Morgunblaðið - 13.08.2021, Page 18

Morgunblaðið - 13.08.2021, Page 18
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR, áður búsett á Brimhólabraut 13, Vestmannaeyjum, lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum föstudaginn 6. ágúst. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 20. ágúst klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Streymt verður frá athöfninni á vef Landakirkju: https://www.landakirkja.is Hjálmar Guðmundsson Pálína Úranusdóttir Ólafur Guðmundsson Hrefna Guðjónsdóttir Sigurjón Guðmundsson Guðni Guðmundsson Þórdís Njarðardóttir Sigrún Guðmundsdóttir ömmu- og langömmubörn 18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 ✝ Jódís Dagný Vilhjálms- dóttir fæddist í Reykjavík 8. jan- úar 1942. Hún lést á Landspítalanum 31. júlí 2021. Jódís var dóttir Vilhjálms Eyþórs- sonar, f. 25.7. 1912, d. 27.8. 1972, og Guðrúnar Þorgeirsdóttur, f. 17.7. 1915, d. 25.6. 1999 Systir hennar var Hildur, f. 26.8. 1936, d. 6.5. 1974. Jódís giftist 20. júní 1964 Jóni Péturssyni, f. 30.6. 1939. Foreldrar hans voru Pjetur Daníelsson, f. 4.2. 1906, d. 22.7. 1977, og Benedikta Jóns- dóttir, f. 8.5. 1908, d. 18.4. 1983. Börn Jódísar og Jóns eru: 1) Steinar, f. 2001. 3) Pétur Gauti, f. 18.11. 1974, fé- lagsráðgjafi. Jódís fæddist í Reykjavík og bjó á Öldugötu 25a með for- eldrum sínum og stórfjöl- skyldu, ömmu, afa, móð- ursystkinum og börnum þeirra. Tvítug flytur hún að heiman og þau hjón búa lengst af á Sunnuflöt í Garðabæ og frá 1996 á Bjarkargötu 4 í Reykjavík. Starfaði hún hjá Búnaðar- bankanum og síðan í fyrirtæki þeirra hjóna JP innréttingum til ársins 1988. Athvarf og griðastaður þeirra hjóna var á Laug- arvatni þar sem hún dvaldi mikið frá barnæsku og allt til æviloka. Jódís verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, 13. ágúst 2021, klukkan 15. Vefstreymi, stytt slóð, að at- höfninni er: https://tinyurl.com/y2vhytdy Virkan hlekk á streymi má finna á https://www.mbl.is/andlat Vilhjálmur, f. 30.12. 1963, húsgagna- smíðameistari Garðabæ, giftur Agnesi Margréti Eiríksdóttur, f. 23.10. 1964. Börn þeirra eru: a) Ólafur, f. 1983. b) Jódís, f. 1991, sambýlismaður Sigurlaugur. Barn þeirra er Sæunn Sara, f. 2019. c) Sara Björk, f. 1999 sam- býlismaður Ingi Már. 2) Bene- dikt, f. 20.6. 1970, flugstjóri Kópavogi, giftur Unni Evu Jónsdóttur, f. 13.5. 1972, kenn- ara. Börn þeirra eru: a) Sóley Ósk, f. 1994, sambýlismaður Guðlaugur Helgi. Barn þeirra er Elmar Breki, f. 2019. b) Berglind Ýr, f. 1998. c) Jón Það er sárt að mamma sé farin, sárt að hún gat ekki hitt nýjustu langömmustelpurnar sem koma í september, fengið aðeins lengri tíma, en ekkert gat stöðvað þenn- an sjúkdóm sem hún glímdi við síðustu ár. Fékk samt ótrúlegan bata í tvö ár og naut þess tíma til fulls með sínu fólki sem hún elsk- aði og var ekki spör á að sýna og segja, útréttur armur og faðmlag. Með pabba gerði hún veröld og æsku okkar bræðra ævintýri, Laugarvatn er staðurinn sem hún dýrkaði meira en allt. Þangað byrjaði hún að fara sem lítil stelpa í Birkilaut og nánast allar helgar og sumur síðan. Pabbi og mamma voru aldrei annað en á leiðinni austur