Morgunblaðið - 13.08.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 13.08.2021, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 ✝ Reynir Berg- mann Skafta- son fæddist á Ak- ureyri 13. júlí 1941. Hann lést 19. júlí 2021 á bráða- móttöku LSH í Fossvogi. For- eldrar hans voru Guðrún Árnadóttir frá Akureyri, f. 23.6. 1912. d. 27.8. 2001, og Gunnar Skapti Kristjánsson frá Sigríð- arstöðum í Ljósavatnsskarði, f. 10.2. 1912, d. 23.9. 1990. Stjúp- faðir Reynis var Snorri Jónsson, f. 25.2. 1910, d. 25.1. 1990. Bræður Reynis sammæðra voru Óli Fossberg Guðmunds- son, f. 13.5. 1936, d. 18.9. 2010, giftur Báru Guðmundsdóttur, f. 3.9. 1936, d. 24.7. 2019, og Há- isdóttir, f. 16.8. 1963, gift Stef- áni Péturssyni, f. 17.11. 1968, þau eiga tvær dætur og þrjú barnabörn. 2) Guðrún Berg- mann Reynisdóttir, f. 6.8. 1965. 3) Karl Bergmann Reynisson, f. 28.9. 1967, giftur Kristbjörgu Viðarsdóttur, f. 1.5. 1979, þau eiga fimm börn og fjögur barnabörn. 4) Reynir Bergmann Reynisson, f. 3.12. 1980, maki Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir, f. 14.1. 1993, þau eiga þrjár dæt- ur. Reynir fæddist á Akureyri og ólst þar upp fram að 15 ára aldri en flutti þá til Reykjavíkur með fjölskyldu sinni. Reynir tók sín fyrstu skref á vinnumark- aðnum sem messagutti og svo síðar háseti á togurum. Síðan tók við vinna á þungavinnu- vélum og vann hann lengst hjá Veli. Seinustu árin á vinnu- markaðnum starfaði Reynir hjá Ölgerðinni Agli Skallagríms- syni. Reynir var mikill áhuga- maður um tónlist. Útför Reynis fór fram í kyrr- þey að hans ósk. kon Eiríksson, f. 13.10. 1942, d. 26.7. 1982. Systur Reyn- is samfeðra eru Guðný Fischer, f. 30.5. 1945, gift Frank Fischer, og Sveinbjörg Gunn- arsdóttir, f. 19.9. 1950, gift Heiðari Breiðfjörð. Fóst- ursystir Reynis er Hulda Yodice, f. 14.9. 1938, gift John Yodice. Reynir kvæntist 1.2. 1964 Jó- hönnu Cronin, f. 23. mars 1945, foreldrar hennar voru Anna Cronin úr Reykjavík, f. 7. apríl 1924, d. 12.8. 1996, og James Cronin frá Kilmaloc á Írlandi, f. 8.11. 1919, d. 8.6. 1988. Börn Reynis og Jóhönnu eru. 1) Anna Bergmann Reyn- Elsku pabbi minn, nú ertu fallinn frá og eftir situr stórt tómarúm í hjarta mér. Ég hugsa um allar minningarnar og stund- irnar sem við áttum saman og ég er svo þakklát fyrir. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur systkinin þegar við þurft- um á að halda og studdir okkur í einu og öllu. Við pabbi áttum margt sameiginlegt og þar ber helst að nefna áhuga á tónlist. Við gátum eytt miklum tíma í að hlusta á klassíska tóna með Frank Sinatra og Bítlunum. En þegar ég hugsa til baka er sennilega það sem tengdi okkur mest áhugi á fólki, við gátum gleymt okkur í löngum samræð- um yfir góðum kaffibolla eða tveim. Eftir að ég veiktist og flutti á Mörkina varstu duglegur að koma og heimsækja mig og átt- um við svo margar gæðastundir. Þess má til gamans geta að þeg- ar þú komst í heimsókn varstu iðulega búinn að heimsækja alla á ganginum líka. Hann pabbi var nefnilega með hjarta úr gulli og vildi allt fyrir alla gera. Síðasta stundin sem við áttum saman í áttræðisafmælinu þínu hinn 13. júlí síðastliðinn er mér svo dýrmæt. Við vorum bæði hress og glöð og það var ynd- islegt að geta sungið fyrir þig afmælissönginn. Pabbi, þú varst alveg einstök manneskja og það er svo mikill missir að þér. Ég kveð þig með trega í hjarta með þessum orðum sem maðurinn minn orti: Enginn veit og enginn sér hver leiðin er né hvert mann ber því lífsins braut er þyrnum stráð þótt stundum sé hún spott og háð. Enginn veit og enginn sér hvar endinn er né hvenær