Strandapósturinn - 01.06.1977, Qupperneq 23
Afi, sem bjó á Broddadalsá, en hafði Broddanespartinn með,
flutti sína töðu að Broddadalsá, var yfir vík að fara, hún var með
boðum og blindskerjum sem varast þurfti, þau urðu samt engum
til skaða eða fjörtjóns. Þegar svo logndagur kom var risið
snemma úr rekkju því nú þurfti að nota daginn vel, sem sagt,
langur og erfiður starfsdagur framundan. Bátar voru settir á flot,
öll reipi sett í bátinn og öll tæki sem nota þurfti. Tveir eða þrír
karlmenn fóru út í eyjarnar og oft ein eða tvær stúlkur, þær
höfðu það starf að setja föngin á reipin, saxa föng og taka upp rök
einnig að taka utan af sátunum, karlmenn bundu og báru sát-
urnar niður í bátinn. Stúlkurnar voru líka látnar bera á bátinn,
sumsstaðar var illt yfirferðar, lundahólarnir voru oft sundur-
grafnir og mátti gæta sín að detta ekki ofan í holu, klappirnar
voru stundum hálar og þaktar blautu þangi, einn maður var í
bátnum og kom sátunum fyrir svo vel færi og jafnt hlaðið, gæta
þurfti þess að báturinn væri alltaf á floti ef grunnsævi var, mikið
háfermi var á bátnum og látið fljóta með lista, þegar þessu öllu
var lokið var tekinn róður í land, tveir menn réru.
í landi var einnig mikill viðbúnaður, hestar voru sóttir, beisl-
aðir og lagður á þá reiðingur, urðu þeir að vera komnir niður í
fjöru þar sem lent var, kvenfólk og krakkar höfðu þessi störf á
hendi. Voru nú höfð snör handtök við að koma sátunum upp úr
bátnum, var stúlka oft við það starf að velta sátunum fram í
bátinn en karlmenn báru sáturnar upp í fjöru, hestarnir voru
teymdir hver af öðrum að sátunum, en tveir karlmenn snöruðu
sátum á klakk, síðan teymdu krakkar hver sinn hest upp á tún
þar sem tvennt var fyrir til að taka á móti, hleypa niður, gera
upp reipi, breiða kaplana og koma síðan öllum reipunum niður í
bát.
Eftir að búið var að tæma bátinn og hreinsa úr honum allar
heyslæður var skroppið heim í mat, síðan farið af stað aftur.
Kaffi og drykkjarföng (sem var sýrublanda) var farið með
niður að bát, kaffið drukkið sitjandi á fjörukambinum, alltaf var
mikið og gott kaffibrauð og reynt yfirleitt að gera fólkinu eins vel
og hægt var í mat og drykk þessa heyflutningsdaga. Áfram var
21