og undir það síðasta var hún enn á leiðinni austur, „fer bara í næstu viku“ sagði hún og pokarnir sem hún fann til og bjútí- boxið bíða núna sem sorgleg áminning í anddyrinu á Bjarkar- götunni eftir að hún komi og drífi sig austur. Þar var fólkið hennar, fjallið og heiti potturinn, húsið, trén, læk- urinn og gönguferð í rauðu úlp- unni í Birkilaut og stundum aðeins lengra, allt var eins og átti að vera. Það var sama hvar mamma og pabbi byggðu sér heimili; þau vógu hvort annað upp, stórhugur- inn í pabba og meðfæddur hæfi- leiki mömmu til að gera allt smart. Hún hafði mjög næmt auga fyrir því fallega, dekoreraði, og hennar heimili báru þess merki. Snemma missti hún systur sína Hildi og börn hennar elskaði hún sem sín eigin og samband þeirra Guðrúnar Hrundar, dóttur Hild- ar, var sterkt allt til loka. Ekkert annað kom til greina en amma Gu flytti til okkar þegar afi féll frá 1972 og henni búið fallegt heimili þar sem hún bjó svo hjá mömmu og pabba í 27 ár. Mamma hugsaði vel um heils- una alla tíð, var í stofnhópi leikfimi Jane Fonda á sínum tíma. Síðan jóga, sund, göngur og vildi hún helst aldrei taka lyf nema í neyð, hugaði vel að mataræði en allt kom fyrir ekki; hún fékk blóð- tappa 2002 og missti málið en náði því að einhverju leyti til baka, en fyrir var hún mikil tungumála- manneskja, talaði góða ensku og frönsku. Hún hafði húmor fyrir sjálfri sér eins og þegar hún kíkti í búðir á Laugaveginum, þá var henni oft boðin taxfree-kvittun þar sem sumir héldu að hún væri færeysk! Hún tók þessari breyt- ingu af æðruleysi, 2018 fékk hún krabbamein í höfuð og sigraðist á því en nú í vor tók það sig upp aft- ur og þá í hálsi og ekkert varð við ráðið og meðferðin varð henni í raun um megn. Samband Gauta bróður og mömmu var einstakt og fallegt, hann skildi hana best eftir að hún átti erfitt með mál og var gaman að heyra þau tala eins og vindur- inn í eldhúsinu um það sem dreif á daginn. Og var umönnun og hug- ulsemi hans fyrir mömmu engu lík þegar veikindin sögðu til sín. Takk fyrir allt, elsku mamma. Benedikt (Benni). Elsku amma okkar það er rosa- lega erfitt að sætta sig við að þú sért farin frá okkur. Þú varst svo mikið uppáhaldsmanneskjan okk- ar, svo innilega skemmtileg og góð. Við eigum alveg dásamlegar minningar um þig sem við gleym- um aldrei og fylgja okkur að eilífu. Allra bestu minningarnar eru frá Laugarvatni, það var svo gaman að fara með ykkur afa í sveitina. Þið voruð svo dugleg að taka okk- ur barnabörnin með í bústaðinn um páskana þegar við vorum yngri, það var það allra skemmti- legasta við páskafríið þegar þið sóttuð okkur og við fórum og fengum okkur pulsu á leiðinni og áttum svo yndislegar stundir í sveitinni með ykkur. Þú varst líka svo dugleg að bjóða okkur í leik- hús. Okkur þótti svo vænt um allt sem þú gerðir með okkur, svo áhugasöm um allt sem við vorum að gera eins og þegar við æfðum ballett þá mátti alltaf treysta á að þú mættir á sýningar enda varstu okkar helsti aðdáandi. Það sem við eigum eftir að sakna allra mest eru bestu knúsin sem þú gafst okkur alltaf þegar við hittumst. Gleðin og hlýjan var alltaf í kring- um þig, þú varst