Fréttablaðið - 22.12.2021, Blaðsíða 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þá héldu margir, þegar
ég sagði þeim að ég
ynni við svefnrann-
sóknir, að ég væri að
segja svepparann-
sóknir.
Árvissir og sívinsælir nýárstónleikar
stórsveitarinnar eru sem fyrr helgaðir
tímabilinu 1930–50, þegar stórsveitir réðu
ríkjum á jörðinni og stjórnendur, söngvarar
og einleikarar voru popp stjörnur síns tíma.
Gestasöngvar eru Kristjana Stefánsdóttir
og James Olsen frá Færeyjum.
Stjórnandi & kynnir: Sigurður Flosason
Kristjana Stefáns
JAMES OLSEN
NÝÁRsTÓNLEIKAR
9. JANÚAR, ELDBORG
S V E I F L U N N A R
MIÐASALA Á HARPA.IS OG TIX.IS
TILVALIN
JÓLAGJÖF!
Stjórn Félags háskólakvenna
hefur valið doktor Ernu Sif
Arnardóttur háskólakonu árs-
ins 2021. Hún segir þetta sýna
að hún sé á réttri leið og vera
einstaklega mikinn heiður.
ninarichter@frettabladid.is
Doktor Erna Sif Arnardóttir er fædd
árið 1981. Hún útskrifaðist með
BS-gráðu í sameindalíffræði frá
Háskóla Íslands árið 2005, meistara-
gráðu í líf- og læknavísindum árið
2007 og varði doktorsverkefni sitt í
líf- og læknavísindum frá Háskóla
Íslands árið 2013 í samstarfi við
Háskólann í Pennsylvaníu.
Erna Sif er leiðandi vísindamaður
á sviði svefnrannsókna á Íslandi og
þótt víðar væri leitað. Hún hefur
starfað sem nýdoktor og aðjunkt
við læknadeild Háskóla Íslands,
sem forstöðunáttúrufræðingur við
svefndeild Landspítalans og sem
klínískur ráðgjafi hjá Nox Medical.
Þá hefur hún starfað sem rann-
sóknasérfræðingur við verkfræði-
deild Háskólans í Reykjavík. Í fyrra
stofnaði hún þverfaglegt Svefnsetur
við Háskólann í Reykjavík, ásamt
fjölda samstarfsaðila.
Erna Sif segir fjölda fólks eiga erf-
itt með svefn af ýmsum ástæðum.
„Fólk er annað hvort að sofa of lítið,
eða er að glíma við eitthvað sem
skerðir svefngæðin.“
Hún segir starf sitt snúast fyrst
og fremst um að bæta lífsgæði fólks
með því að bæta svefninn.
Risa rannsóknarstyrkur
Erna Sif leiðir rannsóknar- og þró-
unarverkefnið Svefnbyltinguna,
sem hlaut tveggja og hálfs milljarðs
króna styrk frá rammaáætlun Evr-
ópusambandsins á síðasta ári og
er einn hæsti styrkur sem veittur
hefur verið til vísindarannsókna
hérlendis.
„Þetta eru 37 samstarfsaðilar í 24
löndum. Við erum að vinna aðallega
innan Evrópu en líka í Ástralíu. Við
vonumst til að verkefnið geti breytt
svefnmælingum og hvernig við
greinum og meðhöndlum svefn-
raskanir á heimsvísu, þá sérstaklega
kæfisvefn.“
Hvað svefn landsmanna varðar,
segir Erna Sif: „Rannsóknir benda
til þess að unglingarnir okkar séu
að sofa með því stysta sem gerist á
heimsvísu.“
Hún bætir við að það sé sannar-
lega ekki eitthvað sem Íslendingar
ættu að vera heimsmeistarar í. „Það
er spurning hvaða þættir koma þar
inn. Við erum líka rosalega sterk í
snjallsímanotkun, orkudrykkjum
og koffínneyslu.“ Hægt sé að vinna
með þessa þætti til að bæta svefn-
inn.
