Fréttablaðið - 22.12.2021, Side 4
Ég kalla eftir minnis-
blöðum frá fleirum en
sóttvarnalækni áður
en svona ákvarðanir
eru teknar.
Vilhjálmur Árna
son, þingmaður
Sjálfstæðis
flokksins
Willum Þór
Þórsson vék
ekki í megin
atriðum frá
tilmælum
sóttvarnalæknis
frekar en forveri
hans Svandís
Svavarsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Ríkisstjórn Íslands tilkynnti
um hertar samkomutakmark-
anir í gær og fór að mestu eftir
tillögum sóttvarnalæknis.
Verklagið er ekki óumdeilt og
verður tekist um það á þingi
í vetur.
kristinnhaukur@frettabladid.is
COVID-19 Sóttvarnatakmarkanir
voru hertar á miðnætti í nótt og
mega nú aðeins 20 manns koma
saman í stað 50 áður. Willum Þór
Þórsson heilbrigðisráðherra til-
kynnti þetta í gær eftir ríkisstjórn-
arfund. Rétt eins og í tíð forvera
hans, Svandísar Svavarsdóttur, var
farið eftir tillögum Þórólfs Guðna-
sonar sóttvarnalæknis að mestu
leyti.
Nálægðarmörk eru aukin úr
einum í tvo metra. 200 manna
samkomur eru leyfilegar að undan-
gengnu hraðprófi og að viðhafðri
grímuskyldu í stað 500 áður. Þá
mega sundlaugar, líkamsræktar-
stöðvar og skíðasvæði ekki taka
nema 50 prósent af leyfðum fjölda.
Sóttvarnalæknir mæltist til þess
að jólafrí skólanna yrði framlengt
um viku, eða til 10. janúar. Á það
var ekki fallist en Ásmundi Einari
Daðasyni og Áslaugu Örnu Sigur-
björnsdóttur, ráðherrunum sem
fara með málefni skólanna, var falið
að athuga stöðuna hjá skólastjórn-
endum.
Eftir fundinn sagði Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra það ekki
skemmtilegt að þurfa að færa lands-
mönnum þessi tíðindi í aðdraganda
jóla. Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra sagði það ekkert nýtt að
ólík sjónarmið um útfærslur væru
innan síns flokks. „Ég stend nú með
ráð herranum í þessu vegna þess að
það væri mikill á byrgðar hluti að
bregðast ekki við með ein hverjum
hætti,“ sagði Bjarni.
„Við gerum ekki lítið úr því að
það þurfi að bregðast við en við
gagnrýnum verklagið,“ segir Vil-
hjálmur Árnason, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, sem varaði við því
að farið yrði að minnisblaði Þórólfs
án umræðu. „Það kemur minnisblað
frá einum aðila úr heilbrigðiskerf-
inu og það er rætt í ráðherranefnd
og ríkisstjórn á innan við sólar-
hring.“
Vilhjálmur segist gera kröfu um
meiri gögn til stuðnings aðgerðum
og markmið þeirra þurfi að vera
skýrt og sýn til langs tíma. „Ég kalla
eftir minnisblöðum frá f leirum
en sóttvarnalækni áður en svona
ákvarðanir eru teknar. Svo sem frá
fólki úr mennta-, velferðar- og efna-
hagskerfinu og öðru heilbrigðis-
starfsfólki,“ segir hann. Sér í lagi eigi
þetta við þegar áhrif faraldursins
séu orðin langvarandi, til dæmis á
andlega heilsu fólks á borð við kvíða
og félagslega einangrun.
Aðspurður um vettvanginn fyrir
þetta nefnir Vilhjálmur umræður
um ný sóttvarnalög sem boðuð
hafa verið í vetur. Þá muni þetta
einnig koma til umræðu þegar
heilbrigðisráðherra gefur þinginu
skýrslu. Þá verður metið hvort sér-
stakt þingmannafrumvarp þeirra
sem óánægðir eru með núverandi
verklag verði lagt fram.
Ætla má að nokkur fjöldi þing-
manna kynni að styðja breytingar
á fyrirkomulaginu, hvort sem það
yrði líkt og Vilhjálmur sér það eða
annars konar.
Meðal þeirra sem vakið hafa máls
á þessu í Sjálfstæðisflokknum eru
Hildur Sverrisdóttir, Bryndís Har-
aldsdóttir, Ásmundur Friðriksson,
Diljá Mist Einarsdóttir og ráðherr-
arnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir. Þá
hefur Arnar Þór Jónsson, sem nýlega
tók sæti sem varaþingmaður, verið
mjög gagnrýninn og kallað eftir
afsögn Þórólfs.
