Fréttablaðið - 28.12.2021, Síða 15

Fréttablaðið - 28.12.2021, Síða 15
KYNN INGARBLAÐ ALLT ÞRIÐJUDAGUR 28. desember 2021 Á Írlandi tengjast einhverjar hefðir flestum jóladögum. sandragudrun@frettabladid.is Núna á milli hátíðanna er oft rólegur tími hjá mörgum. Fólk hleður batteríin eftir mánuð af undirbúningi og ýmsum hefðum alla aðventuna, áður en nýja árinu er fagnað. Á mörgum stöðum í heiminum er litið svo á að jólin séu búin en á Írlandi eru jólahefðir flesta daga frá aðfangadegi og fram að þrettándanum. Þriðji í jólum er tileinkaður guðspjallamanninum Jóhannesi. Í dag er hátíð hinna heilögu sakleysingja. Það er hjátrú í Írlandi að stofna ekki fyrirtæki á þessum degi, hefja nýtt verk- efni eða fara í ferðalag. 29. og 30. desember eru ekki tengdir neinum kirkjulegum hefðum en sú hefð hefur skapast að fara með börnin í dýragarð. Margra daga veisla 31. desember og 1. janúar er nýja árinu fagnað. 2. janúar er enn frí- dagur á Írlandi og venjan að heim- sækja ættingja og klára afgangana frá hátíðarhöldunum. Þann 5. janúar er jólunum formlega lokið á Írlandi. Þá er hefð að halda gott partí. 6. janúar er þekktur undir nafninu litlu jól eða konujól. Þennan dag gátu konur loks slakað á eftir jólin. Margir halda upp á þennan dag með því að færa hús- móður heimilisins morgunmat í rúmið. Fyrsta mánudag í janúar er Handsel Monday, þann dag fá börnin litlar gjafir sem eru kall- aðar handsel. n 12 dagar jóla Reynir segir að það erfiðasta við að gera skaupið sé að sleppa góðu efni sem frábærir höfundar hafa vandað sig við að búa til, en að það skemmtilegasta sé að fá að verja miklum tíma með ótrúlega skemmtilegu fólki. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Vill hitta hláturtaugina og kýla upp á við Reynir Lyngdal Sigurðsson, leikstjóri Áramótaskaupsins, segir grín gegna mikilvægu menningarlegu hlutverki til að hjálpa okkur að gera upp málin og hlæja að bæði sjálfum okkur og öðrum. Hann segir ótrúlega hæfi- leikaríkan hóp hafa staðið að skaupinu í ár og vonar að fólk taki því vel. 2 ALOE VERA MELTING & BÓLGUR 85%VIRKTCURCUMIN www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.