Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 69

Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 69
Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka: • • Ogurstund Hrólfur afgreiðslumaður á bifreiðastöðinni Geysi við Kalk- ofnsveg í Reykjavík var að koma út úr dyrum stöðvarinnar af næturvakt þegar hann nam staðar og leit í kringum sig. Þessi júlímorgunn árið 1942 var næstum of fagur til þess að vera raunverulegur. Himinninn var allur sem glóandi gull í skini nýrisinnar sólar, og ekki aðeins himinninn, því að húsin, flóinn og fjall Reykjavíkur, Esjan, höfðu fengið hlutdeild í ólýsanlegri ögurstund. — Nei, nú er betra að vaka en sofa, sagði Hrólfur upphátt við sjálfan sig um leið og hann lagði leið sína upp á Arnarhólstún. — A slíkum stundum er synd að sofa, hugsaði hann og var nærri hnotinn um unga stúlku, sem svaf í örmum bresks hermanns, en hann hafði breitt kápu sína yfir þau bæði. Döggvott grasið var ástarbeður þessa æskufólks, og þótt himinninn greti gulltárum skipti það engu. Þau höfðu átt sína óskastund og verið til hvort fyrir annað. Hrólfur gekk hægt frá þeim til þess að trufla þau ekki og leit upp túnið. Mynd landnámsmannsins, Ingólfs Arnarsonar, gnæfði steypt í eir köld og fjarræn, en á bekk neðan við hana sátu tveir menn sem Hrólfur bar kennsl á. Þeir voru skáld og í hans augum meiri menn en aðrir. Annar þeirra, þrekvaxinn maður með breitt andlit þýddi svo vel erlend ljóð að þau urðu alíslensk, en hinn smávaxinn maður með háðsglott á vör, en hyldjúpa viðkvæmni í augum var ekki síður snillingur því að hann hafði m.a. gert áður óþekkt holt á Sel- tjarnarnesi að íslenskum hauskúpustað. Þjáningin, viðkvæmnin 67

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.