Fréttablaðið - 22.12.2021, Síða 1

Fréttablaðið - 22.12.2021, Síða 1
2 5 1 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 1 Jólaálfar taka upp á ýmsu Dr. Erna reynir að bæta svefn Lífið ➤ 32 Lífið ➤ 34 Bókaútgefendur vilja að ein- okun Menntamálastofnunar á útgáfu námsefnis fyrir grunn- skóla verði afnumin. Stofnun- in hamli þróun og nýsköpun og sé leifar liðins tíma. olafur@frettabladid.is VIÐSKIPTI Menntamálastofnun, sem áður hét Námsgagnastofnun og upphaflega Ríkisútgáfa náms- bóka, fær um 1,1 milljarð króna á ári hverju til útgáfu námsbóka fyrir grunnskólastigið. Þessi fjár- hæð er meira en tvöfalt hærri en allar endur greiðslur ríkisins vegna bókaútgáfu í landinu. Bókaútgefendur segja útgáfu námsbóka vera mikilvæga stoð undir rek stur bókaforlaga í nágrannalöndum okkar og í Finn- landi fái bókaútgefendur til dæmis um 30 prósent sinna tekna frá náms- gagnaútgáfu og hlutfallið í flestum nágrannalöndum okkar sé á bilinu 20-30 prósent. Hér á landi komi hins vegar einungis 1 prósent af tekjum bókaforlaga frá námsgagnaútgáfu. Menntamálastofnun þykir hafa sinnt hlutverki sínu illa, sofið á verð- inum og sýnt áhugaleysi gagnvart nýsköpun og þróun rafrænna og gagnvirkra námsgagna. Einkarekin bókaforlög eru þrátt fyrir fjandsam- legt rekstrarumhverfi sögð búa yfir meiri þekkingu og reynslu en ríkis- einokunarfyrirtækið sem fær 1,1 milljarð frá skattgreiðendum á ári. Kallað er eftir því að mennta- málaráðherra taki af skarið og geri breytingar, íslensk skólabörn gjaldi fyrir getu- og metnaðarleysi Menntamálastofnunar. Ásmundur Einar Daðason menntamálaráð- herra segir mikilvægi kennslubóka og annarra námsgagna vera áréttað í stjórnarsáttmálanum og að hann hlakki til samvinnu við hagsmuna- aðila, þar á meðal útgefendur, um næstu skref. SJÁ SÍÐU 10 Mælirinn fullur hjá bókaútgefendum Ásmundur Einar Daðason, mennta- málaráðherra COVID -19 Ekki verður messað í Grafarvogskirkju um hátíðirnar en sóknin er sú stærsta hér á landi. Guðrún Karls Helgudóttir sóknar- prestur segir kirkjuna standa frammi fyrir siðferðislegri klemmu, en þó að reglurnar segi eitt geti sið- ferðiskenndin sagt annað. „Svo finnum við líka að það er stór hópur sem er búinn að fá nóg og vill bara koma í kirkju. Margar kirkjur eru það stórar að auðvelt er að fylgja öllum sóttvarnareglum og gera ráðstafanir,“ segir hún. „Hér er ekki verið að hafa áfengi um hönd og fólk ekki að missa sig í faðmlögum.“ SJÁ SÍÐU 6 Kirkjan í klemmu Þessir kátu krakkar vönduðu valið einkar vel þegar þeir völdu jólatré fyrir komandi hátíð af mikilli kostgæfni í sölu Flugbjörgunarsveitarinnar við Öskjuhlíð í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.