Fréttablaðið - 30.12.2021, Side 24
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Helgi Már Þórðarson, íþrótta-
fræðingur og einkaþjálfari, fór að
stunda OsteoStong eftir að hann
fór að finna fyrir verkjum í líkam-
anum.
„Mér finnst óeðlilegt að vera
með verki. Mér finnst eðlilegt að
vera verkjalaus og mér finnst að
allir ættu að stefna að því. Ég spil-
aði fótbolta í Bandaríkjunum og
lærði íþróttafræði í Saint Augustin
í Flórída fyrir hartnær 30 árum. Ég
var líka á íþróttabraut í mennta-
skóla og ætlaði alltaf að verða
íþróttakennari, sem ég svo gerði.
Ég var þjálfari barna og unglinga,
síðar einkaþjálfari og hafði alla
mína ævi þjálfað fólk í íþróttum.
Það er þess vegna mjög auðvelt að
tala við mig um heilsu, andlega
heilsu og heilbrigt líferni. Þegar
OsteoStrong var opnað þá var ég
eins og margir: „Nei, það getur
ekki verið, fjögur tæki, einu sinni
í viku?“ Mér fannst þetta náttúru-
lega mjög skrítið.
Tilbúinn að breyta til
En ég var á þeim stað að mig
langaði að breyta til. Ég var búinn
að telja mánuðina og dagana þar
til ég yrði fimmtugur og vildi
fara ferskur inn í nýjan áratug. Ég
var eins og margir, hafði aðeins
fækkað ferðum í ræktina á meðan
ég var með lítil börn og var að
stofna fyrirtæki. Það koma alltaf
smá svona tímabil þar sem maður
dettur út í smá tíma.
Fljótlega verkjalaus í baki
Þegar ég byrjaði í ástundun hjá
OsteoStrong var ég slæmur í baki,
öxl og hálsi. Ég var rosalega dug-
legur í OsteoStrong í hálft ár. Lagði
mig fram um að missa aldrei úr
tíma af því að ég fann mun á mér
eftir bara nokkrar vikur. Verkirnir
hurfu alveg. Bara OsteoStrong einu
sinni í viku, ekki neitt annað með.
Aukin löngun í hreyfingu
Svo smám saman gerðist svo
margt ánægjulegt. Með auknum
styrk, minni verkjum og aukinni
orku þá fór ég að leita í f leiri leiðir
til þess að bæta heilsuna, fann
löngun til að mæta í ræktina og
mætti þar þrisvar sinnum í viku
ásamt því að stunda OsteoSt-
Æfingarnar taka stuttan tíma, aðeins 20 mínútur, en eru afar áhrifaríkar.
Örn og Svana
rekar Osteo
Strong og eru
sífellt að stækka
við sig. Ný stöð
verður opnuð
í Ögurhvarfi í
febrúar.
Helgi segir að eftir æfingarnar hjá OsteoStrong finni hann fyrir miklum lið
leika og orkan hefur aukist.
Æfingarnar eru ekki erfiðar og henta öllum, jafnt þeim sem eru í íþróttum og hinum sem hafa lítið hreyft sig.
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk
n Minnka verki í baki og liðamótum
n Lækka langtíma blóðsykur
n Auka beinþéttni
n Bæta líkamsstöðu
n Auka jafnvægi
n Minnka líkur á álagsmeiðslum
rong einu sinni í viku. Það er svo
skemmtilegt að hreyfa sig þegar
manni líður vel.
Pabbi minn er 73 ára. Hann
hefur sömu sögu að segja en hann
fann reyndar mun á sér strax eftir
fyrsta tíma. Ég held að það sé eðli-
legt að það taki mann aðeins lengri
tíma að finna fyrir breytingum
þegar maður er yngri og í betra
formi.
Gleðin í skammdeginu
Hreyfing er svo verðmæt fyrir
andann og það skiptir svo miklu
máli að vera ekki verkjaður.
Það er grunnatriði. Til þess að
lyfta andanum tók ég upp á því
í jólafríinu að fara í tvo stutta
göngutúra á dag í náttúrunni og
mér finnst það mjög verðmætt. Í
nokkur ár hef ég vandað mig við
að dvelja í þakklæti. Ég keypti mér
5-mínútna-þakklætis-bækur um
árið og núna er það orðið sjálfkrafa
hjá mér finna fyrir þakklæti óháð
aðstæðum hverju sinni.
