Fréttablaðið - 22.12.2021, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 22.12.2021, Blaðsíða 24
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, Ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, óskar landsmönnum gleðilegrar hátíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Nú hafa verið settar nýjar sóttvarnareglur. Flestir hafa virt reglurnar sem ríkisstjórnin hefur ákveðið á þessum Covid-tímum. Yfirvaldið í Rómarríki, Ágústus keisari, boðaði ekki fyrir 2000 árum að allir skyldu fara í veiru- próf heldur að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Fór þá hver til sinnar borgar til að láta skrásetja sig. María og Jósef fóru til Betlehem og þar fæddist drengurinn Jesús. Börn fæðast úti um allan heim og eru aðstæður mæðranna misjafnar þegar þær fæða. Ég las að fimm börn fæddust á hverri sekúndu í heiminum öllum svo barnsfæðing er hversdagsleg nema fyrir for- eldrana sem líta barnið sitt augum í fyrsta sinn og fá það í fangið. Þeirri reynslu er erfitt að lýsa með orðum. Það er einstakt að sagan af fæðingu eins barns í Juda sem nú tilheyrir Ísrael skuli lifa mann fram af manni, vera rannsökuð af fræði- mönnum í gegnum aldirnar og hafa æ síðan áhrif á líf fjölmargra ein- staklinga um allan heim. Tímatal okkar miðast við fæðingu Jesú og árlega á dimmasta tíma ársins hér á landi minnumst við fæðingar hans sem síðar sagðist vera ljós heimsins. Hvað er það við þennan atburð, fæðingu þessa drengs, sem gerir hann svona þýðingarmikinn fyrir okkur í dag? Það er barnið sjálft, því í honum fæddist Guð sem maður, einn af okkur. Þannig veit Guð hvað það er að vera maður og þess vegna getum við treyst Guði og leiðsögn Guðs. Jósef og María voru ekki konung- borið fólk eða fólk af efri stigum. Þau voru alþýðufólk sem lifði sínu lífi í bænum Nasaret. Guð valdi Maríu til að ganga með hið nýja líf sem þroskaðist í líkama hennar til að fæðast fullskapað í þennan heim. Jólin eru okkur áminning um að við öll erum dýrmæt í augum Guðs og skiptir kyn, litarháttur, stétt engu máli. Guð elskar okkur öll. Jólin eru hátíð allra jarðar barna. Ég óska þér gleði og friðar á helgri hátíð og bið þér blessunar Guðs. n Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands Jólin eru hátíð barnanna Þannig veit Guð hvað það er að vera maður og þess vegna getum við treyst Guði og leiðsögn Guðs. Frá upphafi faraldursins hefur þjóðkirkjan haft það að leiðarljósi að vera sam- stíga stjórnvöldum og bak- hjarl í því krefjandi verkefni að ná tökum á heimsfaraldri sem setur líf, heilsu og dag- legt líf úr skorðum. „Núna þegar þjóðin stendur frammi fyrir enn einni bylgjunni þá setur þjóðkirkjan sig í kunnug- legar stellingar og lagar messuhald og þjónustu yfir hátíðarnar að breyttum aðstæðum. Þetta er einungis mögulegt vegna þess að kirkjan hefur á að skipa ótrúlegum mannauði, hvort sem það er starfsfólk eða hið magnaða sjálf boðaliðastarf um allt land. Vinnufúsar hendur og hjarta sem slær fyrir kirkjulegt starf trúar, vonar og kærleika,“ segir Pétur Markan, biskupsritari á Biskupsstofu. Takmarkanir í kirkjum „Það er ljóst að hægt verður að halda úti takmörkuðum hátíð- arguðsþjónustum innan þeirra marka sem sóttvarnareglur kveða á um sem er 50 manna hámark – 200 manns að hámarki að undan- gengnu hraðprófi. Við hvetjum alla til að skoða hvernig þeirra sókn eða sú sókn sem þeir hafa áhuga á að sækja kirkju til muni útfæra hátíðar- þjónustuna. Ljóst er að sóknir landsins starfa við ólík skilyrði þegar kemur að aðgengi hraðprófa og mögulegra sóttvarnahólfa. Það er því eðlilegt að hátíðarhelgihald taki mið af því,“ segir Pétur. Hátíðarmessa í útvarpi „Við viljum hins vegar minna á að helgihaldinu verða gerð myndar- leg skil á RÚV og N4. Á aðfangadag verður aftansöngur frá Dóm- kirkjunni klukkan 18 á Rás 1. Um kvöldið verður síðan Helgistund með biskupi Íslands klukkan 22 á RÚV. Á jóladag verður hátíðar- messa á Rás 1 klukkan 11 og síðan verður hátíðarmessunni sjón- varpað klukkan 13 á RÚV. Klukkan 15 á jóladag verður síðan Hátíðar- messa frá Hólum á N4. Helgihaldi þjóðkirkjunnar verða því gerð afar góð skil í útvarpi og sjónvarpi, aukinheldur sem margar sóknir verða með efni sem hægt verður að nálgast gegnum samfélagsmiðlana. Það er samtakamáttur þjóðar- innar sem vinnur á endanum orrustuna við heimsfaraldurinn. Þar vill þjóðkirkjan vera ábyrgur þátttakandi með því að halda úti öruggri hátíðarþjónustu í sam- ræmi við sóttvarnareglur og bjóða upp á fjölbreyttar og myndarlegar hátíðarguðsþjónustur í sjónvarpi og útvarpi.“ n Hátíðarhelgihald í sjónvarpi og útvarpi Pétur Markan biskupsritari bendir á að út- varp og sjón- varp munu gera hátíðarmessum góð skil um há- tíðarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Helgihaldi þjóð- kirkjunnar verða því gerð afar góð skil í útvarpi og sjónvarpi, aukinheldur sem margar sóknir verða með efni sem hægt verður að nálgast gegnum sam- félagsmiðlana. Eingöngu verður streymt frá jólum og áramótum í Lágafellssókn. Hægt er að horfa á streymið bæði á heimasíðunni okkar, www.lagafellskirkja.is & fésbókar síðu Lágafellskirkja. Aðfangadagur 24. desember Aftansöngur kl. 18 í Lágafellskirkju - í streymi Sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjónar Jóladagur 25. desember Jólakveðja á jóladegi kl. 14 í Lágafellskirkju - í streymi Sr. Arndís Linn þjónar Kirkjukór Lágafellssóknar Organisti: Þórður Sigurðarson Gamlársdagur 31. desember Aftansöngur kl. 17 - í streymi Sr. Arndís Linn þjónar Fögnum hátíð ljóssins! lagafellskirkja.is Jól og áramót í Lágafellssókn 2021 2 kynningarblað 22. desember 2021 MIÐVIKUDAGURGUÐSÞJÓNUSTUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.