ber og enginn vill víst vita það hvenær tími er að leggja af stað (S. Pétursson) Hvíldu í friði elsku pabbi minn. Þín Anna Bergmann. Hér sit ég fyrir framan tölv- una og það streyma í gegnum hugann ómetanlegar hlýjar og fallegar minningar um elsku pabba minn. Verð ævinlega þakklát fyrir að hafa getað verið honum til halds og trausts þá fimm mánuði sem hann var veikur og átt ómetanlegar stundir með honum. Pabbi elskaði að hlusta á músík, horfa á góðar bíómynd- ir, segja skemmtilegar sögur og læða sínum gullmolum og svarta húmor inn á milli. Pabbi var stoltur af fjölskyldunni sinni og var mikill dýravinur. Dugnaður hans, samviskusemi og snyrtimennskan bar af. Pabbi átti alltaf flottustu græj- urnar og var duglegur að monta sig af þeim og gleyma sér með heyrnartólin á eyrun- um og njóta tónlistarinnar í botn. Allt sem hann keypti varð helst að vera það flottasta eins og sjónvarp, bílar og annað; allt varð að vera það besta fyrir fjölskylduna hans. Pabbi var alla sína ævi mikill vinnuþjark- ur, duglegur og samviskusamur enda alltaf vel liðinn í vinnu. Hann var mikið að heiman að vinna úti á landi, svo við sáum ekki mikið af honum á yngri ár- um, en mamma stóð þá sína vakt og hélt utan um fjölskyld- una okkar. Stundum fékk ég að fara með honum út á land þeg- ar hann var að vinna og þá var hann stoltur að sýna mér stóru vinnuvélarnar sem hann vann á. Við áttum svo sannarlega okkar stundir saman, við fórum ansi oft saman í bíó og á rúnt- inn og bara öll samtölin sem við áttum um lífið og tilveruna enda bæði alltaf með hugann á fullu. Ég er þakklát fyrir svo margt sem pabbi kenndi mér eins og að vera ávallt réttsýn, heiðarleg, góð manneskja og bera alltaf virðingu fyrir náunganum og ganga ekki að neinu sem sjálfsögðum hlut í lífinu. Ég er ávallt stolt af því að vera svo lík pabba á svo mörgum sviðum. Fjölskyldan er ómetanlega þakklát fyrir að fengið að fagna áttræðisafmælinu hans pabba með honum hinn 13. júlí síðast- liðinn. Pabbi var mjög glaður þennan dag og vorum við öll samankomin að gleðjast með honum. Við verðum ævinlega þakklát fyrir þessa samveru- stund sem við áttum og mun hún lifa í hjörtum okkar. Ég hvíslaði í eyrað á pabba rétt áður en hann kvaddi að ég skyldi passa upp á mömmu eins vel og ég gæti. Tómarúmið hennar mömmu er stórt, að vera búin að missa lífsförunautinn sinn til 56 ára, sem hún elskaði svo mikið og vildi allt gera fyrir. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að faðma pabba og halda í höndina á honum þegar hann kvaddi, horfa á fallega andlitið hans verða friðsælt og laust við allar þjáningar. Elsku pabbi minn, hjarta mitt er brotið og ég sakna þín óendanlega. Eitt veit ég að einn daginn mun ég geta brosað og glaðst yfir góðum minningum. Sofðu rótt elsku pabbi minn, takk fyrir ferðalagið okkar sam- an. Hafðu þökk fyrir allt og allt, guð veri með þér í sumarlandinu góða elsku engillinn minn, við sjáumst síðar. Miklar tilfinningar þér fylgdu, væntumþykja þín svo tær. Þú varst stoð mín gegnum líf- ið, vinur minn í kærleika sem neyð. Ást þín var skilyrðislaus, rétt- lætiskenndin þín svo heil. Þín dóttir, Guðrún (Gunna). Elsku afi, nú höfum við kvatt þig í hinsta sinn og okkur systur langar að skrifa nokkur falleg minningarorð um þig. Það fyrsta sem kemur upp í hugann er þakklæti fyrir allar þær ynd- islegu stundir sem við áttum með þér í gegnum árin. Við vorum svo lánsamar að búa alltaf í næstu götu við ykk- ur ömmu og því mikill umgang- ur. Við vorum alltaf velkomnar til ykkar og þú tókst alltaf glað- ur á móti okkur með þínu besta faðmlagi. Þú kunnir