Strandapósturinn - 01.06.1977, Page 17
maður um Húnaflóa til Borðeyrar. Gísli var húsmaður á Kol-
beinsá frá 1896 til æviloka. Hann tók við hafnsögumannsstarf-
inu þegar faðir hans hætti og gegndi því til dauðadags. I daglegu
tali var hann venjulega nefndur Gísli lóðs. Gísli reri í mörg ár úr
Búðarvogi og var formaður á bát þeim er hann fór með. Engar
ábyggilegar upplýsingar eru fyrir hendi um skipshöfn hans.
Hann mun hafa búið í Svölu meðan róðrar stóðu yfir.
Jóakim Vigfússon fæddur 18.6. 1844, dáinn 26.3. 1914. Hann
var húsmaður víða í Bæjarhreppi síðast á Kollsá. Hann var
aflamaður mikill, formaður á fiskibátum og talinn afburða
stjórnari. Jóakim stundaði mikið sjósókn og lagði afla á land í
Búðarvogi. Á seinni árum hans þar var hann formaður á bátnum
Elliða frá Kolbeinsá, er Ólafur Björnsson bóndi þar átti. Skips-
höfn hans var þá: Stefán Ólafsson, Kolbeinsá, Halldór Jónsson,
Kolbeinsá, Guðmundur Nikulásson, Stóru-Hvalsá, og ef til vill
einn maður sem ekki er vitað hver var. Jóakim bjó með skipshöfn
sinni í Mollu. Um hann var þetta kveðið:
15