Fréttablaðið - 22.12.2021, Side 28
Svo
erum
við orku-
mestar í
miðjum
tíða-
hringnum
og þá er
sniðugt að
plana
mannamót
og fundi.
Jara Karlsdóttir
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
KONUR Í ATVINNULÍFINU
Blaðið er unnið í samtarfi við
FKA - Félag kvenna í atvinnulífinu.
Fimmtudaginn 20. janúar 2022 gefur Fréttablaðið út stórglæsilegt sérblað sem nefnist
„Konur í atvinnulífinu“, daginn sem Viðurkenningahátíð FKA verður.
Sérblaðið nefnist „Konur í Atvinnulífinu“ og hefur samskonar blað verið gefið út í góðu
samstarfi við FKA síðustu fjögur ár við afar góðar undirtektir.
Þessu blaði er ætlað að kynna allt það góða starf sem konur í atvinnulífinu eru að inna
af hendi, hvort sem þær séu í ábyrgðastöðu eður ei. Blaðið er að mestu sett saman af
keyptum kynningum en auðvitað fylgja einnig auglýsingapláss svona blöðum.
Blaðið í fyrra var 64 síður og líkur eru á að blaðið í ár slái öll met.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Jóhann Waage markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5656 / johannwaage@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsnið g a kabl ð s m innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum ferming rgjöfum.
Allir sem hafa fermst vita ð da urinn og ekki síst
gjarnar lifa í minni gunni um ald r o ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Tunglið, stjörnuspeki og
tíðahringurinn eru í aðal-
hlutverki heilsusamlegrar
og vinsællar Tungl dagbókar.
„Hugmyndin kviknaði þegar Aline
Grippi var hjá mér í stjörnukorta-
lestri. Við komumst þá að því að
okkur langaði báðar til að búa til
bók þar sem við gætum séð stöðu
tunglsins á hverjum degi og fylgst
með stjörnunum. Aline er með
sjúkdóminn endómetríósu og eitt
af því sem hún getur gert til að
hjálpa sér með hann er að fara í
köld böð og tengjast tíðahringnum
sínum betur með því að tengja
hann við gang tunglsins,“ segir
stjörnuspekingurinn, jógakennar-
inn og tónlistarkonan Jarþrúður
Karlsdóttir, oftast kölluð Jara.
Jara er að tala um nýju Tungl
dagbók þeirra Aline, sem er graf-
ískur hönnuður. Þetta er í annað
sinn sem slík dagbók er gefin út
eftir að hafa fengið gríðargóð
viðbrögð í fyrra þegar upp seldust
þrjú upplög.
„Tungl dagbókin er bæði hefð-
bundin skipulagsdagbók og á sama
tíma tæki til að komast í betri
tengsl við náttúruna með því að
fylgjast með gangi tunglsins. Í byrj-
un bókarinnar eru upplýsingar
um tunglið og stjörnuspeki, tíða-
hringinn og hvaða jurtir er hægt
að tína á Íslandi í hverjum mánuði.
Svo tekur við hefðbundni hlutinn
með mánaðar- og vikuopnum, auk
texta um stjörnumerki hvers mán-
aðar,“ útskýrir Jara sem hugsar
Tungl dagbókina fyrir alla sem
hafa áhuga á tunglinu, stjörnu-
speki, að lifa í meiri tengslum við
hringrás náttúrunnar, og líka þá
sem langar bara í góða skipulags-
dagbók.
„Draumurinn er að hjálpa fólki
að skipuleggja sig betur, til að það
nái að láta drauma sína rætast og
búa til dýpri tengingu við heiminn
sem við búum í,“ upplýsir Jara.
Margt sést í fæðingarkortinu
Frá barnsaldri hefur Jara haft
brennandi áhuga á stjörnuspeki,
eða allt frá því að hún uppgötvaði
að slík speki væri til.
„Stjörnuspeki fer fyrst almenni-
lega að passa þegar maður fer
dýpra í hana og skoðar allt stjörnu-
kortið sitt, en ekki bara sólar-
merkið sem flestir þekkja sem
stjörnumerkið sitt. Í dag er rosaleg
Stjörnuspeki er tæki til að sættast við sjálfan sig
Jara Karlsdóttir er stjörnuspekingur og segir nú mikla vakningu fyrir stjörnuspeki. MYND/SAGA SIG
vakning og áhugi á stjörnuspeki.
