Heilsuvernd - 01.06.1972, Síða 10

Heilsuvernd - 01.06.1972, Síða 10
lokurnar, sem eiga að hindra, að blóðið renni til baka, eru bilaðar, þannig að blóðið situr eftir í æðapokum, og hindrar þetta eðlilega hringrás blóðsins. Fótkuldi getur líka stafað af blóðleysi. Tregar hægðir Tregar hægðir stuðla að fótkulda miklu oftar en menn grunar. Þetta stafar sumpart af því, að saurfylltir þarmar þrýsta á slag- æðar, sem flytja blóð niður til ganglimanna, og á bláæðar, sem flytja það aftur upp til hjartans, og tefur þetta fyrir blóðrásinni. í annan stað mengast blóðið af skaðlegum úrgangsefnum, sem í hægðatregðu safnast fyrir í þörmunum og ganga þaðan inn í blóðið og valda samdrætti og sjúklegum breytingum m.a. í fóta- æðum. Því er þýðingarmikið að ráða bót á hægðatregðunni með breytingum á mataræði, svo sem aukinni neyzlu grænmetis, með því að draga úr neyzlu á sykri og hvítu hveiti en borða þeim mun meira af ósigtuðum kornmat og öðru grófmeti. Handkuldi Hann á sér að nokkru leyti svipaðar orsakir og fótkuldi. Auk þess sem að framan er greint, stuðlar hand- og fótsviti einnig að hand- og fótkulda, því að þegar svitinn gufar upp, eyðist hiti frá höndum og fótum. í lófum og iljum eru margir svitakirtlar. Ráð við fót- og handkulda Víxlböð eru eitt bezta ráðið. Þau fara þannig fram, að fótum eða höndum er haldið um stund í heitu vatni, svo sem fimm til tíu mínútur, og síðan í köldu vatni í fáeinar sekúndur eða upp í eina mínútu, og þetta er endurtekið einu sinni eða tvisvar. Á meðan er gott að halda fingrum og tám á hreyfingu. Þá örva göngur og fótaæfingar blóðrennslið, t.d. það að hreyfa tær, þegar setið er eða haldið kyrru fyrir. Einnig að ganga berfættur á dögg- votu grasi eða í grunnu vatni. Og að sjálfsögðu ber að leita til læknis í sambandi við sérstaka sjúkdóma, sem geta átt sök á þessu ástandi. (Lauslega þýtt úr grein í Der Deutsche Badebetrieb.) 74 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.