Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1977, Page 55

Strandapósturinn - 01.06.1977, Page 55
Jóhannes frá Asparvík: Fróðleiksmolar Vatnsból Það hefur löngum þótt til kosta á hverju býli, sem hefur haft gott vatnsból. Best þóttu þau vatnsból þar sem vatnið kom beint upp úr jörðinni tært og svalandi og var það kallað uppsprettu- vatn. 1 þessu vatni er mikið af ýmsum jarðefnum, sem gerir það mjög heilsusamlegt til neyslu. Ekki voru öll býli svo vel sett, að eiga slíkt neysluvatn og varð þá að grafa og byggja brunna til að leysa vatnsneysluþörf heim- ilanna. Stundum þornuðu þessi tilbúnu vatnsból, ef miklir þurrkar voru, einnig ef langvarandi frost voru og varð þá að sækja vatn, oft langar leiðir. Af öllu þessu voru mikil óþægindi og erfiði. Ein gerð þessara tilbúnu vatnsbóla var þó örugg með, að ekki þryti þar vatn, en það voru brunnar, sem grafnir voru niður fyrir sjávarmál. Þessir brunnar voru að sjálfsögðu mjög djúpir, því það varð að grafa þá það langt frá sjó, að í stórbrimi næði sjógangurinn ekki til þeirra, annars hefðu þeir orðið fullir af þara og sjávarmöl. Það varð því að grafa mjög djúpt til að ná nægjanlegu vatni í þessa brunna. Þar sem þessir brunnar eru að mestu eða öllu horfnir og heyra fortíðinni til, ætla ég að reyna að lýsa þeim, hvernig þeir voru byggðir og hvernig vatnið var tekið úr þeim. Þegar búið var að grafa brunninn, var hann yfirleitt hlaðinn upp að innan með grjóti og var það oft með miklum hagleik gert. Þetta var hringlaga hleðsla og brunnurinn hafður nokkru víðari að ofan svo hleðslan stæði betur, oft var þessi hleðsla svo slétt og falleg, að hvergi stóð horn á steini eða nibba út úr hleðslunni. 53

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.