Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 24

Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 24
haldið í einni skorpu fram á kvöld. Þetta voru erfiðustu dagar sumarsins. Allt hey var þurrkað og kom því oft fyrir að hey hröktust, eyjataðan þoldi hrakning betur en annað hey og var efalaust gott kjarnfóður, fuglarnir sáu henni fyrir nægum áburði. Þegar faðir minn tók við búskap eftir afa, var þetta með líku sniði, nema þá var farið að nota tjöld til að matast í. Prímusar komu til kaffihitunar og hverfisteinar fluttir fram svo hægt var að leggja á ljáina eftir þörfum. Fyrstu búskaparár bræðra minna var þetta með sama hætti. Fagurt er að líta til allra átta nyrst af stóru eyjunni. Þaðan sér inn með Ennishöfða. I suðri sér inn Kollafjörð með Klakk gnæfandi yfir Fell, Þrúðardal og Steinadal til beggja hliða, en rennsléttar eyrar neðra. Kollafjarðarneskirkja blasir við vestan fjarðarins hvít og stílfögur. Steingrímsfjörður og Selströnd með Grímsey sem útvörð í fjarðarmynni í norðvestri. I norðri er svo Húnaflói ýmist blikandi fagur eða úfinn og grettur með æstar öldur og svarrandi brim. I austri blasa við í blámóðu Skaga- strandarfjöll og Vatnsnes. Þó vinnan væri sótt af kappi, þá naut fólk þessarar undra fögru útsýnar og þegar amstur og erfiði þessara löngu liðnu heyskapardaga í Broddaneseyjum er að mestu gleymt, þá lifir hún í minningunni hrein og tær til lokadags. Nú er eyjaheyskapur lagður niður síðan tún stækkuðu og vélar komu til sögu og er það vel farið. Skarfakálið hefur að mestu lagt undir sig eyjarnar og skartar sínum hvítu fögru blómum er líða tekur á sumarið. 22

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.