ógrynni af skemmtilegum sögum og það var svo gaman að hlusta á þær og heyra um öll ævintýrin sem þú hafðir lent í á þínum yngri árum. Afi var líka alltaf til staðar þegar á þurfti að halda og vildi allt fyrir alla gera. Hann var með stórt hjarta og sá aðeins það fallega og góða í öllum. Það er vel við hæfi að enda þetta á ljóði sem samið var til afa á sjö- tugsafmælinu hans: Afi, við okkur ert svo ákaflega góður þú getur alla glaða gert og einstaklega fróður. Hann sagði sögur um fjarlæg lönd um margt sem mátti hann þola og laumaði oft í litla hönd ljúffengum konfektmola. Elsku besti afi minn þú alltaf tíma hefur gleði, yl og koss á kinn okkur systrum gefur. (S. Pétursson) Þínar María Ósk og Hanna Karen. Reynir Bergmann Skaftason ✝ Áshildur Öfjörð Magn- úsdóttir fæddist í Skógsnesi í Flóa 29. september 1930. Hún lést á Heil- brigðisstofuninni á Sauðárkróki 31. júlí 2021. Foreldrar hennar voru hjónin Magnús Þórarins- son Öfjörð, f. 21. júlí 1888, d. 24. apr- íl 1958, og Þórdís Ragnheiður Þorkelsdóttir, f. 10. mars 1892, d. 15. apríl 1950. Áshildur var yngst sinna systkina en þau eru: Þórarinn, f. 1921, d. 1937; Guðný, f. 1922, d. 1937; Margrét, f. 1923, d. 2004; stúlka óskírð, f. 1924, d. 1924; Ragnheiður, f. 1924, d. 1996; Skúli, f. 1928, d. 2007. Fram á unglingsár ólst Ás- hildur upp í Skógsnesi en þá flutti fjölskyldan í Gaulverjabæ ofar í Flóanum. Árið 1955 giftist hún Valberg maí 1973, kona hans er Árný Anna Svavarsdóttir. Barnabörnin eru 16, barna- barnabörnin 17 og barnabarna- barnabörnin 12. Áshildur flutti að Melbreið í Fljótum 1955, þar bjuggu þau Valberg ásamt foreldrum hans til ársins 1963 er þau fluttu að Nýrækt í sömu sveit. Árið 1972 flytja þau að Sólgörðum og 1992 fluttu þau á Sauðárkrók. Líf Áshildar var samofið skólastarfi í Fljótum, þar sem Valberg var kennari og skóla- stjóri. Hún var listræn og málaði mikið, kenndi teikningu í Sól- garðaskóla. Áshildur var fé- lagslynd, hún var lengi í sókn- arnefnd Barðskirkju og vann margvísleg störf í þágu kirkj- unnar. Hún var kvenfélagskona og fararstjóri í orlofsferðum skagfirskra kvenna um árabil. Frá árinu 2003 bjó Áshildur á Selfossi með Eiríki K. Eiríkssyni frá Gafli í Flóa, f. 25. mars 1926, d. 12. júní 2010. Útför Áshildar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 13. ágúst 2021, klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni: https://tinyurl.com/umuju89k Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Hannessyni frá Melbreið í Fljótum, f. 14. mars 1922, d. 17. september 1993. Þau eignuðust sam- an sex börn, en Ás- hildur átti tvö börn fyrir: 1) Þórdís Ragnheiður Eð- valdsdóttir, f. 30. maí 1950, maður hennar er Konráð Óli Fjeldsted. 2) Bergur Ketilsson, f. 27. október 1951, kona hans er Gunnur Sigdís Gunnarsdóttir. 3) Rögn- valdur Sigurður, f. 4. febrúar 1956, kona hans Hrönn Gunn- arsdóttir. 4) Aðalbjörg Jóna, f. 4. júní 1957, hennar maður er Örn Þorkelsson. 5) Valdís Sigrún, f. 29. september 1958, hennar maður er Jóhannes Snorrason. 6) Hannes, f. 24. júlí 1962, kona hans er Flor Maria Flores Cas- tagnoli. 7) Magnús Öfjörð, f. 6. október 1964, d. 31. október 1982. 