Ég las líka „Af hverju sofum við“
Notendur
gera
æfingar
undir
hand-
leiðslu
þjálfara í
fjórum
tækjum
sem reyna
á allan
líkamann.
Með auknum
styrk, orku og
minni verkjum fór ég
að leita fleiri leiða til að
bæta heilsuna og fann
löngun til að mæta í
ræktina ásamt því að
stunda OsteoStrong.
og hætti að mæta í sund á morgn-
ana eins og ég hafði gert í 15 ár. Nú
sef ég bara þessa tvo auka klukku-
tíma og ég greinilega þurfti á því
að halda því að ég er allur miklu
kátari.
Tími fyrir heilsu
Það er svo gott að byrja hjá
OsteoStrong. Maður finnur svo
hratt fyrir breytingum og byrjar þá
smám saman að skoða í kringum
sig eftir fleiri leiðum til að bæta
heilsuna og gleðina. Þegar ég lít
núna tvö ár aftur í tímann þá má
segja að OsteoStrong hafi ýtt við
mér að ná markmiði mínu sem er
að vera í toppformi þegar að ég
verð fimmtugur. Borða betur, sofa
betur, æfa betur. Ég hef enn nokkra
mánuði til stefnu og hlakka til,“
segir Helgi sem er annar eigandi
Aha.is.
Ný stöð í Ögurhvarfi
OsteoStrong á Íslandi á þriggja ára
starfsafmæli um áramótin. Viku-
lega mæta um 500 meðlimir til
þess að styrkja sig og auka orku.
„Til viðbótar við stöðina í Hátúni
12 opnum við nýja stöð í byrjun
febrúar í Ögurhvarfi. Þannig
geta enn fleiri nýtt sér þjónustu
OsteoStrong og leiðin er styttri
fyrir þá sem koma til dæmis frá
Selfossi og Borgarnesi. Við erum
mjög spennt yfir möguleikanum á
því að fá að þjóna fleiri svæðum á
Íslandi og erum alltaf spennt yfir
að tala við mögulega samstarfsað-
ila,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir,
annar eigandi OsteoStrong.
Tíminn er núna
OsteoStrong hentar næstum
öllum sem geta staðið upp. „Hjá
okkur eru til dæmis einstaklingar
sem eru að undirbúa sig fyrir
Landvættina og á sama tíma ein-
staklingar sem eru farnir að þurfa
að styðjast við göngugrind og allt
þar á milli. Það eru svo margir sem
að hafa dottið út úr rútínu með
sína hreyfingu tengt Covid og þrá
að komast aftur af stað. Það er góð
hugmynd prófa OsteoStrong núna
í skammdeginu og byrja strax að
safna styrk fyrir vorið og úti-
veruna,“ segir Örn Helgason, hinn
eigandi OsteoStrong.
73% styrking á ári
„Notendur gera æfingar undir
handleiðslu þjálfara í fjórum tækj-
um sem reyna á allan líkamann,“
segir Svanlaug. „Hreyfingin er lítil
en átakið er hins vegar meira en
fólk er vant án þess að verða manni
nokkurn tíma ofviða. Með nýju
áreiti fær líkaminn skýr skilaboð
um að byggja sig upp og hefst
handa við að þétta bein og styrkja
vöðva, liðbönd og sinar. Á einu ári
er fólk að meðaltali að styrkja sig
um 73%.
Góðar sóttvarnir
Við hugum mjög vel að sótt-
vörnum og enn sem komið er hefur
enginn náð að smitast hjá okkur.
Með allt þetta fólk og á öllum
þessum tíma hefur það í aðeins
tvígang komið fyrir að einstakling-
ur kom og gerði æfingarnar sínar
en komst að því eftir á að hann
var með Covid. Okkur þótti vænt
um það þegar annar þeirra sagði
við smitrakningarteymið: „Jú, ég
fór þangað en það er ekki séns að
nokkur smitist þar, OsteoStrong
er örugglega mest sótthreinsaði
staður á Íslandi,“ segir Örn.
Frír prufutími
„Við bjóðum upp á fría prufutíma
á fimmtudögum. Það er gaman
að geta sýnt fólki hvað við gerum.
Flestir koma til okkar með margar
spurningar, en fara frá okkur
spenntir, glaðir og með skýra sýn
á það hvernig OsteoStrong getur
hjálpað þeim,“ segir Örn.
OsteoStrong er í Hátúni 12,
sunnan megin. Prufutíma má bóka
á osteostrong.is og í síma 419
9200.
2 kynningarblað 30. desember 2021 FIMMTUDAGURHEILSA