Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 70

Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 70
og háðið áttu hvert sinn streng á hörpu þessa unga meistara sem var meira bæjarbarn en margir aðrir þótt dalborinn væri. Þessa menn hafði Hrólfur oft séð sitja á bekk Ingólfsstyttunn- ar, en þeir þekktu hann ekki, og því gat hann sest nálægt þeim og reynt að heyra eitthvað af vörum þeirra sem hann gæti notið. En það var sem fyrr þeir þögðu. E.t.v. voru orð þarflaus þeirra á milli. Þögnin var þeim kærust í morgunkyrrðinni. Drukkinn maður kom frá Hverfisgötu slangraði í átt til skáldanna og veifaði tómri flösku. — Sælir, drengir, hrópaði hann. — Reykjavík stendur enn. Skáldin virtu þennan vínsnauða víndýrkanda ekki viðlits en risu upp, gengu niður Arnarhólinn og stefndu á torgið. Hrólfur forðaði sér líka og gekk heim á leið. Litaleik morg- unsins var að ljúka og nýr starfsdagur að taka við í bæ sem var að breytast í borg. Elskendur, skáld, flöskumaður og vökuþreyttur afgreiðslumaður voru örlítill hluti þess margbreytilega mannlífs sem Reykjavík geymdi í skjóli fjalls síns. — Esjan, hugsaði Hrólfur, — Esjan er tákn borgar sem ann börnum batnandi daga. 68

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.