8) Snæbjörn Freyr, f. 25. Skagafjörður blasti við út um gluggann á herbergi mömmu, klukkan um sjö að morgni 31. ágúst, spegilsléttur og fagur með eyjarnar í fjarska. Mamma var loksins sofnuð eftir erfitt lokastríð við biluð lungu og þreyttan líkama. Í huga mér koma upp huggunarrík orð úr Ritningunni þar sem segir í 15. kafla fyrra Korintubréfs:51: Sjá, ég segi yður leyndardóm: Vér munum ekki allir sofna, en allir munum vér umbreytast í einni svipan, á einu augabragði, við hinn síðasta lúður. Því lúðurinn mun gjalla og þá munu hinir dauðu upp rísa óforgengilegir, og vér munum umbreytast. Þetta forgengilega á að íklæðast óforgengileikanum og þetta dauðlega að íklæðast ódauðleik- anum. En þegar hið forgengi- lega íklæðist óforgengileikanum og hið dauðlega ódauðleikanum, þá mun rætast orð það, sem rit- að er: Dauðinn er uppsvelgdur í sigur. Dauðinn er aldrei gleðiefni, þó gott sé að sjúkir og aldnir fái hvíld. Okkur er ætlað miklu meira og Kristur kom á sínum tíma til að upplýsa mannkynið um það. Hann sýndi okkur hvað raunverulegur kærleikur snýst um og gaf sjálfan sig í dauðann svo við mættum sjá sigur hans og mátt í upprisunni. Hann sagðist koma aftur þegar hann hefði lokið undirbúningsverki sínu á himnum. Þessu trúi ég einlæglega og það gefur von og styrk. Þegar Jesús kemur í mætti og dýrð til að sækja sitt fólk þá verða líkamir upprisinna ungir, heilbrigðir og fullkomnir eins og sköpunin var í upphafi. Enginn hefur getað útskýrt hvað eða hvers vegna fiðrilda- lirfan umbreytist í ofurfagurt fiðrildi, enginn hefur getað sagt hvernig slíkt gat þróast, það er leyndardómur. Aðeins Guð get- ur sýnt og skýrt út í fyllingu tímans hvernig dánir lifna og öðlast nýjan líkama, óforgengi- legan. Ég treysti almáttugum Guði fyrir móður minni og hlakka til að sjá hana brosandi, heilbrigða og glaða á stað þar sem dauðinn er ekki lengur til, sorg og afskræming er horfin. Þar sem umhverfið er jafnvel þúsund sinnum fegurra en fjörð- urinn þennan morgun, þegar hún kvaddi okkur. Þangað til megi hún sofa og hvílast eins og heilög Ritning segir um dauð- ann. Þökk fyrir að vera þraut- seig og glöð, þrátt fyrir stundum erfitt hlutverk. Þökk fyrir húm- orinn, allt grúskið, fræðsluna og ljóðalesturinn. Mamma var náma af fróðleik og hefði orðið merkilegur fræðimaður af hærri gráðu hefði tækifæri boðist í menntun. Hún var líka með list- ræna hönd og margir eiga fal- legar myndir eftir hana. Mamma var sérstök og ógleymanleg þeim sem kynntust henni. Hug- ur hennar var frjór alveg til loka, ef hún gat setið og spjallað gat hún ráðið krossgátur á met- tíma, svarað ættfræðispurning- um eða sagt brandara. Þannig var mamma, litrík og skemmti- leg. Eftir því sem við eldumst sjáum við foreldra okkar í öðru ljósi og ég dáist að móður sem fæddi mig fyrir 71 ári, fátæk sveitastúlka, sem hafði ekki þann stuðning sem einstæðar mæður eiga kost á nú. Þökk sé henni. Megi Guð blessa og styrkja alla ástvini og afkomend- ur hennar. Ég vil sérstaklega þakka öllu starfsfólki Sjúkrahússins á Sauðárkróki sem hefur hjúkrað og annast hana síðastliðin ár. Þórdís Ragnheiður Malmquist. Heimavistin í barnaskólanum á Ketilási var á heimili Ásu og Valla á Nýrækt þegar ég var í skóla þar. Nú er hún Ása horfin, eins og hann og það er svo ótrú- legt. Jafn full af lífskrafti, gleði og hlátri sem hún var. Áhuga- söm um allt milli himins og jarð- ar og já á framlífshnetti. Í dag á fæðingardegi pabba, 13. ágúst, er hún borin til grafar. Ása var óþreytandi að segja okkur frá og fræða, frábær kennari í teikn- ingu eins og þá hét og í afleys- ingum í íslensku eða öðrum fög- um. Að hlusta á hana lesa ljóð eða sögur var svo eftirminnilegt að enn í dag hafa aðrir ekki toppað það í mín eyru. Hún var gamansöm, sagði skemmtilega frá og hló sínum dillandi hlátri milli þátta sem hreif alla með. Spjallaði við okkur og hug- hreysti þegar hið óvænta varð ógnvekjandi eins og oft vill verða á bilinu 9-14 ára. Hló og stríddi en umfram allt stóð með okkur gegnum súrt og sætt. Setti upp