Morgunblaðið - 13.08.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021
Mokveiði hefur verið hjá strandveiði-
bátunum í ágúst og óttast strand-
veiðimenn að aflaheimildirnar, sem
veiðunum er úthlutað, verði fullnýtt-
ar áður en veiðitímabilinu lýkur.
Biðla þeir til sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra að auka heim-
ildirnar þrátt fyrir að Hafrannsókna-
stofnun hafi komist að því að stærð
þorskstofnsins hafi verið verulega of-
metin undanfarin ár.
Á fyrstu fimm dögum mánaðarins
var meðalþorskafli á dag 278 tonn
sem er 46% meira en í júlí. „Ef fram
heldur sem horfir verður útgefin við-
miðun uppurin um miðja næstu
viku,“ segir í færslu á vef Landsam-
bands smábátaeigenda (LS).
Þá hafa samtökin sent ráðherra
sjávarútvegsmála bréf þar sem beðið
er um að komið verði í veg fyrir
„ótímabæra stöðvun veiðanna“.
Segir LS aðeins eina leið færa og
það sé að breyta reglugerð um
strandveiðar og auka þær aflaheim-
ildir í þorski sem veiðunum er úthlut-
að.
Ljóst var í júlí að heimildir til
strandveiða myndu ekki duga og
ákvað Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra, að
auka þær um 1.171 tonn. Við það varð
heildarmagn veiðiheimilda strand-
veiða í þorski 11.171 tonn. Talið var
að aflaviðmiðun myndi duga út ágúst
þegar tekið var mið af þróuninni á
þessu ári og gang strandveiða í ágúst
í fyrra þegar dagsaflinn nam 175
tonnum að meðaltali.
„En fiskveiðar falla ekki alltaf inn í
excelskjölin þó það sé óbrigðult hjá
Hafrannsóknastofnun. Strandveið-
arnar nú eru gott dæmi um þetta.
Var viðmiðunarstofn þorsks í fyrra
raunverulega 982 þúsund tonn en
ekki 1.208 þúsund tonn eins og áður
var talið, eða tæplega 19% minni.
Viðmiðunarstofn þorsks í ár er talinn
nema 941 þúsund tonnum,“ segir á
vef LS.
Vilja auka veiði-
heimildirnar
- Strandveiðibátar að klára kvótann
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Strandveiði Góð veiði hefur verið
að undanförnu kringum landið.
Rebekka Líf Ingadóttir
rebekka@mbl.is
Landhelgisgæslan hefur haft í mörg
horn að líta í allt sumar og þá sér-
staklega undanfarnar vikur í ágúst-
mánuði.
„Það hefur verið mikið að gera,
bæði í júlí vegna slysa og veikinda og
sömuleiðis í ágúst hafa verið fjölmörg
útköll. Þannig að það hefur verið mik-
ið álag á þyrlusveit Landhelgisgæsl-
unnar,“ segir Ásgeir Erlendsson,
upplýsingafulltrúi Landhelgisgæsl-
unnar. Hann segir að í síðustu viku
hafi verið gert ráð fyrir því að tvær
þyrlur Gæslunnar af þremur væru til
taks, á meðan ein væri í langtíma við-
haldsskoðun. Síðan hafi ein þyrlanna,
TF-GNÁ, bilað snemma í þeirri viku.
Varahluta var þá beðið að utan og
komst hún aftur í lag á mánudag. Þá
var ein þyrla til taks, TF-EIR, á
meðan beðið var varahlutanna en
hún bilaði síðan einnig á miðvikudag
og var því sólarhringur þar sem eng-
in þyrla var til taks hjá Landhelg-
isgæslunni.
„Þannig virkar þetta fyr-
irkomulag, að með þremur þyrlum
þá er kappkostað að hafa tvær til
taks á meðan ein er í viðhaldi, þar
sem að loftför almennt þurfa mikið
viðhald og þá sérstaklega þyrlur,“
segir Ásgeir. „Síðan auðvitað bila
þyrlur og þá getur þessi staða komið
upp eins og við lentum í í síðustu
viku,“ segir hann og vísar til sólar-
hringsins þar sem engin þyrla var til
taks vegna bilana og segir mjög
óvanalegt að slíkt gerist.
Áhöfnin á TF-EIR hefur sinnt
tveimur útköllum í vikunni vegna
slysa við gosstöðvarnar á Reykja-
nesi. Í færslu Landhelgisgæslunnar
á Facebook-síðu þeirra kemur fram
að bæði slysin hafi átt sér stað í mikl-
um bratta á Langahrygg og að erfitt
hafi reynst að flytja viðkomandi
landleiðina. Þá sinnti þyrlusveit
Gæslunnar fjórum útköllum vegna
slysa og veikinda á þriðjudag. Eitt
útkallanna var í Vestmannaeyjum
þar sem sjúkraflugs var þörf og þar
sem sjúkraflugvél gat ekki lent á
Heimaey vegna flugbrautarfram-
kvæmda var TF-EIR send til Eyja.
Ljósmyndir/Landhelgisgæslan
Þyrluskýlið Þyrlur Landhelgisgæslunnar í skýlinu á Reykjavíkurflugvelli í vikunni, TF-EIR og TF-GNÁ eru nú til taks á meðan TF-GRÓ er í langtíma viðhaldsskoðun.
Kappkosta að hafa tvær til taks
- Sólarhringur leið þar sem engin þyrla Landhelgisgæslunnar var til taks - Talið óvanalegt að slíkt
gerist - Mikið álag hefur verið í júlí og ágúst - Tvö útköll voru við gosstöðvarnar í vikunni
TF-EIR Þyrlan lendir við skýlið með sjúkling sem fluttur var á Landspítala.
OTTA VÖ TÆ
Af
. .
NÝJAR VÖRUR
FRÁ ZIZZI
Stærðir 14-32 eða 42-60
veg
.
.
Hreyfilshúsi nsásveg 08 Reykjavik ím 81-155 ww.curvy.is