Fréttablaðið - 22.12.2021, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 22.12.2021, Blaðsíða 8
Þegar fram koma leiðtogar sem tapa borginni kosningar eftir kosn- ingar þá eru skiljan- leg við- brögð að menn vilji slátra foringj- anum sem skaffar ekki. Ólafur Þ. Harðar- son, prófessor Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í borginni 1990–2021 Davíð Oddsson Markús Örn Antonsson Árni Sigfússon Björn Bjarnason Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Hanna Birna Kristjánsdóttir Halldór Halldórsson Eyþór Arnalds Linnulítil endurnýjun hefur einkennt oddvitamál Sjálf­ stæðismanna í borginni síðan Davíð Oddsson var borgar­ stjóri. Enn eru leiðtogaskipti fram undan. Þeim er slátrað sem ekki skaffar, segir pró­ fessor. STJÓRNMÁL Eftir að Eyþór Arnalds tilkynnti að hann væri hættur við framboð sitt sem oddviti Sjálf­ stæðismanna í Reykjavík stefnir í að Hildur Björnsdóttir verði átt­ undi leiðtogi Sjálfstæðismanna á þeim 27 árum sem liðin eru síðan f lokkurinn tapaði borginni árið 1994. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, segir mjög áhuga­ vert að bera saman skammlífi borg­ arleiðtoganna og langlífi formanna Sjálfstæðisflokksins í sögunnar rás. Árið 1990 vann Sjálfstæðis­ f lokkur inn undir forystu Davíðs Oddssonar einn stærsta sigur f lokksins í borgarstjórnarkosn­ ingum. Flokkurinn hlaut yfir 60 prósent atkvæða og 10 borgarfull­ trúa af 15. Davíð hætti sem borgar­ stjóri og fór í landsmálin sem for­ sætisráðherra. Í næstu kosningum, 1994, missti Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta sinn í borginni með til­ komu Reykjavíkurlistans. Það var í aðeins annað skiptið á rúmlega 60 árum sem meirihluti f lokksins féll, Sjálfstæðismenn fengu sjö borgar­ fulltrúa af 15, töpuðu þremur. Árni Sigfússon gegndi embætti borgar­ stjóra um nokkurra mánaða skeið fyrir kosningarnar 1994 þegar hann Átta oddvitar Sjálfstæðismanna síðan taphrinan hófst Björn Þorláksson bth @frettabladid.is tók við af Markúsi Erni þremur mánuðum fyrir kosningar. Árni var fenginn til leiks til að halda borginni. Með sameiningu R­listans tókst það ekki og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Samfylkingunni, varð borgarstjóri í nýjum meirihluta. Árið 1998 leiddi Árni aftur. Reykjavíkurlisti fékk átta fulltrúa en Sjálfstæðismenn sjö. Árið 2002 leiddi Björn Bjarnason Sjálfstæðismenn. Reykjavíkurlist­ inn hélt enn velli en klofningsfram­ boð Ólafs F. Magnússonar borgar­ fulltrúa hafði áhrif. Ólafur var áður borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Árið 2006 hafði Reykjavíkur­ listinn liðast í sundur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson leiddi þá Sjálfstæðis­ menn í kosningum og fékk sjö full­ trúa af 15. Sjálfstæðismenn og Fram­ sóknarmenn mynduðu meirihluta og Vilhjálmur varð borgarstjóri. Upp úr því samstarfi slitnaði sem og öðrum meirihlutum sem á eftir fylgdu. Árið 2008 tók aftur við kefl­ inu meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar f lokksins með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem borgarstjóra. Hanna Birna náði ekki að halda stólnum í kosningum árið 2010. Upp rann tími Besta flokksins í kjölfar Hrunsins og Jón Gnarr tók við borgarstjórakeflinu. Árið 2014 leiddi Halldór Hall­ dórsson Sjálfstæðismenn í borg­ inni. Sjálfstæðisflokkur hlaut fjóra borgarfulltrúa, tapaði einum. Flokkurinn fékk aðeins 26 prósenta fylgi. Tími Dags B. Eggertssonar sem borgarstjóra Samfylkingar rann upp. Árið 2018 var borgarfulltrúum fjölgað úr 15 í 23. Sjálfstæðisflokkur fékk 30,8 prósent, sem dugði þó ekki til að komast í meirihluta. Leiðtogaáhrifin ofmetin Ólafur Þ. Harðarson stjórnmála­ fræðiprófessor segir mjög ofmælt að draga línu milli persónuáhrifa leið­ toga og góðrar útkomu í kosningum. Besta útkoma Sjálfstæðisflokksins í borginni hafi orðið þegar óvinsælar vinstristjórnir voru við völd í lands­ málunum. Sumir fyrrverandi leið­ togar í borgarmálunum hafi unnið mjög góða sigra í einum kosningum en fengið mun minna fylgi í öðrum. Þá sé oft rætt um 2010 þegar Besti f lokkurinn vann ótrúlegan sigur í Reykjavík. „Sumir segja að það hafi verið vegna vinsælda Jóns Gnarr. En miklu líklegri skýring er að kosn­ ingaúrslitin hafi ráðist af mótmæl­ um kjósenda sem höfðu fengið upp í kok af gömlu f lokkunum,“ segir Ólafur. Aftur á móti sé mjög áhugavert að ræða hvers vegna oddvitar Sjálf­ stæðismanna hafi staldrað svo stutt við í borginni á sama tíma og leið­ togar f lokksins í landsmálunum standi óhaggaðir. „Sú skýring sem kemur fyrst upp í hugann er að alveg frá lýðveldis­ stofnun hefur Sjálfstæðisflokkurinn langoftast verið í ríkisstjórn. Meðan foringi í f lokknum getur komið honum í ríkisstjórn þá er hvatinn til að fella hann ekki mikill,“ segir Ólafur. Í þessu ljósi segir Ólafur að það skipti ekki öllu máli fyrir Bjarna Benediktsson hvort hann nái 25 prósenta fylgi eða 40 prósentum. Honum sé ekki skipt út því honum takist að halda f lokknum inni í ríkisstjórn. „Sjálfstæðismenn voru líka vanir að ráða borginni en þegar fram koma leiðtogar sem tapa borginni kosningar eftir kosningar þá eru skiljanleg viðbrögð að menn vilji slátra foringjanum sem skaffar ekki.“ n 8 Fréttir 22. desember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 22. desember 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.