Heilsuvernd - 01.12.1979, Blaðsíða 12
að neyta yfirgnæfandi lútargæfrar fæðu þó að slíkt sé ekki ósenni-
legt.
Dæmi um sjúkdóma sem eru tengdir langvarandi sýrumyndun
í líkamanum eru gigtsjúkdómar, æðakölkun og margskonar sjúk-
dómar í bandvefjum. Bandvefurinn er sá líkamsvefur sem tekur
til sín þá sýru sem líkaminn getur ekki losað sig við.
Jafnvel nýrun eru undir miklu álagi við ofgnótt sýru í líkam-
anum. Sömuleiðis má gera ráð fyrir að orsökina að magasári sé
m.a. að finna í of mikilli sýru, sem og úrkölkun beina, sem er
mjög algengur sjúkdómur er felur í sér að beinagrindin verður
stökk. Þar er að finna öruggt samband við sýru-basa-jafnvægið.
2. Algengustu einkenni gigtsjúkdóma eru verkir og stirðleiki,
en við þessum sjúkdómum er ráðlagt að neyta yfirgnæfandi lút-
argæfrar fæðu. Er mögulegt að ofgnótt sýru í Ifkamanum leiði
af sér verki. Er hægt að lækna verk með lútargæfum mat, jafn-
vel langvarandi verki eins og bakverk þar sem orsökin er ókunn?
Lindahl: Að svo miklu leyti sem verkurinn stafar af ofgnótt
sýru í vefjum líkamans þá er smátt og smátt hægt að eyða
verknum með því að neyta yfirgnæfandi lútargæfrar fæðu. En
í raun og veru stafa verkir sjaldnast af of mikilli sýru í líkam-
anum, heldur af því að frumuveggir hafi skaddast. Frumuveggir
geta skaddast af mörgum orsökum, t.d. af völdum eitrunar, bólgu,
ofnæmis eða við mar. Þetta er ekki hægt að lækna með lútargæfri
meðhöndlun. Frumuveggirnir verða að þéttast þannig að þeir
myndi skil milli frumuinnihaldsins og tauganna.
Fræðilega séð eru litlar líkur fyrir því að bakverkur verði
fyrir áhrifum af sýru-basa-jafnvæginu. Brjóskplöturnar eru í eðli
sínu súrar. Þegar þær koma út, til dæmis við brjósklos, þá
valda þær verkjum. Það er ekki óhugsandi, að ef reynt er í
slíkum tilfellum að losna við sýru úr líkamanum megi flýta
fyrir batanum.
Ef allur líkaminn er almennt of súr, og sjúklinginn verkjar
meira og minna um allan líkamann, þá er að minnsta kosti fræði-
legur möguleiki á því að losna við verkina með aðstoð yfir-
132
HEILSUVERND