Fréttablaðið - 30.12.2021, Page 24

Fréttablaðið - 30.12.2021, Page 24
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Helgi Már Þórðarson, íþrótta- fræðingur og einkaþjálfari, fór að stunda OsteoStong eftir að hann fór að finna fyrir verkjum í líkam- anum. „Mér finnst óeðlilegt að vera með verki. Mér finnst eðlilegt að vera verkjalaus og mér finnst að allir ættu að stefna að því. Ég spil- aði fótbolta í Bandaríkjunum og lærði íþróttafræði í Saint Augustin í Flórída fyrir hartnær 30 árum. Ég var líka á íþróttabraut í mennta- skóla og ætlaði alltaf að verða íþróttakennari, sem ég svo gerði. Ég var þjálfari barna og unglinga, síðar einkaþjálfari og hafði alla mína ævi þjálfað fólk í íþróttum. Það er þess vegna mjög auðvelt að tala við mig um heilsu, andlega heilsu og heilbrigt líferni. Þegar OsteoStrong var opnað þá var ég eins og margir: „Nei, það getur ekki verið, fjögur tæki, einu sinni í viku?“ Mér fannst þetta náttúru- lega mjög skrítið. Tilbúinn að breyta til En ég var á þeim stað að mig langaði að breyta til. Ég var búinn að telja mánuðina og dagana þar til ég yrði fimmtugur og vildi fara ferskur inn í nýjan áratug. Ég var eins og margir, hafði aðeins fækkað ferðum í ræktina á meðan ég var með lítil börn og var að stofna fyrirtæki. Það koma alltaf smá svona tímabil þar sem maður dettur út í smá tíma. Fljótlega verkjalaus í baki Þegar ég byrjaði í ástundun hjá OsteoStrong var ég slæmur í baki, öxl og hálsi. Ég var rosalega dug- legur í OsteoStrong í hálft ár. Lagði mig fram um að missa aldrei úr tíma af því að ég fann mun á mér eftir bara nokkrar vikur. Verkirnir hurfu alveg. Bara OsteoStrong einu sinni í viku, ekki neitt annað með. Aukin löngun í hreyfingu Svo smám saman gerðist svo margt ánægjulegt. Með auknum styrk, minni verkjum og aukinni orku þá fór ég að leita í f leiri leiðir til þess að bæta heilsuna, fann löngun til að mæta í ræktina og mætti þar þrisvar sinnum í viku ásamt því að stunda OsteoSt- Æfingarnar taka stuttan tíma, aðeins 20 mínútur, en eru afar áhrifaríkar. Örn og Svana rekar Osteo­ Strong og eru sífellt að stækka við sig. Ný stöð verður opnuð í Ögurhvarfi í febrúar. Helgi segir að eftir æfingarnar hjá OsteoStrong finni hann fyrir miklum lið­ leika og orkan hefur aukist. Æfingarnar eru ekki erfiðar og henta öllum, jafnt þeim sem eru í íþróttum og hinum sem hafa lítið hreyft sig. Meðlimir geta átt von á að: n Auka styrk n Minnka verki í baki og liðamótum n Lækka langtíma blóðsykur n Auka beinþéttni n Bæta líkamsstöðu n Auka jafnvægi n Minnka líkur á álagsmeiðslum rong einu sinni í viku. Það er svo skemmtilegt að hreyfa sig þegar manni líður vel. Pabbi minn er 73 ára. Hann hefur sömu sögu að segja en hann fann reyndar mun á sér strax eftir fyrsta tíma. Ég held að það sé eðli- legt að það taki mann aðeins lengri tíma að finna fyrir breytingum þegar maður er yngri og í betra formi. Gleðin í skammdeginu Hreyfing er svo verðmæt fyrir andann og það skiptir svo miklu máli að vera ekki verkjaður. Það er grunnatriði. Til þess að lyfta andanum tók ég upp á því í jólafríinu að fara í tvo stutta göngutúra á dag í náttúrunni og mér finnst það mjög verðmætt. Í nokkur ár hef ég vandað mig við að dvelja í þakklæti. Ég keypti mér 5-mínútna-þakklætis-bækur um árið og núna er það orðið sjálfkrafa hjá mér finna fyrir þakklæti óháð aðstæðum hverju sinni. Ég las líka „Af hverju sofum við“ Notendur gera æfingar undir hand- leiðslu þjálfara