Heilsuvernd - 01.12.1961, Page 21

Heilsuvernd - 01.12.1961, Page 21
Bjorn L. Jónxnon: Heilsulindir í Þýzkalandi Sé litið yfir kort af Evrópu, vekur það athygli, að i Þýzkalandi eru mörg borgarheiti kennd við ,,Bad“, sem þýðir bað. Má sem dæmi nefna Bad Pyrmont, Bad Kissing- en, Wiesbaden, Baden-Baden. Hér er ekki um að ræða venjulega baðstaði, baðstrendur við sjó eða völn. Á þessum stöðum eru baðstofnanir, lækningastofnanir, reistar við uppsprettur, heitar eða kaldar, sem taldar eru hafa sérstak- an læknismátt að geyma. Af slíkum iindum hafa menn bergt öldum saman sér til heilsubótar, og höfðu margar þeirra hlotið orðstir fyrir iækningamátt sinn, löngu áður en efna- samsetning vatnsins var rannsökuð eða læknar tóku að gefa þessu gaum. Þannig þóttu sumar þessar lindir gefast vel við nýrnabólgum og nýrnasteinum, aðrar fengu orð á sig fyrir að lækna gail- og lifrarsjúkdóma, enn aðrar gigt eða hjarlasjúkdóma o.s.frv. Á síðari árum hefir efnasamsetning og geislavirkni þess- ara iinda verið rannsökuð nákvannlega. Og læknar hafa reynt að sannprófa lækningamátt lindanna og komast á snoðir um, í hverju hann kynni að vera fólginn. Og hvað sem sönnunum líður í þessu efni, er það staðreynd, að fjöldi lækna sendir sjúklinga sína til þessara linda og nærliggjandi baðstaða, auk þess sem fólk þyrpist þang- að af sjálfsdáðum. Þarna dvelst fólk ýmist í gistihúsum eða sérstökum hælum, drekkur daglega af lindunum og gengur í böð og nudd i baðstofunum, sem ýmist eru reknar af bæ eða ríki, og sumar eru i einkaeign lækna. Briickenau (á íslenzku Brúará, af Brucke - brú og Au á, en síðai’a orðið hefir nú fengið víðari merkingu en áður og táknar nú ekki aðeins ána sjálfa, heldur gras- lendið beggja vegna) er lítill ba>r, með um 6 þús. íbúa, nyrst i Bayern í Þýzkalandi, um 30 km vestan „járntjalds-

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.