Fréttablaðið - 22.12.2021, Síða 10
Helgi Vífill
Júlíusson
n Skoðun
Íslenskir bókaútgefendur
gagnrýna harðlega það
sem þeir kalla ríkis einokun
Menntamálastofnunar á
útgáfu námsbóka og annarra
námsgagna fyrir grunnskól-
ann. Þeir segja Menntamála-
stofnun hafa brugðist algerlega
hlutverki sínu og kalla eftir því
að yfirvöld breyti fyrirkomu-
lagi útgáfu námsbóka.
olafur@frettabladid.is
Ásmundur Einar Daðason, nýr
menntamálaráðherra, segist hlakka
til samvinnu við skólasamfélagið,
námsefnishöfunda, útgefendur og
annað fagfólk sem best til þekkir
um stefnumótun.
Fyrirkomulag námsbókaútgáfu
á Íslandi er frábrugðið því sem
tíðkast á hinum Norðurlöndunum
og raunar öllum löndum hins vest-
ræna heims, öðrum en Makedóníu
sem líkt og Ísland er með ríkisútgáfu
námsbóka.
Jónas Sig u rgeirsson, f ram-
kvæmdastjóri Bókafélagsins, benti
í síðustu viku á að hér á landi fengju
bókaútgefendur einungis 1 prósent
tekna sinna frá útgáfu námsbóka á
sama tíma og finnskir bókaútgef-
endur fá 30 prósent tekna sinna frá
námsbókaútgáfu.
Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins, segir
útgefendur ítrekað hafa bent á að
fyrirkomulag við útgáfu kennslu-
bóka fyrir grunnskóla sé í raun út í
hött og á skjön við það hvernig nán-
ast öll önnur vestræn ríki haga sinni
kennslubókaútgáfu. „Á sama tíma
hefur lesskilningi og læsi hérlendis
hrakað mjög og ég hef velt því upp
hvort þar kunni að vera samhengi á
milli, að börnum sé einungis kennt
námsefni ríkisútgáfunnar fremur
en að kennarar geti valið úr úrvali
les- og kennsluefnis af almennum
markaði.
Ég hef sjálfur lagt til að fyrir-
komulagið verði opnað og kenn-
urum og skólum gert í verulega
auknum mæli kleift að kaupa inn
kennsluefni af almennum markaði,
svo sem með því að tiltekið hlutfall
kennslubóka geti komið af almenna
markaðnum. Það mikilvægasta er
að fjölbreytni útgefins námsefnis
aukist og að kennarar hafi val og
geti valið það sem best hentar í
hvert skipti, fremur en að neyðast
til þess að taka það sem stofnunin
réttir þeim,“ segir Egill Örn.
Hamlar framförum og þróun
Heiðar Ingi Svansson, f ram-
kvæmdastjóri Iðnú bókaútgáf-
unnar og formaður Félags íslenskra
bókaútgefenda, segir einokunar-
stöðu Menntamálastofnunar í
útgáfu námsbóka fyrir grunn-
skólastigið hamla framförum
og þróun kennsluefnis hér
á landi. „Þetta snýst um
gæði skólastarfsins og
ekki síst börnin, við
viljum að þau hafi
aðgang að sem best-
um námsbókum.“
Nýjungar og þróun
varðandi námsefnigerð
og -útgáfu sem á sér stað í
löndunum í kringum okkur
fer fram hjá okkur, að sögn Heiðars
Inga. Hér á landi vanti til dæmis
stefnu varðandi innleiðingu raf-
rænna námsgagna. „Ef ætlunin er að
taka þátt í örri og síbreytilegri fram-
þróun á sviði námsgagnaútgáfu er
ófært að ganga fram hjá öllum þeim
fjölmörgu sem ekki hljóta náð fyrir
augum ríkiseinokunarinnar en búa
yfir verðmætri þekkingu. Hér er ég
ekki að tala bara um bókaútgefend-
ur heldur ekki síst kennara, rithöf-
unda, sérfræðinga og fræðafólk auk
nýsköpunar- og tæknifyrirtækja.“
Heiðar Ingi segir Menntamála-
stofnun og fyrirkomulag náms-
bókaútgáfu á Íslandi vera leifar lið-
ins tíma. „Það er ástæða fyrir því að
ríkið rekur ekki lengur ferðaskrif-
stofu, áburðarverksmiðju, skipa-
félag eða síldarverksmiðjur. Svo
eru 30 ár síðan ríkið seldi Bókaút-
gáfu Menningarsjóðs sem þá þótti
tímaskekkja að ríkið væri að reka.