alltaf svo þakklát og glöð að sjá okkur þegar við komum í heimsókn og það var svo- leiðis alveg fram á síðustu heim- sókn. Jólin voru líka svo yndisleg- ur tími að kíkja á Bjarkargötuna til ykkar, Þorláksmessa, rauði jólakjólinn þinn, heimsóknin frá ykkur á aðfangadag og fallegu skreytingarnar sem þú gafst okk- ur á hverju ári voru það allra besta við jólin. Þú varst svo sterk- ur karakter, skemmtileg og alltaf gaman að vera með þér. Þú varst svo oft að grínast og flissa og sýna okkur hvað þú varst liðug, og þú varst sko ein sú liðugasta! Þegar Sæunn Sara kom í heiminn varstu svo spennt og varst svo dugleg að sinna henni. Þú hringdir reglulega til að heyra hvernig hún hefði það og við erum svo þakklát fyrir að Sæunn hafi þekkt elsku ömmu löngu eða „löngu“ eins og Sæunn segir þegar hún sér mynd af þér. Það verður erfitt að vera á Laug- arvatni án þín en við munum heiðra minningu þína með því að vera þarna sem oftast að njóta lífsins því þetta var allra besti staðurinn þinn. Við verðum dug- legar að gefa afa tvöföld knús og passa upp á hann. Elsku amma okkar, við getum ekki útskýrt hversu mikið við söknum þín og hversu erfitt það er að sætta sig við það að þú sért farin en við munum geyma allar minningarn- ar með þér á góðum stað í hjart- anu. Blómin ungu elska þig eins og fyrr í bernsku minni, spjátrungsleg þau sperra sig og spegla sig í skuggsjá þinni. (Jóhann Sigurjónsson) Jódís Dagný Vilhjálmsdóttir og Sara Björk Vilhjálmsdóttir. Hún Jódís var alla tíð eins og systir okkar enda gat skyldleikinn vart verið meiri – feður okkar voru bræður og mæður okkar tví- burar. Sá elsti okkar fæddist sama árið og Jódís og saman vor- um við alin upp í fjölskylduhúsinu á Öldugötu 25a í Reykjavík í stórum hópi skyldmenna ásamt afa og ömmu. Jódís var alla tíð einstaklega glaðlynd, kát og skemmtileg manneskja, mikill húmoristi og hafði fágaðan smekk en hann kom fram í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Vafalaust hefur dvöl í Frakklandi á yngri árum haft áhrif á hana að ýmsu leyti. Heim- ilið og sumarbústaður þeirra hjóna bera þess merki og við ef- umst ekki um að hún hefur átt þátt í velgengni og vinsældum JP- innréttinga þar sem hún starfaði með eiginmanni sínum, Jóni Pét- urssyni, að hönnun og framleiðslu innréttinga um árabil. Þau hjón eignuðust snemma landskika í Laugardal austan Laugarvatns þar sem tekið var til við skógrækt og rösklega gengið til verks. Það lýsir vel stórhug þeirra að þótt plönturnar væru smáar, sem gróðursettar voru í byrjun, hét skikinn fljótlega Stóruskógar. Hann stendur sann- arlega undir nafni í dag. Þar undi hún sér vel og ekki síst nú seinni árin. Það var henni mikið kapps- mál eftir að veikindin fóru að hrjá hana að komast í sveitina – kom- ast í heita pottinn, slaka á og njóta náttúrunnar. Laugardalurinn var henni hjartkær allt frá yngri árum en þar dvöldum við öll sumur í sumarbústað sem foreldrar henn- ar og okkar áttu sameiginlega. Við kveðjum í dag með miklum söknuði og sorg góðan vin og ætt- ingja og sendum aðstandendum hennar okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Megi minningin um Jobbu frænku lengi