblindu sem veigamikla orsök umferð-
arslysa. En náttblinda stafar af skorti A-fjörefnis, sem er
nauðsynlegt til að mynda hinn svokallaða sjónpurpura í
nethimnunni. A-fjörefni fá menn í lýsi, eggjarauðu, smjöri.
En það myndast líka úr karótínisem mikið er af í græn-
meti, svo sem gulrótum, tómötum og öllum grænum blöð-
um. En upptaka karótíns úr þörmum inn í blóðið gengur
bezt í sambandi við fitu, t. d. er salat er borðað með matar-
olíu eða gulrætur með smjöri.
Prófessor Halden leggur áherzlu á, að Bl-fjörefnið, sem
starfsemi heila og taugakerfis er svo mjög háð, er einnig
nauðsynlegt skilyrði fyrir því, að sykur og sterkja t. d.
úr mjölmat komi líkamanum að notum sem orkugjafi. Til
þess þarf einnig fosfórsýru. En bæði þessi efni, Bl-f jörefni og
fosfórsýru, er að finna í miklu magni í hýði og kími korn-
tegunda. Er því ákaflega mikilsvert að borða allt kornhýði,
enda eru í því mörg önnur verðmæt næringarefni, svo sem
fyrsta flokks eggjahvítuefni, járn og mangan, sem taka
þátt í myndun rauðu blóðkornanna, E-fjörefni og mörg
fjörefni úr B-flokkinum önnur en Bl.
Um C-fjörefni lætur próf. Halden þess getið, að auk
hinna alkunnu eiginleika þess fyrir búskap líkamans hafi
það einnig mikla þýðingu fyrir nýtingu eggjahvítu í líkam-
anum.
Þá lætur hann þess getið, að kalkrík fæða, svo sem
mjólkin, geti stuðlað að því að vernda líkamann gegn
tjóni af völdum geislavirkra efna. Strontium er eitt þeirra
geislavirku efna, sem myndast við kjarnasprengingar.
Það vill setjast í bein og valda skemmdum m. a. á merg og
blóði. Sé mikið borðað af kalkríkri fæðu, skilst nokkuð af
kalkinu út úr líkamanum og tekur þá með sér strontium.