Norðurlöndin fyrirmynd
Heiðar Ingi telur okkur Íslendinga
geta fundið góðar fyrirmyndir að
þróun og útgáfu námsgagna fyrir
öll skólastig á Norðurlöndunum.
„Skandinavíska módelið, svokall-
aða, er þannig upp byggt að ríkið
stýrir markaðnum og setur leikregl-
urnar. Þegar keypt eru námsgögn
verður að uppfylla ákveðnar
kröfur sem ríkið gerir
varðandi gæði, verð og
fleira. Þetta snýst ekki um
að afhenda einkaaðilum neitt á
silfurfati heldur miklu frekar að
nýta þekkingu þeirra, reynslu,
áræðni, kraft og dugnað sam-
félaginu öllu til heilla.“
Flestir sem koma að þessu
vita að þetta fyrirkomulag er
alvarlega gallað, að sögn Heið-
ars Inga. Fyrir vikið höfum við
setið eftir varðandi þróun og
útgáfu á rafrænum námsgögnum.
„Ég rek til dæmis fyrirtæki sem þarf
að standa sig á þessum krefjandi
markaði sem útgáfa á námsgögnum
fyrir framhaldsskóla er. Þrátt fyrir
smæð okkar og fjandsamlegt rekstr-
arumhverfi erum við komin lengra
heldur en Menntamálastofnun í
þróun og útgáfu á rafrænum og
gagnvirkum námsgögnum með
þaulreyndum dönskum hugbúnaði.
Menntamálastofnun ekki með
Við buðum Menntamálastofnun
árið 2015 að taka þátt í þessu til-
raunaverkefni með okkur meðal
annars til að kanna hvernig best
væri að standa að þessu. Við fengum
síðan styrk árið 2019 frá mennta-
málaráðuneytinu. En af einhverjum
ástæðum, sem ég skil hreinlega ekki,
hafði Menntamálastofnun ekki
áhuga á því að taka þátt í þessu. Það
er eitthvað mikið bogið við að við
skulum búa yfir meiri þekkingu og
reynslu varðandi þessar nýjungar
en Menntamálastofnun sem fær um
1,1 milljarð á ári til reksturs.
Allt samfélagið tapar á þessu.
Íslenskt skólakerfi og ungmenni
þessa lands eiga skilið að sitja við
sama borð og ungmenni á hinum
Norðurlöndunum varðandi þróun
námsefnis og rafræna innleiðingu.“
Heiðar Ingi segir Menntamála-
stofnun hafa farið illa með einok-
unarvald sitt, eins og gerist gjarnan
þegar litlir sem engir hvatar eru til
þess að gera betur. Ekkert réttlæti þá
ríkismiðstýrðu stöðnun sem allt of
lengi hafi ríkt hér á landi. Allir tapi á
því, ekki síst notendur þjónustunn-
ar – nemendur samtímans sem erfa
muni landið í framtíðinni.
Hagsmunaaðilar kallaðir til
Ásmundur Einar Daðason mennta-
málaráðherra segir kennslubækur
og önnur námsgögn vera dýrmæt
jöfnunartæki. Mikilvægi þeirra
komi meðal annars skýrt fram í
nýjum stjórnarsáttmála. Talsverð
undirbúningsvinna hafi átt sér stað
sem tengist stefnumörkun um nám-
gagnaútgáfu, meðal annars í tengsl-
um við mótun nýrrar menntastefnu
sem kynnt var í vor.
