Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 58

Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 58
horfin, en þá voru algengir svokallaðir sáir, þeir voru af ýmsum stærðum, sumir allstórir, girtir með trégjörðum, sem kallaðar voru girði. A vorin mátti oft sjá á bæjum, þessi ílát standa út við bæjar- lækinn, full af vatni, svo þau gisnuðu ekki, þegar svo átti að nota þau, voru þau þvegin vandlega. Við geymslu matvæla, var mjög áríðandi að hreinsa mjög vel öll ílát, sem átti að geyma mat í. Þau voru þvegin með hross- hársþvögu, en það var prjónaður ferkantaður leppur úr hross- hári og í staðinn fyrir þvottaefni var notaður sandur, hann var settur í þvöguna og ílátið rifið og pússað og við það varð það mjög hreinlegt á að sjá. Væri ílátið hinsvegar orðið gamalt og tréð farið að drekka í sig sýruna eða pækilinn, þá var það brennt innan. Það var gert þannig, að ílátið var þurrkað, því næst voru settir viðarspænir í ílátið og kveikt í. Þegar ílátið hitnaði, kvikn- aði í því og við hitann kom út úr viðnum öll bleyta er hafði sest í hann. ílátinu var velt fram og aftur á meðan logaði í því, svo bruninn yrði sem jafnastur, þannig myndaðist þunnt, en jafn- þykkt lag af bruna innan um allt ílátið, þá var eldurinn slökktur og bruninn skafinn með eggjárni innan úr ílátinu og var það þá orðið að notagildi, næstum því eins og nýtt. Oft voru ný ílát brennd þannig, til að losna við hugsanlegt viðarbragð af mat- vælunum. Vika sjávar Áður en farið var að mæla vegalengdir á sjó í sjómílum, var annar mælikvarði notaður, en það var „Vika sjávar“. Ein vika sjávar var sem næst 1 míla dönsk, eða fjögurþúsund faðmar. Ég set hér til gamans hvernig vegalengdin frá Grænanessandi norður í Selsker á Ófeigsfjarðarflóa var mæld í vikum sjávar. Vika sjávar var talin frá Grænanessandi, að Selaklökkum, frá Selaklökkum í Rostungsklett, frá Rostungskletti í Reykjanes, frá Reykjanesi í Malarhorn, frá Malarhorni í Bjarnarneshöfða, frá Bjarnarneshöfðum í Klakk við Sveinanes, frá Klakk í Brimnes, frá Brimnesi í Skeiðklett í Byrgisvík, frá Skeiðkletti í Gjögurhlein 56

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.