Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 95

Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 95
dreifði sér mjög, þar sem jörð var alauð. Er við vorum að ræða um þetta, skipti það engum togum, hann bráðhvessti allt í einu, komin var stórhríð. Þegar við sáum, hvernig komið var, stakk ég upp á því að binda hestinn við staur og báðir færu strax að reyna að ná fénu saman áður en það hrekti. Jón vildi hinsvegar endilega koma hestinum í hús, en ég skyldi fara strax, hann kæmi svo fljótlega á eftir. Mér leizt ekkert á þessa hugmynd, sagðist ekkert vorkenna hestinum að standa úti í hríðinni dálítinn tíma, honum væri ekki vandara en fénu og ég teldi það í meiri hættu. Ég bætti því við, að mín hugmynd væri sú, að ef við værum saman, gæti annar okkar gætt þess, sem við fyndum á ákveðnum stað, meðan hinn leitaði í grenndinni, því líklega væri féð í smá hópum, ekki langt frá hverjum öðrum. Færum við hinsvegar í sitt hvoru lagi, væru litlar líkur á, að við hittumst, en ef við fyndum eitthvað yrðum við að fara með það heim, því að hæpið væri að finna það aftur ef það væri yfirgefið. En Jón vildi endilega fara með hestinn, og varð svo að vera sem hann vildi. Ég lagði af stað út í hríðina og var ekki bjartsýnn um árangur. í fylgd með mér var ungur hundur, sem ég átti og kallaði Hvutta. Hafði ég mikla trú á honum, og hafði hann við ýmis tækifæri sýnt óvenjulega skynsemi, en ekki hafði verulega reynt á hann. Er ég kom á þær stöðvar, sem ég bjóst við fénu, var skyggni mjög lítið og er ég hafði svipazt um í nokkurn tíma, hafði ég rekizt á tvo fjárhópa, sem stutt var á milli, en meginhlutann vantaði þó af fénu. Var nú komið að því vandamáli, er ég hafði fyrr drepið á. Hvað átti ég að gera, fara með þetta fé heim í trausti þess að Jón hefði eitthvað af fénu? Halda áfram að leita og láta þessa fjárhópa eiga sig? Hæpið var þá, að ég fyndi þá aftur, því féð var svo að segja á bersvæði og búast mátti við, að það færi að hrekja, því alltaf harðnaði veðrið. Ég tók þá ákvörðun að fara með féð heim, gekk það vel og naut ég góðrar aðstoðar hundsins. Við fjárhúsin hitti ég Jón, hann var að enda við að hýsa það sem hann hafði fundið, sem var álíka margt og ég var með, en við talningu kom í ljós, að meira en helminginn vantaði. Þetta var ekki álitlegt og farið var að dimma. Okkur 93

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.