Heilsuvernd - 01.12.1961, Page 31
IIKILSUVKIINI)
119
öðru leyti er þelta hús fullgert og var tekið í notkun seint í
apríl 1960.
í júlí 1958 keypti félagið nýtt ibúðarhús, Þelamörk 66 í
Hveragerði; voru þau húskaup gerð vegna vöntunar á hús-
næði fyrir starfsfólk hælisins. Það var fyrirfram vitað, að
óhentugt væri að hafa starfsmannahús svo langt frá aðal-
byggingunni, og því var skömmu síðar ráðizl í áðurnefnda
byggingu á hælislóðinni, með það fyrir augum að selja hús-
ið Þelamörk 66, strax og hið nýja starfsmannahús væri til-
búið. Sala á því hefir þó ekki tekizt enn, en félaginu hins-
vegar nauðsynlegt að afsetja það, þegar færi gefst, og losa
það fé, sem í þvi er bundið.
Á þessu ári hefir verið hafizt handa um ræktun og
fegrun hælislóðarinnar og varið til þess nokkuð á annað
hundrað þúsund krónum. Stjórnin laldi þetta mjög aðkall-
andi og að ekki mætti dragast lengur að byrja á því, þrátt
fyrir fjárhagsörðugleika. Með þetta sjónarmið fyrir augum
ákvað stjórnin að gefa út nýjan flokk skuldabréfa og freista
á þann hátt að afla fjár til þessara framkvamida. Skulda-
bréfalánið er að upphæð kr. 500.000.00. Eru það 500 eitt
þúsund króna bréf með áföstum vaxtamiðum, bera 9(/<
vexti og eiga að dragast út á næstu 7 árum.
Á þessu ári hefir verið byggt geymsluhús, 70 fermelrar
að stærð, og gróðurhús um 300 fermetrar að stærð.
Læknaskipti urðu í heilsuhælinu haustið 1960. Úlfur
Ragnarsson lét af störfum eftir eigin ósk, en við tók Högni
Björnsson.
Þá urðu ráðskonuskipli um síðustu áramót. Guðborg
Brynjólfsdóttir hætti ráðskonustörfum og vinnur nú á
skrifstofu hælisins, en við ráðskonustörfum lók Pálína
Kjartansdóttir.
Bæði árin 1959 og 1960 hefir verið sótt til alþingis um
byggingarstyrk til hælisins, og hafa hvort árið verið veittar
kr. 100.000.00.
Samvinna tryggingaráðs og félagsstjórnar um daggjöld
hælisins og þátttöku sjúkrasamlaga í greiðslu þeirra hefir