Eins og ég nota hana er hún fyrst
og fremst tæki til að gera okkur
sáttari við okkur sjálf og setja
fókus á styrkleika okkar frekar en
að einblína á það sem okkur finnst
vera að okkur. Allt er þetta í fæð-
ingarkortinu og við getum notað
það til að efla sátt og væntumþykju
í eigin garð, en við sjáum líka allt
mögulegt í kortinu og ég hef til
dæmis varað marga við kulnun í
starfi sem eru með troðfullt sjötta
hús,“ greinir Jara frá.
Hún segir mikils virði að geta
haldið vel utan um tíðahring
kvenna í dagbók.
„Tíðahringurinn er hringur, rétt
eins og tunglhringurinn og árs-
tíðahringurinn. Eitt sem við Aline
höfum lært er hversu praktískt
Tungl dag-
bókin er falleg
ásýndar en ekki
síður þegar litið
er inn í hana og
dagarnir skipu-
lagðir út frá
tunglhringnum,
tíðahring
kvenna, stjörnu-
speki og því sem
náttúran færir
okkur mann-
fólkinu.
það er að vera meðvituð um hvar í
tíðahringnum við erum. Þá kemur
fyrirtíðaspenna ekki á óvart, fyrir
þá sem þjást af henni. Svo erum
við orkumestar í miðjum tíða-
hringnum og þá er sniðugt að
plana mannamót og fundi. Rétt
fyrir blæðingar, og á blæðingum, er
svo magnaður tími til að fara inn
á við og tengja dýpra í hugleiðslu,“
upplýsir Jara.
Slagsmál áberandi á fullu tungli
Tunglið hefur einnig mikil áhrif á
líðan okkar og athafnir.
„Það er mjög hjálplegt að nota
tunglhringinn í markmiðasetn-
ingu. Þá setjum við okkur ásetning
eða markmið á nýja tunglinu
og styrkjum það, og hreinsum
út fyrirstöður á fulla tunglinu. Í
kringum fulla tunglið erum við oft
tilbúnari til að gagnrýna aðra og á
nýja tunglinu að gagnrýna okkur
sjálf. Sem er gott, að vera meðvituð
um að það hjálpi okkur frekar en
hitt,“ segir Jara sem veit hvað hún
syngur.
„Sjálf vann ég á leikskóla og þar
var áberandi meira um slagsmál
á fulla tunglinu og grát í kringum
nýja tunglið. Svo hafa margir
skoðað áhrif tunglsins á hluta-
bréfamarkaðinn og þar virðist vera
munstur tengt tunglhringnum
líka. Meiri kaup og sölur í kringum
fulla tunglið og minnst að gerast
rétt fyrir nýja tunglið.“
Í Tungl dagbókinni er líka fjallað
um heilnæmar jurtir úr íslenskri
náttúru og hvaða ilmkjarnaolíur er
hægt að nota til að styðja við tíða-
hringinn.
„Þar eru bæði upplýsingar um
hvernig hægt er að rækta, sá og
uppskera í tengslum við tunglið.
Líka tafla yfir hvaða jurtir er hægt
að tína á Íslandi, f lokkað eftir
mánuðum og áhrifin sem þær
hafa, fengið frá Ingeborg Andersen
grasalækni,“ upplýsir Jara um
Tungl dagbókina sem er jafnt fyrir
konur og karla, sem geta fylgst með
einhverju öðru sem þeir vilja skrá-
setja yfir árið. n
Tungl dagbókin fæst á heima-
síðunni tungl.co og í Eymundsson,
á Lúnu og Lólu Flórens, Rvk Ritual,
Sambúðinni, Systrasamlaginu og
í Sólum og Jógastúdíó. Þar er líka
hægt að panta tíma í stjörnuspek-
ilestur hjá Jöru á giantara.com.
6 kynningarblað A L LT 22. desember 2021 MIÐVIKUDAGUR