í fjórum tækjum sem reyna á allan líkamann. Með auknum styrk, orku og minni verkjum fór ég að leita fleiri leiða til að bæta heilsuna og fann löngun til að mæta í ræktina ásamt því að stunda OsteoStrong. og hætti að mæta í sund á morgn- ana eins og ég hafði gert í 15 ár. Nú sef ég bara þessa tvo auka klukku- tíma og ég greinilega þurfti á því að halda því að ég er allur miklu kátari. Tími fyrir heilsu Það er svo gott að byrja hjá OsteoStrong. Maður finnur svo hratt fyrir breytingum og byrjar þá smám saman að skoða í kringum sig eftir fleiri leiðum til að bæta heilsuna og gleðina. Þegar ég lít núna tvö ár aftur í tímann þá má segja að OsteoStrong hafi ýtt við mér að ná markmiði mínu sem er að vera í toppformi þegar að ég verð fimmtugur. Borða betur, sofa betur, æfa betur. Ég hef enn nokkra mánuði til stefnu og hlakka til,“ segir Helgi sem er annar eigandi Aha.is. Ný stöð í Ögurhvarfi OsteoStrong á Íslandi á þriggja ára starfsafmæli um áramótin. Viku- lega mæta um 500 meðlimir til þess að styrkja sig og auka orku. „Til viðbótar við stöðina í Hátúni 12 opnum við nýja stöð í byrjun febrúar í Ögurhvarfi. Þannig geta enn fleiri nýtt sér þjónustu OsteoStrong og leiðin er styttri fyrir þá sem koma til dæmis frá Selfossi og Borgarnesi. Við erum mjög spennt yfir möguleikanum á því að fá að þjóna fleiri svæðum á Íslandi og erum alltaf spennt yfir að tala við mögulega samstarfsað- ila,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir, annar eigandi OsteoStrong. Tíminn er núna OsteoStrong hentar næstum öllum sem geta staðið upp. „Hjá okkur eru til dæmis einstaklingar sem eru að undirbúa sig fyrir Landvættina og á sama tíma ein- staklingar sem eru farnir að þurfa að styðjast við göngugrind og allt þar á milli. Það eru svo margir sem að hafa dottið út úr rútínu með sína hreyfingu tengt Covid og þrá að komast aftur af stað. Það er góð hugmynd prófa OsteoStrong núna í skammdeginu og byrja strax að safna styrk fyrir vorið og úti- veruna,“ segir Örn Helgason, hinn eigandi OsteoStrong. 73% styrking á ári „Notendur gera æfingar undir handleiðslu þjálfara í fjórum tækj- um sem reyna á allan líkamann,“ segir Svanlaug. „Hreyfingin er lítil en átakið er hins vegar meira en fólk er vant án þess að verða manni nokkurn tíma ofviða. Með nýju áreiti fær líkaminn skýr skilaboð um að byggja sig upp og hefst handa við að þétta bein og styrkja vöðva, liðbönd og sinar. Á einu ári er fólk að meðaltali að styrkja sig um 73%. Góðar sóttvarnir Við hugum mjög vel að sótt- vörnum og enn sem komið er hefur enginn náð að smitast hjá okkur. Með allt þetta fólk og á öllum þessum tíma hefur það í aðeins tvígang komið fyrir að einstakling- ur kom og gerði æfingarnar sínar en komst að því eftir á að hann var með Covid. Okkur þótti vænt um það þegar annar þeirra sagði við smitrakningarteymið: „Jú, ég fór þangað en það er ekki séns að nokkur smitist þar, OsteoStrong er örugglega mest sótthreinsaði staður á Íslandi,“ segir Örn. Frír prufutími „Við bjóðum upp á fría prufutíma á fimmtudögum. Það er gaman að geta sýnt fólki hvað við gerum. Flestir koma til okkar með margar spurningar, en fara frá okkur spenntir, glaðir og með skýra sýn á það hvernig OsteoStrong getur hjálpað þeim,“ segir Örn. OsteoStrong er í Hátúni 12, sunnan megin. Prufutíma má bóka á osteostrong.is og í síma 419 9200. 2 kynningarblað 30. desember 2021 FIMMTUDAGURHEILSA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.