vara. Þorgeir, Eyþór, Hildur, Hilmar og Sólveig Baldurs- börn og fjölskyldur. Elsku Jobba besta frænka. Sorgin er mikil en minningarnar um góðu, hlýju og skemmtilegu frænku mína ylja. Jobba var nefnilega ekki bara frænka hans pabba heldur líka ein af bestu vin- konum mömmu, þannig að sam- gangurinn var mikill. Þegar ég var lítil var Jobba vön að klípa mig fast í stóru kinnarnar mínar og tala við mig barnamál. Þetta gerði hún áfram þótt ég yrði unglingur og fullorðin, sem mér fannst alltaf jafn dásamlegt. Það var alltaf svo notalegt að koma til þeirra hjóna hvort sem var heim eða í sveitina. Við vorum vön að kíkja við á Bjarkargötunni þegar eitthvað var um að vera í bænum til að kasta kveðju á Jobbu bestu frænku. Ég man sér- staklega eftir einu skipti þegar við hjóluðum í bæinn, komum við á Bjarkargötunni og ætluðum að fá að geyma hjólin okkar þar. Það var enginn heima þegar við kom- um en við ákváðum að fara samt með hjólin inn í garð. Á meðan við komum hjólunum fyrir í garðinum komu Jobba og Jón labbandi heim. Jobba grimm á svip út af pakkinu sem væri að laumast í garðinum og labbaði mjög rösk- lega í áttina til okkar tilbúin að húðskamma okkur. Þegar hún sá hver þetta var breyttist svipurinn snarlega í sólskinsbros og hún kleip okkur mæðgur allar þétt- ingsfast í kinnarnar og bauð okk- ur inn. Svona var hún Jobba ein- mitt, ákveðin og fylgin sér en samt svo ljúf og góð og alltaf stutt í húmorinn. Það eru til svo margar skemmtilegar sögur frá því að við Gauti vorum lítil og það þurfti oft ekki nema eitt orð til þess að koma mömmu, Jobbu, mér og Gauta í hláturskast – gæruskinn er gott dæmi um það. Elsku Jón, Gauti, Benni, Villi og fjölskylda, um leið og við kveðj- um Jobbu með þökk fyrir sam- fylgdina sendum við ykkur öllum innilegar samúðarkveðjur. Hanna María og fjölskylda. Hún bar nafn ömmu okkar og ættmóður, Jódísar Ámundadótt- ur. Við ólumst upp saman, fjórar fjölskyldur á þremur hæðum og risi á Öldugötu 25A, húsi sem afi Þorgeir byggði „í hjáverkum“ frá verkamannavinnu á Eyrinni. Systurnar voru þrjár og áttu sam- tals fjórtán börn sem óhætt er að segja að hafi átt í sameiningu þrjár mæður, slíkt var systralag- ið. Mynd Jódísar Vilhjálms er sterk í frændsystkinahópnum, svo full af fjöri og gáska sem ein- kenndi jafnt barnið, unglinginn og hina fullorðnu konu. Það voru for- réttindi að njóta samvista við þessa skemmtilegu frænku í upp- vextinum, þótt hún ætti líka til að vera stríðin, eiginleiki sem hún tók í arf frá föður sínum, Villa, sem var æringi. Eitt sinn, á þeim árum þegar maður var svo sjálf- meðvitaður að mátti engu muna að maður næði að setja annan fót- inn fram fyrir hinn, rákumst við saman í Lækjargötunni á móts við tröppurnar sem liggja upp að Menntaskólanum. Ég var að hefja skólagöngu, en Jódís komin á steypirinn að frumburðinum, Villa yngri. Og gerir sér nú lítið fyrir, tekur mig undir arminn og leiðir mig upp skólatröppurnar fyrir allra augum, áður en hún sprakk og lét mig lausan. Ég held að ekki sé á neinn hall- að þótt fullyrt sé að Jódís hafi ver- ið með glæsilegri kvenkostum sunnan heiða á sjöunda áratug síðustu aldar. Hnossið