Af öðrum þingmönnum má nefna
Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur
og Hönnu Katrínu Friðriksson úr
Viðreisn. Einnig Bergþór Ólason úr
Miðflokki sem líkt hefur sóttkví við
varðhald. Í öðrum flokkum hefur
hins vegar farið lítið fyrir gagn-
rýnisröddum. n
Nýr ráðherra en áfram sama verklag
hjorvaro@frettabladid.is
COVID-19 Heilbrigðisráðuneytið
hefur sent út ákall til heilbrigðis-
menntaðs fólks sem er reiðubúið að
skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðis-
þjónustunnar.
Í ljósi mikillar fjölgunar Covid-
smita í samfélaginu má gera ráð
fyrir vaxandi álagi hjá heilbrigðis-
stofnunum og hætt er við auknum
forföllum starfsfólks vegna smita og
sóttkvíar.
Alls hafa 152 heilbrigðisstarfs-
menn skráð sig í bakvarðasveitina
frá því að hún var endurvakin í
október síðastliðnum.
Mest þörf er fyrir sjúkraliða,
hjúkrunarfræðinga og lækna en
einnig er óskað eftir fólki á skrá úr
öðrum heilbrigðisstéttum.
Athygli er vakin á því að nemar
í hjúkrunarfræði, læknisfræði og
sjúkraliðanámi geta skráð sig í
bakvarðasveitina. n
Ákall um fleiri
Covid-bakverði
bth@frettabladid.is
SKÓLAMÁL „Það er gleðiefni að
við höfum náð þessum árangri að
fá úrbætur. Háskólinn á Hólum
hefur lengi unnið að því að fá fram-
kvæmdir fjármagnaðar vegna mygl-
unnar og nú er það í höfn,“ segir Erla
Björk Örnólfsdóttir, rektor Háskól-
ans á Hólum.
Nokkur ár eru síðan úttekt verk-
fræðistof unn ar Eflu leiddi í ljós að
mygla er til staðar á öll um hæðum
skóla húss Há skól ans á Hól um.
Með breyt ing ar til lög um við fjár-
laga frumvarpið hillir undir fram-
kvæmdafé sem nemur hundruðum
milljóna.
Erla Björk segist ekki vita dæmi
um heilsutjón hjá nemendum eða
kennurum. Hún vonast til að fram-
kvæmdir hefjist næsta ár og telur að
viðgerðin muni ekki hafa afgerandi
áhrif á skólastarf. n
Fagnar fé til að
vinna á myglu
ninarichter@frettabladid.is
FÆREYJAR Í upphafi þessarar viku
voru tvö frumvörp samþykkt í
færeyska þinginu sem tryggðu hin-
segin pörum í Færeyjum réttindi til
fæðingarorlofs. Málið hefur valdið
titringi og óvíst er hvort ríkisstjórn
Færeyja haldi velli út árið.
Hinsegin fólk í Færeyjum öðlað-
ist hjúskaparréttindi árið 2017,
langt á eftir hinum Norðurlanda-
þjóðunum. Síðustu misseri hefur
nokkur umræða skapast í Fær-
eyjum varðandi réttindi hinsegin
fólks til fæðingarorlofs. Færeyska
þingið var klofið í afstöðu sinni til
frumvarps um jafnan rétt hinsegin
fólks til fæðingarorlofs. Frumvarpið
var samþykkt með 18 stuðnings-
atkvæðum gegn 13 andvígum.
Mikill titringur hefur skapast í
færeyska þinginu vegna þessa og
samkvæmt færeyska ríkisútvarp-
inu, Kringvarpinu, eru ýmis teikn á
lofti um að færeyska stjórnin muni
falla.
Tveir ráðherrar Fólkaf lokksins
sögðu af sér embætti vegna málsins
og tóku aftur við þingmennsku, í
viðleitni til að steypa flokkssystur
sinni Anniku Olsen úr þingsæti, en
hún hafði kosið með frumvarpinu.
Þingmenn Færeyska miðflokks-
ins, sem er alfarið andvígur auknum
mannréttindum hinsegin fólks,
segja samstarfsf lokka sína, Sam-
bandsflokkinn og Fólkaflokkinn,
brotlega við stjórnarsáttmálann.
Forsætisráðherra Færeyja sagði
í samtali við fjölmiðla á mánudag
að örlög stjórnarinnar myndu að
líkindum ráðast eftir jól. n
Deilt um réttindi hinsegin fólks í Færeyjum
Bárður á Steig
Nielsen, for
sætisráðherra
FæreyjaHáskólinn á Hólum fær yfirhalningu.
4 Fréttir 22. desember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