Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1977, Page 79

Strandapósturinn - 01.06.1977, Page 79
blæddi úr, og stappaði niður fótunum, til að reyna að fá líf í þá. Henni var litið yfir götuna. Þar stóð stórt steinhús umkringt fallegum garði. Ljós logaði í fjórum gluggum. Allt í einu datt henni dálítið í hug: Þarna bjó einmitt stúlkan, sem hún hafði spáð fyrir. Það voru nú rúm 2 ár síðan. Allt hafði henni gengið að óskum, og hún hafði heitið því að gleðja hana, ef allt færi vel. Já, það væri nú bezt að hún hreinlega bæði hana að gefa sér fyrir leigubíl. Hún hafði að vísu aldrei beðið um nokkurn hlut, en stúlkan hafði haft svo ákveðin orð um að launa henni, að hún herti upp hugann og gekk yfir götuna. Það ískraði í hjörunum á stóra járnhliðinu. Hún gekk hikandi upp tröppurnar og hringdi dyrabjöllunni. Dálitla stund beið hún, svo var kveikt ljós fyrir innan. Hurðin opnaðist, og frú Hallfríður Sigurjónsson stóð í dyrunum. „Gott kveld“, sagði Ölöf, „þér munið kannske ekki eftir mér?“ , Jú, jú, mikil sklefing, gerið svo vel og komið inn fyrir“, sagði frúin. Ólöf kom inn í mjög skrautlega stofu, að henni virtist. — Djúpir stólar, arineldur, málverk, reykborð, gólfteppi. Þetta var víst anddyrið. Ólöf gaf konunni gætur, en þá fann hún þetta flóttalega í fari hennar, jafnvel ennþá meira en þegar þær sáust fyrst. „Finnst yður, Ólöf mín, ég ekki búa skemmtilega?“ sagði frú Hallfríður. „Þér hefðuð náttúrulega haft gaman af að sjá húsið, það er bara indælt, — en því miður er ég nú boðin út, og fer alveg að fara, þér lítið inn seinna, þegar betur stendur á.“ Ólöfu var örlítið byrjað að hlýna. Hún varð dálitið vand- ræðaleg, en herti sig upp og sagði: „Ég ætlaði nú ekkert að stoppa. Ég ætlaði bara að vita, hvort það stæði svo vel á fyrir frúnni, að hún gæti gefið mér fyrir bíl?, ég er hálflasin“, bætti hún við eins og afsakandi. Brýrnar á frú Hallfríði hófust dálítið upp, en sigu niður aftur. „Mér finnst ákaflega leitt, Ólöf mín, að þurfa að neita yður um svona lítið. Það stendur bara svo á hjá mér, að ég hefi ekki nema 1000 krónur, — en hérna í næstu götu fyrir neðan er nú hægt að ná í strætisvagn á 15 mínútna fresti, að ég held. Þér skuluð endilega reyna það.“ ,Já, takk, ég geri það“, sagði Ólöf. „Verið sælar frú. Ég mun ekki ónáða yður framar.“ Ólöf var rjóð 77

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.