hreppti ungur og vaskur húsgagnasmiður, Jón Pétursson, og saman byggðu þau upp fyrirtækið JP-innrétting- ar sem varð fljótlega leiðandi á sínu sviði á Íslandi. En til hliðar við veröldina í bænum skópu þau aðra austur á Laugarvatni, þar sem foreldrar Jódísar, Gunna og Villi, áttu í fé- lagi við Baldur og Siggu (en Bald- ur var bróðir Villa og Sigga tví- burasystir Gunnu) lítinn kofa á lófastórum bletti. Þarna hafðist stórfjölskyldan við á sumrum og í endurminningunni dansar enda- laus röð af sólardögum og gospill- ur sem fóru langt með að breyta bæjarlæknum í sódastrím. Í kall- fjarlægð frá þeim sælureit föstn- uðu ungu hjónin sér skika sem ljósmyndir votta að hafi verið mói, en þau breyttu í stærðarinnar skóg. Þar í rjóðri byggðu þau bú- stað sem óx og dafnaði eftir ein- hverju kórallögmáli þar sem allt bar hugkvæmni og handbragði húsráðenda fagurt vitni. Hér fundu þau sköpunargleði sinni farveg í stækkandi hópi niðja vet- ur sumar vor og haust. En sorgin gleymir engum og fyrir átján árum kenndi Jódís heilsubrests sem fór langt með að svipta hana málinu, henni sem aldrei var orðs vant og átti þessa fallegu rödd. En fjarri því að láta hugfallast tókst henni með harð- fylgi að heimta aftur það sem þurfti til að lifa sem því næst venjulegu lífi og halda uppi sam- skiptum við ástvini, þótt auðvitað væri ekki nema bergmál af því sem áður var. En svo á hinn bóginn, úr hverju eru persónutöfrar? Þar gerir útlit litla stoð, hvað þá staða eða stétt eða yfir höfuð nokkuð sem nöfn- um tjáir að nefna. Það er eitthvað sem er fyrir utan og ofan öll orð og Jódís átti í svo ríkum mæli. Það var eins og fylgdi henni birta, það birti yfir um leið og hún birtist. Og ljósið fylgdi henni allt til loka. „Það syrtir að er sumir kveðja,“ segir í ljóði Davíðs. En er ekki um leið eins og birti yfir ævi hins liðna, næstum eins og á leiksviði þegar leikararnir stíga fram í lok- in, lausir við gervin og hver og einn uppsker eftir sinni frammi- stöðu. Og gleðileikurinn um Jódísi Vil- hjálmsdóttur mun lengi í minnum hafður. Pétur Gunnarsson. Elsku Jódís, mín uppáhalds- frænka! Í barnaskap mínum fannst mér að hún yrði eilíf. Hún sem var alltaf svo hress og svo dásamlega skemmtileg. Ég á svo margar góðar minn- ingar af Sunnuflötinni. Það var alltaf svo spennandi og gaman að fara upp til Jódísar og þeirra allra. Það að vera boðið með í sveitina var náttúrulega toppurinn á til- verunni! Þegar ég hugsa um Jódísi þá detta mér í hug orðin „lifandi“ og „björt“. Jódís var alltaf svo „lif- andi“ og létt í lund. Ég minnist hennar með bros á vör enda var hún óskaplega skemmtileg og gott að vera í nærveru hennar. Mikið er ég þakklát að hafa get- að kvatt þig á spítalanum og sagt þér að þú værir uppáhaldsfrænka mín. Þín frænka Hildur Georgsdóttir. Elsku amma. Hjartahlýja, ynd- islega, besta vinkona og fyrir- myndin okkar. Allar okkar minn- ingar af þér eru yndislegar og erum við svo þakklát fyrir þær all- ar. Það er erfitt að sætta sig við það að við fáum ekki að skapa fleiri minningar með þér. Amma okkar, sem alltaf var svo jákvæð, hlý, í góðu skapi og með góða nær- veru, er núna farin frá okkur