Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 48
til að raða þeim þannig saman að þau verði heil að nýju. Hver
sem hefur átt því láni að fagna að alast upp með afa og ömmu á
sínum bernsku og æsku-árum myndi hann hafa óskað sér annars
betra? Ég held ekki.
2.
Hugurinn reikar víða. Þegar aldurinn færist yfir og árunum
fjölgar leitar hugurinn aftur í tímann og þá fyrst og fremst til
þeirra, sem þá voru á manndómsaldri og settu svip á umhverfið á
einn eða annan hátt. Eru það þá að vonum þeir sem næstir voru,
nágrannarnir. Friðrik Söebeck og Karólína bjuggu í Reykjar-
firði. Þau áttu stóran, glæsilegan barnahóp. Sumar dæturnar
voru farnar að heiman er ég fór að muna til mín. Það voru tíðar
samgöngur milli bæjanna, þótti mér ávalt mikill fengur að fá að
fara inn í Reykjarfjörð með mömmu eða ömmu. Svo var farið að
senda mig eina, oft eftir hestum, þeir sóttu mjög í góðgresið í
Reykjarfjarðardal, sama var hvort ég var með öðrum eða ein
míns liðs, ávalt fékk ég allskonar góðgæti hjá Karólínu eða
dætrum hennar væri hún ekki heima. En mest um vert var þó
hvað hún talaði fræðandi við mig, stelpukornið og vildi nú
mikið til gefa að ég hefði haft þroska til að tileinka mér það er
hún ræddi um, margt festist í minni þó sumt sé gleymt. Karólína
var ættfróð og víðlesin og hlaut góða menntun á þeirra tíma
mælikvarða og var á undan samtíðinni á mörgum sviðum. Það
munu ekki hafa verið mörg sveitaheimili á þeim árum, sem
prýdd voru húsgögnum og þeim ekki af verra taginu. Enn man
ég kringlótta stofuborðið, sófann og stólana, ásamt mörgu fleiru,
sem gaf stofunni í Reykjarfirði sérstæðan blæ. Og þá drifhvítu
þiljurnar og gólfin, sem alltaf voru hvítskúruð. Friðrik átti góða
hesta og var öruggur ferðamaður. Það kom sem af sjálfu sér að
oft var til hans leitað til ýmissa ferðalaga. Var hann manna
skjótastur að leysa úr vandá fólks hvernig sem á stóð. Hann var
lærður beykir, en auk þess lagði hann gjörfa hönd á aðrar smíðar
svo sem heimilið í Reykjarfirði bar vitni um, þar fór saman
sérstæður þrifnaður húsfreyjunnar og hagleikur og snyrti-
mennska húsbóndans. Það var svo gaman þegar sást að Friðrik
46