leikrit með okkur krökkunum í skólanum, þá var sko hlegið. Við Alla vinkona og dóttir Ásu vorum einmitt að rifja það upp í sumar og þá var aftur hlegið. Hún gat líka alveg orðið fokvond en stundum ástæða til og hún setti okkur mörk. Ása varð vinkona gegnum líf- ið. Síðast þegar ég heyrði í henni símleiðis var líkamlega af henni dregið en andinn var skýr. Ég er þakklát fyrir vináttu mína við börnin hennar og sagði henni það. Við vorum báðar þakklátar fyrir allt og allt. Þakk- lætið er móðir allra góðra til- finninga og þær lifa áfram með minningu Áshildar fóstru minn- ar og áhrifavalds. Samúðarkveðjur til ykkar elsku vinir og fjölskyldna ykkar. Vilborg Zoëga Traustadóttir. Líklega er það dálítið sérstakt að hljóta nafngift eftir landsvæði en mamma sagði mér að Magn- ús afa hafi dreymt Áshildarmýri og þar með var komið nafnið á yngstu dótturina. Það var alltaf gaman þegar Ása móðursystir kom að Skógs- nesi svo sprellfjörug og til í að atast með okkur krökkunum. Í eitt skipti í maí fórum við fram á mýrina til að skoða álftahreiður sem við vissum af í Hólmaflóð- inu. Það var sólarlaust og frem- ur hráslagalegt veður en Ása vildi kanna varpið, gerði sér lítið fyrir, smellti sér úr utanyfirföt- unum og synti út í hólmann á baksundi. Þá kom hreiðureig- andinn með miklu vængjablaki á sundi og hugðist ráðast að henni en Ása flýði í land og uppskar aðdáun okkar fyrir tiltækið. Ása hafði listrænan hug og hönd og fór snemma að teikna, mála og semja lög og var bók- og ljóðelsk. Hún teiknaði á það blað sem hendi var næst og hestar voru hennar uppáhaldsmynd- efni. Ekki þurfti nema vax- eða klessuliti og skrúfjárn til að koma léttstígum fáki töltandi eftir grundu í skini mánans. Svo kynntist hún honum Valla og flutti norður í Fljót að Mel- breið. Ég held að systrunum sem eftir urðu fyrir sunnan, hafi næstum fundist að Ása væri að flytja á norðurpólinn svo óra- langt var í Fljótin og á þessum tíma voru oft mikil snjóalög og erfitt með allar samgöngur. En hún kunni fljótt að meta skag- firsku fjöllin og var ekki í vand- ræðum með að kynnast fólki þar nyrðra. Ég kom til hennar bæði að Nýrækt og Sólgörðum þar sem Valli var skólastjóri. Þegar ég fór að hanga á Kan- arí kynntist ég fyrrverandi ná- granna Ásu frá Gaulverjabæjar- árunum – honum Vigni í Vöðlakoti sem var nokkrum ár- um yngri en Ása og þá um ferm- ingaraldur. Jú, hann mundi nú vel eftir henni Ásu. „Mér fannst hún alltaf svo falleg og við fórum saman á skauta á (Gaulverja-) Bæjarvatni,“ sagði hann með stjörnur í augunum. Seinna sýndi ég Vigni dagsgamlar myndir af Ásu þar sem verið var að skíra afkomanda hennar norður á Sauðárkróki. Ég rétti Vigni símann minn. Hann velti myndinni fyrir sér og sagði svo: „Er þetta Ása? Ég sé það svo sem á svipnum,“ bætti hann við. Þessa mynd hefði ég líklega ekki átt að sýna Vigni því að þarna hrundi örugglega myndin af ljóshærðu skautadrottningunni á svanavatninu úr huga hans. Ég hafði alltaf samband við Ásu eftir að móðir mín féll frá og í síðasta skipti núna seinnipart- inn í vetur töluðum við saman í símann í hálfa aðra klukkustund. Hún sagði mér þá frá nýlegum draumi sínum þess efnis að hún var stödd á æskuheimili sínu – Skógsnesi. Þóttist hún þar koma af engjum að túnhliðinu sem löngu er horfið. Sagðist hún þá sjá hvar stærðar gimsteinn kem- ur fljúgandi austan frá Heklu og skellur hann niður í túnið. Í draumnum kom fram að þetta væri „minningarsteinn.“ Ég þakka Ásu góð kynni og votta öllu hennar fólki samúð mína. Þórdís Kristjánsdóttir. Áshildur Öfjörð Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.