og við söknum hennar sárt. Mikið af okkar minningum er úr sveitinni okkar á Laugarvatni en við vörðum óteljandi stundum þar saman. Það verður sorglegt að sjá ekki ömmu sitjandi úti á palli í sveitinni á sólríkum degi með upp- litaða rauða sólhattinn sinn og brosandi úti að eyrum. Við erum þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum saman og munum við halda áfram að eiga góðar stundir í sveitinni og erum við viss um að þú fylgist með okkur og verður áfram hjá okkur. Alltaf þegar maður fór í heim- sókn til ömmu þá tók hún fast ut- an um okkur og kyssti okkur þeg- ar við komum og fórum. Við áttum saman gott „spjall spjall“ og amma sannfærði okkur um að við gætum gert allt sem við vildum með því að segja „sóó“ þegar við efuðumst. Amma lagði áherslu á öll lýsingarorð með því að bæta „ægilega“ fyrir framan. Þannig sýndi hún virkilegan áhuga á öllu sem fólkið hennar gerði. Það var einmitt þannig sem amma leit á lífið, lífið var ægilega gott að hennar mati. Amma lét alltaf í ljós hvað henni þótti vænt um okkur og hvíslaði því nokkrum sinnum að okkur í hverri heimsókn. Amma hvatti okkur alltaf til þess að lifa drauma okkar og sinna áhuga- málum okkar, sama hvað við tók- um okkur fyrir hendur var hún alltaf stolt af okkur. Við erum svo þakklát fyrir það að amma hafi séð okkur elta draumana okkar og fylgjast með okkur vaxa úr grasi. Það er gott að vita að sama hvað við tökum okkur fyrir hend- ur í framtíðinni þá mun amma alltaf fylgjast með okkur og vera stolt af okkur. Við erum svo stolt barnabörn að hafa átt ömmu Jóu og reynum við eftir fremsta megni að fylgja hennar lífsgildum og gera hana áfram stolta af okk- ur. Amma nýtti hvert tækifæri til þess að koma allri fjölskyldunni saman. Hún var dugleg að halda boð við minnstu tilefni og var yf- irleitt öllu tjaldað til. Hún vildi helst ekki vera í sviðsljósinu og vildi frekar láta allt snúast um börnin og barnabörnin. Þannig var hún amma, lifði fyrir alla sína nánustu og vann statt og stöðugt að því að láta okkur líða vel og vera hamingjusöm. Amma náði vel til allra sama á hvaða aldri þau voru. Hún og Elmar Breki langömmubarnið hennar hafa átt svo góðar stundir saman og þau áttu sitt yndislega samband og mun minningin um ömmu löngulöngu lifa áfram í gegnum Elmar Breka og öll kom- andi langömmubörn. Hvert sem við förum vitum við að amma verður í hjarta okkar og munum við halda minningu henn- ar lifandi í gegnum allt sem við gerum. Okkur þykir svo vænt um þig elsku amma Jóa, þú ert og verður alltaf besta vinkona okkar. Við trúum því að þú sért á betri stað núna og hafir hitt allt fólkið þitt aftur, brosir á himnum og fylgist með okkur með stolt í hjarta. Þín ömmubörn, Sóley Ósk Benediktsdóttir Berglind Ýr Benediktsdóttir Jón Steinar Benediktsson. Í fáum orðum langar mig að minnast hennar Jobbu frænku. Hún var mikill fagurkeri, einstak- lega glæsileg, bar sig vel og var örugg í fasi þannig að eftir henni var tekið. Hún var glettin og skemmtileg, með góðan húmor og hafði gaman af því að fíflast í góðra vina hópi. Ég var svo hepp- Jódís Dagný Vilhjálmsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.