Heilsuvernd - 01.09.1959, Page 24
86
HEILSUVERND
Viðtal við þýzkan vísindamann
Prófessor Wilhelm Halden er þekktur þýzkur vísinda-
maður á sviði lífefnafræði og næringarfræði. Árið 1929
kom út stór bók eftir hann og tvo starfsfélaga hans, og
fjallaði hún um rannsóknir á efnakljúfum (enzymum) og
fituefnum. Siðan hefir hann aðallega lagt stund á fjörefna-
rannsóknir og hefir komið sér upp rannsóknarstofu í Graz,
sem er önnur stærsta borg í Austurríki, en þar er hann
háskólakennari í næringarfræði. Eftir síðustu heimsstyrj-
öld varð hann einn af sérfræðingum heilbrigðisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (WHO) í næringarfræði og hefir þar
unnið sér góðan orðstír.
I sænska tímaritinu Hdlsa birtist nýlega (4. hefti 1959)
viðtal við prófessor Halden. Hann telur brýna nauðsyn
bera til að breyta sem allra fyrst mataræði almennings.
Ættu sjúkrahúsin að ríða á vaðið, og síðan ætti að vinna
að samskonar breytingum á matarvenjum í heimahúsum
og matsöluhúsum. Hann telur rétt fæði bezta ráðið til að
auka mótstöðuafl líkamans gegn sjúkdómum, og í því skyni
þurfi að auka neyzlu á mjólk og mjólkurafurðum, ósigtuð-
um kornmat, grænmeti, aldinum og hunangi, en draga að
sama skapi úr hvítu mjöli, sykri og kjöti. Prófessor Halden
borðar sjálfur kjöt og álítur litla kjötneyzlu ósaknæma.
Hinsvegar telur hann enga nauðsyn bera til að neyta kjöts
eða fisks, og hann kveðst bera fulla virðingu fyrir sjónar-
miði þeirra, sem borða ekki kjöt eða fisk af trúarlegum
eða siðferðislegum ástæðum.
Prófessorinn átelur hina geysilegu notkun lyfja, sem oft
geri illt verra. M. a. deyfa þau sársaukatilfinningu, sem er
eitt af náttúrulegum aðvörunarmerkjum líkamans, og í
skjóli þeirra heldur sjúkdómurinn áfram að grafa um sig,