Að auki nefnir Erna Sif vaxandi
kvíða meðal ungs fólks sem mögu-
lega orsök fyrir slæmum svefni hjá
þeim aldurshópi. „Það er áhyggju-
efni.“
Jólasvefnráð
Aðspurð, hvort landfræðileg staða
Íslands hafi áhrif á svefngæði lands-
manna, svarar hún:
„Við vitum það ekki nógu vel. Það
er margt sem bendir til þess að þetta
mikla myrkur hafi neikvæð áhrif á
svefn fólks. Okkur vantar birtuna á
morgnana til að stilla okkur af, að
láta okkur vita að nú sé dagur,“ segir
hún og bætir við að margir lendi í
vandræðum með svefn á veturna og
þá sérstaklega að vakna á morgn-
ana og að sofna á kvöldin. „Það eru
margir sem finna þetta, sérstaklega
núna í jólafríinu.“
Hún segir að hægt sé að sporna
við slæmum svefnmynstrum af
þessu tagi. „Til dæmis er hægt að
velja sér fastan tíma til að fara á
fætur. Ég er samt ekki að segja að
það þurfi að vakna klukkan sjö í
jólafríinu,“ segir hún og brosir. „En
það er samt gott að fara á fætur á
ákveðnum tíma, kveikja eins mikið
af ljósum og hægt er og reyna að
hafa reglu og rútínu.“
Eitt gúrú-mataræði ekki
betra en annað
Varðandi mataræði og hinar fjöl-
mörgu ráðleggingar sem dynja á
almenningi þess efnis, úr alls konar
áttum, segir Erna Sif:
„Tengsl mataræðis og svefns eru
minna rannsökuð en maður myndi
halda,“ og bætir hún við að þar
leynist tækifæri fyrir vísindafólk.
„Það sem við vitum, og er alveg á
tæru, er að koffín getur haft mjög
neikvæð áhrif á svefn. Sérstaklega
ef maður er að neyta þess seinni-
partinn og á kvöldin,“ segir hún.
„Það er talað um að prófa að
sleppa öllu koffíni eftir klukkan
tvö á daginn, ef maður á erfitt með
svefn.“ Þá nefnir hún að ekki sé
æskilegt að borða mjög stórar mál-
tíðir stuttu fyrir svefn. „Líkamanum
er ekki ætlað að vinna úr þungum
máltíðum á nóttunni.“
Erna Sif vísar síðan í ráðleggingar
landlæknis hvað næringu varðar.
„Það er ekkert sem bendir til þess að
eitthvert gúrú-mataræði sé betra en
eitthvað annað,“ segir hún og hlær.
Sérkennileg sérhæfing
Aðspurð svarar Erna Sif því játandi
að bylting sé að eiga sér stað á
heimsvísu í svefnrannsóknum.
„Þegar ég byrjaði, árið 2004, fór
ég á námskeið um svefn í Ástralíu,“
segir hún. „Ég ákvað að leita mér að
vinnu og námi í kjölfarið.“ Hún segir
að fólk á þeim tíma hafa furðað sig á
vali hennar á sérhæfingu.
„Þá héldu margir, þegar ég sagði
þeim að ég ynni við svefnrann-
sóknir, að ég væri að segja sveppa-
rannsóknir. Af því að ég er líffræð-
ingur. Fólk var ekki alveg að skilja
hugmyndafræðina.
Foreldrar mínir höfðu miklar
áhyggjur af því hvað ég ætlaði að
vinna við í framtíðinni,“ segir hún
sposk. „En eins og komið hefur í ljós,
hefur það nú ekki verið vandamál.
Þetta var ekki eitthvað sem fólk
var að tala um eða hugsa mikið um
á þessum tíma,“ segir Erna Sif og
undirstrikar mikilvægi svefnsins:
„Þetta er ein af þessum grunn-
stoðum heilsu, með hreyfingu og
næringu.“
Lítill svefn úr tísku
En eru kannski þættir djúpt í menn-
ingu okkar á Íslandi sem hafa nei-
kvæð áhrif á svefn?
„Við höfum örugglega verið með
þeim öf lugustu í því, að það sé
dyggð að vinna,“ svarar Erna Sif.
„Í lögunum sem við syngjum fyrir
börnin okkar á að vaka og vinna.
Maður þykir latur ef maður sefur of
mikið.“ Hún segir þó merki um að
þetta sé að breytast. „Það þykir ekk-
ert voðalega fínt lengur að stæra sig
af því að maður þurfi lítinn svefn.“n
Háskólakona ársins fer fyrir
hinni stóru svefnbyltingu
Svefnbyltingin, verkefni undir stjórn dr. Ernu Sifjar, hlaut einn hæsta styrk
sem veittur hefur verið til vísindarannsókna. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
34 Lífið 22. desember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