„Ég hef ekki haft mikinn tíma til
þess að kynna mér þá vinnu ofan í
kjölinn enn þá, en það er eitt af þeim
aðkallandi málum sem við munum
sinna í nýju mennta- og barnamála-
ráðuneyti. Það er ljóst að uppi eru
fjölbreytt sjónarmið um hvert sé
best að stefna varðandi íslenska
námsgagnaútgáfu en ég hlakka
til samvinnu við skólasamfélagið,
námsefnishöfunda, útgefendur og
annað fagfólk sem best til þekkir,
um næstu skref,“ segir menntamála-
ráðherra. n
Ríkiseinokunin leifar liðins tíma
Formaður Félags íslenskra bókaútgefenda segir Menntamálastofnun fara illa með einokunarvald sitt og standa í vegi
nýsköpunar og framfara í námsgagnaútgáfu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ég hlakka til samvinnu
við skólasamfélagið,
námsefnishöfunda,
útgefendur og annað
fagfólk sem best til
þekkir.
Ásmundur
Einar Daðason,
menntamála-
ráðherra
Það kom á óvart að Eyþór Arn-
alds, oddviti Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík, mun draga sig í
hlé þegar kjörtímabilið rennur
sitt skeið á enda, eins og hann
tilkynnti um í gær. Fram að því
ætluðu Eyþór og Hildur Björns-
dóttir borgarfulltrúi að keppa
um fyrsta sæti f lokksins í leið-
togapróf kjöri. Það hefði orðið
spennandi barátta. Fyrir áhuga-
fólk um stjórnmál er synd að af
henni hafi ekki orðið.
Ef laust leitar íhaldssamari
armur Sjálfstæðisflokksins, sem
horfir minna til þéttingu byggð-
ar og fjölbreyttari samgöngu-
máta, nú að frambærilegum
frambjóðanda í oddvitasætið
til að keppa við Hildi. Enginn
af borgarfulltrúum f lokksins
á möguleika á að sigra Hildi í
prófkjöri eftir að Eyþór steig til
hliðar. Það verður hægara sagt
en gert að sannfæra fólk sem er
í góðum störfum að láta á það
reyna að taka við f lokknum
en sitja í kjölfarið áhrifalaust í
minnihluta í fjögur ár ef fram
fer sem horfir. Það er að minnsta
kosti fátt sem bendir til að meiri-
hlutinn falli eins og sakir standa.
Eins og þekkt er vill stjórn
Varðar, þvert á vilja fjölda Sjálf-
stæðismanna, halda leiðtoga-
prófkjör en að fámennur hópur
raði í önnur sæti. Fulltrúaráðið
í Reykjavík á blessunarlega eftir
að samþykkja ákvörðunina. Nú
þegar Hildur stendur ein eftir
í leiðtogapróf kjöri eru auknar
líkur á hefðbundnu próf kjöri
fyrir öll sætin.
Vonandi verður öllum Sjálf-
stæðismönnum í borginni boðið
að taka þátt í prófkjöri í stað þess
að það einskorðist við félags-
menn í Verði. Það myndi nefni-
lega leiða til einsleitari sjónar-
miða við kjörborðið. Sjónarmið
almennra flokksmanna eru fjöl-
breyttari en þeirra sem eiga sæti
í Verði. Sú ákvörðun gæti haft
í för með sér að hinn almenni
Sjálfstæðismaður leiti á önnur
mið og uppskeran verði rýrari í
borgarstjórnarkosningum í vor.
Hugmynd Varðar um að stilla
upp lista í stað þess að fara í
hefðbundið próf kjör var mis-
ráðin. Prófkjör eru mikilvægur
vettvangur fyrir frambjóðendur
til að kynna sig sem kemur
flokknum til góða þegar kjósa á
lista í borgarstjórn í vor. Fólk er
jú ekki hrifið af því að kjósa fólk
sem það þekkir ekki. Miðstýr-
ing, meðal annars við að raða á
lista, er slæm. Nú er nokkuð stór
hópur borgarfulltrúa, sem Vörð-
ur handvaldi, algerlega óþekktur
á meðal borgarbúa eftir fjögur
ár í starfi og fáir hafa áhuga á að
kjósa. n
Opið prófkjör
10 Fréttir 22. desember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 22. desember 2021 MIÐVIKUDAGUR