Heilsuvernd - 01.12.1979, Side 7
gerði til sjálfs sín, að vera hálfur maður í starfi. Haustið 1952,
þá 48 ára að aldri, hóf hann nám í læknadeild Háskóla íslands og
lauk þar námi á aðeins fimm og hálfu ári. .. .
Björn var starfsamur og afkastaði miklu. Hver sjúklingur var
skoðaður við komu á hælið og aftur v.ð brottför, en jafnframt var
tekið á móti cjúklingum hælisins í viðtalstíma eftir óskum. Þetta
vann Björn af mikilli vandvirkni eins og sjúkraskrár hans bera
með sér. . .
Stjórn Heilsuhælisins einkenndist af reglusemi og góðu skipu-
lagi. Landsþekkt er hin kjarnmikla jurtafæða hælisins, en jafn-
framt er rekin fjölþætt endurhæfingarmeðferð sjúkra. Þar hafa
dvalið þúsundir landsmanna til lækninga, hvíldar og hressingar
og þrátt fyrir hinar auknu ferðir íslendinga til sólarlanda og á
erlend heilsuhæli, virðist ekkert lát á aðsókn til Heilsuhælis NLFÍ
í Hveragerði.
Björn var mikill hugsjónamaður og ásamt hinum almennu
lækningum leit hann á það sem hlutverk sitt að vinna að fremsta
megni gegn sjúkdómum með því að uppfræða almenning um holla
lífshætti og neysluvenjur. Um hann hefir staðið styr eins og jafn-
an er um þá sem ekki fara troðnar slóðir. Skapfesta hans, skýr
hugsun og sannfæring voru honum slíkur styrkur að andófið gegn
honum varð honum ekki til trafala og kom hann jafnan meiri
maður út úr hverri viðureign. En fræðslustarf hans hefur borið
árangur og á sinn mikla þátt í breyttum og hollari neysluvenj-
um hjá fjölda landsmanna.“
Magnús G. Jónsson menntaskólakennari segir svo m.a. í sama
blaði: ,,Þegar Björn kom heim til íslands 1930, var hann því
ekki aðeins vel lærður í veðurfræði, heldur hafði hann einnig
traust tök á frönsku máli. Má geta þess, að hann var mörg ár
prófdómari í frönsku við Menntaskólann í Reykjavík, fyrst hjá
Páli Sveinssyni og síðan hjá undirrituðum.
Það fór mjög að líkum, að Björn gerðist félagi í Alliance
Francaise. Var hann brátt kjörinn í stjórn félagsins, fyrst sem
féhirðir, síðan varaforseti. Átti hann sæti í stjórninni jafna síðan
þar til hann fluttist til Hveragerðis.... Björn var gerður heiðurs-
félagi í Alliance Francaise og fékk opinbera viðurkenningu frá
HEILSUVERND
127