Strandapósturinn - 01.06.1977, Síða 88
24. Jón sá Bjarna vottast ver,
virðing þarna og heiður ber,
drjúgum gjarn á dugnað er,
dável farnast athafnir.
25. En húsfreyju Ingveldi,
ýtar segja valkvendi.
Gísla eigið afkvcemi,
að sem hneigist mannhylli.
26. Þórustöðum einn er á
yggur nöðruvalla sá,
heiðri glöðum hrósa má
héraðs tröðum öllum frá.
27. Gæða siðum sannprýddur,
semur sniðugt búreglur.
Ýtum liðsemt oft velur
Andrés niður Guðmundur.
28. Handar mjalta virtur ver
vífið fallegt eignar sér,
grein er snjalla gáfna ber,
Guðrún kallast Jónsdóttir.
29. A thöfn góðri og gestrisni
gegnir fljóð með kurteisi
og ber hróðurs almœli
í Ijósmóður stéttinni.
30. Jón á byggir Brunngili,
bragna hryggir sá ekki.
Venju tryggist vandaðri
vœnn og hygginn Jóns niðji.
31. Hans Sigríður heitir fljóð,
hana þrýðir skikkun góð.
Gísla tíðum gleymist fljóð,
gimsteinshlíðin ung og rjóð.
32. Jónsson Gísli þcegur þá
þarna sýslar bús við stjá.
Styggða sýslan stefnir frá
stjörnukvíslar týrinn sá.
33. Snartartungu einnig að
áralungur nera trað.
Baðm náunga býli það
búnaðsþunga er áskipað.
34. Þórður arfi Ásmundur
œrustarfi gagntamur.
Virðist þarfur velnefndur
vengiskarfa Ijósmeiður.
35. Þá er Hildur húsfreyja
hög á snilldir mannkosta.
Hrundin milda handþvita
hreppir gildi virðinga.
36. Brynjólfs frigg af faðerni,
faldatrygg er nefnandi.
Greinda hygg ég hringsþrúði,
hún er dygg í mannlífi.
37. Þórðar kundur Einar er
ómegð bundinn stœrstu hér.
Helzt má undra, hvað hann ber
hyggju og mund aðfleyta sér.
86