Fréttablaðið - 22.12.2021, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 22.12.2021, Blaðsíða 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Nú í aðdrag­ anda hátíðar ljóss og friðar virð­ ist dóm­ harkan aftur vera að ná yfir­ höndinni. Þegar ríkissjóður kyndir undir verðbólgu hvílir allur þunginn á aðgerðum Seðla­ bankans. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is Verðbólga er orðin alvarlegt vandamál fyrir heimilin og atvinnulífið. Ríkisstjórnin virðist hins vegar kannast lítið við þann vanda. Flest ríki í Evrópu og Ameríku glíma líka við vaxandi verðbólgu. En viðbrögðin eru ólík. Ný ríkisstjórn í Þýskalandi ákvað að virkja aftur fjármálareglur, sem teknar voru úr sambandi vegna Covid fyrr en ætlað var. Ríkisstjórn Íslands ákvað hins vegar að fresta því lengur en í upphafi var ráðgert. Þetta gerir ríkisstjórnin þó að hún staðhæfi að við­ snúningurinn gangi betur en hún reiknaði með. Víða erlendis beina hagfræðingar nú athyglinni að hlutverki ríkissjóða í baráttunni við verðbólguna. Hér heima skrifaði aðalhagfræðingur Seðlabankans nýverið í Vís­ bendingu að verðbólguhorfur gætu verið of bjartsýnar. Hann nefnir ríkisfjármálin sem einn af helstu óvissu­ þáttunum. Þetta þýðir að bankinn telur að ríkisfjár­ málastefnan miði ekki að því að lækka verðbólgu. Í Morgunblaðsviðtali í byrjun desember segir Ragnar Árnason hagfræðiprófessor að hreinar skuldir ríkissjóðs aukist. Hækki vextir aukist vaxtagreiðslur ríkissjóðs. Þeir peningar verði ekki notaðir í opinberan rekstur. Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um fjárlagafrumvarpið. Yfirskrift hennar er: „Ríkið kyndir undir verðbólgu.“ Býsna þungur dómur um ríkisfjár­ málastefnuna frá einni helstu hugveitu atvinnulífsins. Í umsögn Samtaka atvinnulífsins segir að óbreytt stefna í ríkisfjármálum muni „hafa í för með sér ósjálf­ bæra skuldasöfnun. Þau benda á að vaxtabyrðin er þyngri hér en í samanburðarríkjunum. Þá gagnrýna samtökin að ríkisstjórnin ýti fjármálareglum á undan sér með þeim afleiðingum að brekkan verði brattari. Þau ganga svo langt að staðhæfa að ríkisstjórnin sé að ýta vandamálunum yfir á næstu ríkisstjórn. Það væri unnt að skilja harkalega áfellisdóma af þessu tagi ef um væri að ræða kosningafjárlög. En við erum að tala um fimmtu fjárlög ríkisstjórnar sem er að hefja nýtt kjörtímabil. Þegar ríkissjóður kyndir undir verðbólgu hvílir allur þunginn á aðgerðum Seðlabank­ ans. Vaxtahækkanir hans verða því meiri. Ríkisstjórn, sem frá fyrsta degi kjörtímabilsins ýtir vandamálunum yfir á næstu stjórn, er meira en stefnu­ laus. Hún er óábyrg. n Ríkisfjármál og ábyrgð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Við­ reisnar PREN TU N .IS mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is PREN TU N .IS TARTALETTUR Íslenskar hátíðar ................................................ ser@frettabladid.is Heiðurssætin Þingheimur er þegar farinn að búa sig undir verstu hugsanlegu sviðsmyndina hvað löggjafar­ samkunduna varðar í vetur, en ef allt um þrýtur mun fólkið í heiðurssætum framboðs­ listanna fyrir kosningarnar í haust setjast á þing – og mun þar margur maðurinn, sem hélt hann hefði yfirgefið þinghúsið fyrir fullt og allt þurfa að taka fram straubrettið og renna yfir blússurnar og skyrturnar á ný. Pólitískur ómöguleiki hefur oft­ sinnis verið nefndur á þessum fordæmalausu tímum en vegna þessara tíma er einmitt póli­ tískur ómöguleiki orðinn einn helsti möguleiki veruleikans. Óróleiki Pólitískur óróleiki ku vera með mesta móti á nýja farsóttar­ heimilinu við Austurvöll, en eitt­ hvað mun hafa kastast í kekki millum þingmanna vegna sótt­ varnareglna innan þinghússins. Á meðan stór hópur þingliðsins fer að einu og öllu eftir settum reglum með grímuna fyrir vitum sér spígspora aðrir þingmenn um eins og þeir hafi ekki heyrt af pestinni, með glottið á vör, grímulausir og galsafengnir á göngunum, án þess að virða fjar­ lægðartakmörk. Það er sumsé kurr á þingi, af þeirri einföldu ástæðu að margir þar innandyra sem setja landsmönnum lög neita að fara að reglum. n Smitskömmin er snúin aftur. Umburð­ arlyndi gagnvart því að fólk láti hafa sig út í að veikjast af bráðsmitandi veiru hefur sveiflast upp og niður frá því að heimsfaraldurinn kom fyrst til landsins. Fyrst var það algert trúnaðarmál hverjir höfðu smitast. Skömmin var slík að heilu bæjarfélögin urðu miður sín ef fréttist af smiti innan bæjarmarkanna. Íþróttafélög og veitingahús gerðu vart annað en að bera af sér sakir um slælegar sóttvarnir. Það gat verið ávísun á gjaldþrot að fá smitstimpil á rekstur­ inn í fjölmiðlum. Best þótti dómendum ef fólk var áður búið að setja sig á háan hest gagnvart öðrum, eins og bæjarstjórinn sem fékk veiruna í heimsókn þrátt fyrir yfirlýs­ ingar um að hennar fólk væri betra í að fylgja reglum en aðrir landsmenn. Svo rjátlaðist þetta af fólki eftir því sem fleiri fengu veiruna. Það fór jafnvel að verða stöðutákn að vera með mótefni, sem reyndist þó lítið gagn gera þegar upp var staðið. Fólk sem áður hafði fengið virðulegt vottorð um veirusýkingu er að veikjast trekk í trekk. Við höfum farið nokkra hringi í þessu og skiptumst á að vera umburðarlynd og dóm­ hörð í garð hinna veiku. Nú í aðdraganda hátíðar ljóss og friðar virðist dómharkan aftur vera að ná yfirhöndinni. Um helgina átti lögreglan fullt í fangi með að leysa upp fordæmda hegðun á borð við dans. Fáir virtust kippa sér mikið upp við að sagan sé að endurtaka sig með hrollvekj­ andi hætti, heldur skemmta sér yfir því og hneykslast í sömu mund á að virðulegir þing­ menn og jafnvel heilu þingflokkarnir séu nú lagstir í pest eftir að hafa gert sér glaðan dag. Fólk sem veikist af bráðsmitandi sjúkdómi er ekki óvinurinn hér. Það er enginn óvinur, nema ef vera skyldi valdasjúkt fólk sem þrífst á ótta og óöryggi. Kannanir og niðurstöður kosninga sýna að nú leitar fólk eftir öryggi. Góð forysta skiptir öllu máli í eldfimu ástandi og sterkir leiðtogar eiga fylgi að fagna, sem aldrei fyrr. Alræmdasta tegund þeirra er sú sem leyfir öfgum og afturhaldi að blómstra óáreittu. Besta gerðin er hins vegar sú sem veitir góða forystu í sóttvörnum en styður og ýtir undir umburðarlyndi fremur en hörku. Mikilvæg­ ast er slíkum leiðtoga þó, sjálfs sín og okkar allra vegna, að láta borgararéttindin, sem eru grundvöllur farsælla samfélaga, aldrei víkja úr huga sér meðan skerðingum á þeim er beitt. n Enginn óvinur SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 22. desember 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.