Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 12
stærsta hákarlaútver landsins, en sögu þess lauk ekki fyrr en á
öðrum áratug þessarar aldar. Um og eftir 1700 voru verbúðir í
Kjörvogi, Naustavíkum og í Búðarvogi í Bjarnarnesi, en ekki
nema ein á hverjum stað. I Grímsey í Steingrímsfirði var lengi
útver, þaðan var ekki hætt að róa fyrr en kringum 1910. Enn-
fremur voru verbúðir á Drangsnesi, Kirkjubólstangaþorpum,
Hamarsbæli og Smáhömrum. Þá voru verbúðir á eftirtöldum
stöðum við vestanverðan Hrútafjörð; Stakksvík, Búðarvogi,
Sauðanesi og Litlu-Hvalsá. Allar þessar búðir voru aflagðar fyrir
aldamótin síðustu nema búðirnar í Búðarvogi. Ein þeirra var
uppistandandi fram yfir 1930.
I Stakksvík og Sauðanesi sjást ennþá greinilegar rústir eftir
verbúðir eina á hvorum stað. Hinsvegar sjást hvergi merki eftir
verbúð á Litlu-Hvalsá og er því ekki vitað hvar hún hefur staðið
hafi hún einhver verið. Ekki er heldur upplýst hvaða lending var
notuð. Kemur þá til greina vörin sem er beint undan Litlu—
Hvalsárbænum eða víkin sunnan við Lambatanga sem virðist
öllu álitlegri.
Utarlega við Hrútafjörð vestanverðan er stórt og breitt nes,
sem heitir Kolbeinsárnes og nær það töluvert langt út í fjörðinn
miðað við ströndina beggja megin við nesið. Kolbeinsárnes býr
yfir mikilli náttúrufegurð og þar eru margir sérkennilegir staðir,
sem fróðlegt og gaman er að skoða. Þeir eru svo til alveg í hvarfi
fyrir augum ferðamanna, sem leið eiga eftir þjóðveginum og sjást
ekki til hlítar nema að farið sé um nesið.
Norðan við nesið stendur bærinn Kolbeinsá og skal nú laus-
lega lýst leiðinni frá bænum og kringum nesið. Dvalið verður um
stund í Búðarvogi sem er sögufrægur útgerðarstaður og um-
hverfi þar lýst og greint frá því helsta sem nútímamenn vita um
útgerð þaðan.
Skammt frá bænum er grýttur holtahryggur sem heitir Ás.
Nyrsti hluti hans sem liggur í sjó fram heitir Kálfanes. Austan
við ásinn er vík sem heitir Stekkjarvík. Síðan taka við víkur hver
af annarri. Fyrst er Skjólklettsvík, sem dregur nafn af kletti, sem
þar stendur stakur og hægt er að leita skjóls við í öllum áttum. Þá
koma smærri víkur, sem ekki bera sérstakt nafn. Þegar þessum
10