Heilsuvernd - 01.12.1979, Side 22

Heilsuvernd - 01.12.1979, Side 22
gefur okkuru glogga mynd af því hve umhverfi okkar hefur gjör- breyst á umliðnum áratugum. Og allt hið nýja í umhverfi okkar er vissulega ekki meinlaust. Það er viðurkennt af læknavísindun- um, að um 80% allra krabbameinstilfella eigi rætur sínar að rekja til umhverfisáhrifa. Og samt beina læknavísindin mest allri orku sinni og þekkingu í að lækna krabbamein í stað þess að beina spjótum að orsakavaldinum. En hvað getum við þá gert sjálf? Fyrst og fremst ber okkur að gæta þess hvað við látum ofan í okkur og hvernig við lifum. Hér eru nokkrar vísbendingar: 1. Forðist eins og kostur er unnin matvæli og grænmeti sem úðað hefir verið með skordýraeitri, en borðið í staðinn sem allra fjölbreytilegasta, náttúrlega fæðu og sjóðið hana sem allra minnst til að varðveita í henni vítamín og steinefni. 2. Varist hvítasykur og raunar einnig ljósbrúnan púðursykur. sem er ekki annað en hvítasykur að viðbættum 13% af mól- assa — og minnist þess að hvítasykur leynist víða — um 70% af öllum hvíta sykri, sem neytt er, er fenginn úr súkkulaði, sæl- gæti, sætum kökum og öðru slíku. 3. Forðist hvítt hveiti og matvörur úr því, svo sem eins og makkaroni o.fl. 4. Takmarkið saltneyslu, óhófleg saltneysla er talin geta valdið of háum blóðþrýstingi. 5. Haldið ykkur frá matvörum með vafasömum íblöndunarefnum, svo sem gervilitarefnum, gervibragðefnum, gervisykri o.fl. 6. Haldið ykkur frá smjörlíki, hverrar tegundar sem er, í því eru gervilitarefni, feiti hert með efnafræðilegum aðferðum, gervi- bragðefni og mikið salt. Ég vil að endingu leggja áherslu á, að allt það sem ég hef sagt hér er sótt í rit viðurkenndra vísindamanna á sviði læknisfræði. Það er við hæfi að ljúka þessu erindi með því að vitna í dr. Alexis Carrel, sem hlaut Nóbelsverðlaun í lífeðlisfræði og lækn- isfræði 1935: „Von mannkynsins felst í viðleitninni til að koma í veg fyrir hrörnunar- og geðsjúkdóma, ekki í því einu að fást við einkenni þeirra." 142 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.