Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1977, Page 32

Strandapósturinn - 01.06.1977, Page 32
minnast þess á einhvern hátt í bundnu máli eða óbundnu, ég held líka að annað væri afskiptaleysi eða óeðli. Vorið á sess í sálum okkar og hann virðulegan. Það kemur fram í bókmenntum okkar, svo og sögum og sögnum okkar eldri manna. Hvað skal svo segja um reynslu okkar sjálfra, sem nú erum á elliárum. Við höfum að sjálfsögðu mætt ýmsum erfið- leikum í fylgd okkar blessaða vors, en við höfum líka lifað margar unaðsstundir með því. Unaðsstundir, sem við á engan hátt vildum missa út úr lífi okkar, því að í þeim var svo mikil sól, hlýja og birta. Þannig er vorið, það er meira en gróandi árshátíð náttúrunnar, það er líka gróandi í lífi okkar mannanna. Um það segir Stefán frá Hvítadal meðal annars í kvæðinu „Vorsól“: „Nú finn ég vorsins heiði í hjarta. Horfin, dáin, nóttin svarta. Ótal drauma blíða bjarta barstu vorsól inn til mín, það er engin þörf að kvarta, þegar blessuð sólin skín.“ Hér er ort bæði af trú og hrifningu. En þá er þetta var, var Stefán sjúkur maður. Hann bjó þá í lágreistum bæ, en um lítinn skjá eða ljóra fékk hann þó að nokkru notið vorsólar og birtu í rekkju sinni. Hann kunni því betur en annars að meta yl vor- sólar, svo og vinbros þau og hlýju er hún færði. Sem fyrr segir, gæti ég talið mörg fleiri skáld, sem ort hafa falleg kvæði um vorið og áhrif þess, svo og vonir og þrár manna eftir vori og sól. Sýnir það best, hvaða ítök vorið hefur átt í okkur og á raunar ennþá. Nokkuð hefur þetta þó breyst hin seinni ár. Veldur þar um einkum tvennt. Hið fyrra er, að árferði hefur breyst nokkuð til hins betra, frá því sem áður var. Hið síðara er, og það mun eiga hér um síst minni hlut, stórfelldar framfarir á flestum sviðum þjóðlífs okkar, bæði í atvinnuháttum og aðbúð allri. Má þar til nefna stórbættan húsakost bæði fyrir fólk og fénað. Þá má nefna rafmagn til ljósa og suðu á heimilum. Enn má nefna hitaveitur hjá stórum hópi landsmanna. Þá má nefna síðast en ekki síst 30

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.