Morgunblaðið - 13.08.2021, Side 22

Morgunblaðið - 13.08.2021, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Þörungaverksmiðjunnar hf. verður haldinn föstudaginn 20. ágúst 2021 kl. 13.00 á skrifstofu félagsins, Karlsey, 380 Reykhólum. Dagskrá: Aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins. thorverk.is Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi Samfélagshús Opin vinnustofa kl. 9-12.30, botsía kl. 10- 11. Bingó, spjaldið kostar 250 kr., spjöld seld frá kl. 13, spilað á milli kl. 13.30-14.30. Leir ogTye dye - opin smiðja fyrir alla. Kaffi kl. 14.30- 15.20. Nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu eða í síma 411-2701 og 411-2702. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Árskógar Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12.Tæknilæsi opin kennsla kl. 9-12. Upplestur með Hafsteini kl. 11- 11.30. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Garðabær Jónshús, félags- og íþróttastarf, sími 512-1501. Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45. Pool- hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Áfram skal gæta að handþvotti og smitvörnum. Gjábakki Sumarvinir halda bingó í dag, föstudaginn 13. ágúst kl. 13.30, skemmtilegir vinningar í boði. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Handa- vinna - opin vinnustofa kl. 10.30. Leikfimi með Hönnu kl. 11. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á botsía kl. 10.30 og á sama tíma hittist kaffihópur í handverksstofunni okkar. Eftir hádegi verður spilað æsispennandi bingó kl. 13.30 og svo verður vöfflukaffi beint á eftir kl. 14.30. Verið öll velkomin til okkar á Vitatorg. Hlökkum til að sjá ykkur! Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum frá kl. 9, pútt á flötinni við Skóla- braut kl. 11. Atvinnublað Morgunblaðsins fimmtudaga og laugardaga Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað? Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í síma 569 1100 Allar auglýsingar birtast í Mogganum, ámbl.is og finna.is Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Nýr Hyundai Tucson Plugin Hybrid Premium Erum með flæði af þessum bílum til afhendingar strax. Nokkrir litir í boði á afar hagstæðu verði. Kr. 6.490.000,- Þú verður að vera snöggur ef þú ætlar að ná í einn af þeim ! www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. ✝ Þorleifur Sig- urlásson fædd- ist í Vestmannaeyj- um 16. mars 1930. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 31. júlí 2021. Foreldrar hans voru Sigurlás Þor- leifsson, verkamað- ur í Vestmanna- eyjum, f. 13.8. 1893 á Miðhúsum í Hvolhreppi, d. 27.11. 1980, og Þuríður Vil- helmína Sigurðardóttir hús- móðir, f. 31.10. 1907 í Garðabæ í Vestmannaeyjum, d. 27.11. 1992. Þau bjuggu lengst af á Reynistað í Vestmannaeyjum. Þorleifur var annar í röð 14 al- systkina frá Reynistað. Systkini Þorleifs eru: Eggert (látinn), Kristín (látin), Ásta (látin), Anna (látin) Ólöf, Jóna (látin), Gústaf, Helgi, Reynir (látinn), Erna (látin), Margrét, Geir og Linda. Hann átti eina systur sammæðra, Sigurlaugu (látin). Einnig átti hann þrjú hálfsystk- ini samfeðra: Margréti Freyju, Huldu og Baldur, en þau er öll látin. Þorleifur kvæntist, hinn 23.2. Barnabarnabörn Þorleifs og Aðalheiðar eru níu. Þorleifur bjó alla sína tíð í Vestmannaeyjum. Hann ólst upp í stórum systkinahópi á Reynistað við Vesturveg. Hann fór ungur á sjóinn og stundaði hann fram á miðjan sjöunda áratuginn. Eftir að hann kom í land hóf hann að vinna við pípulagnir hjá mági sínum Adolf Óskarssyni. Hann lauk námi í pípulögnum og öðlaðist síðar meistararéttindi í grein- inni. Hann stofnaði fyrirtækið Nippil í samstarfi við svila sinn, Svavar Steingrímsson, og starf- aði við það þar til hann fór á eftirlaun. Á sjötta áratugnum byggðu Þorleifur og Aðalheiður sér hús að Hólagötu 41 í Vest- mannaeyjum og þar var þeirra heimili í yfir 60 ár. Segja má að húsið og garðurinn hafi verðið þeirra líf og yndi. Fengu hjónin viðurkenningu Vest- mannaeyjabæjar fyrir garðinn. Þorleifur var bridge-spilari og stundaði þá íþrótt til margra ára og vann til margra verðlauna. Hann var mikill íþróttaunnandi og var knatt- spyrna í miklum metum hjá honum. Þorleifur var meðlimur í Frí- múrarareglunni á Íslandi og virkur í starfi í stúkunni Hlé í Vestmannaeyjum. Útför Þorleifs fer fram frá Landakirkju í dag, 13. ágúst 2021, klukkan 13. 1957, Aðalheiði Óskarsdóttur, f. 8.11. 1934 í Vest- mannaeyjum. For- eldrar hennar voru Óskar Ólafsson og Kristín Jónsdóttir. Þorleifur og Að- alheiður eignuðust fimm börn. Þau eru: 1) Sigurlás skólastjóri. f. 15.6. 1957, d. 24.4. 2018, maki Karen Tryggvadóttir stuðningsfulltrúi. Barn hans er Kolbrún og börn þeirra eru Jóna Heiða, Sara, Kristín Erna og Þorleifur. 2) Kristín Ósk grunnskólakennari, f. 2.1. 1959, maki Jens Guðjón Einarsson grunnskólakennari. Dætur þeirra eru Aðalheiður Krist- björg og Kristbjörg María. 3) Kári plötusmiður, f. 17.11. 1962, maki Agnes Einarsdóttir skrifstofustjóri. Börn þeirra eru Einar Kristinn og Andrea. 4) Hafþór grunnskólakennari, f. 7.11. 1967, maki Helga Hauksdóttir lögfræðingur. Dóttir þeirra er Urður. 5) Erna grunnskólakennari, f. 18.7. 1972, maki Valdimar Krist- insson málarameistari. Dóttir þeirra er Vigdís. Hinsta kveðja til tengdaföður En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn, á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín geta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til elsku Öllu tengda- mömmu og fjölskyldunnar allrar. Elsku tengdapabbi: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. (Valdimar Briem) Þín tengdadóttir, Karen. Allt hefur sinn tíma. Í dag heldur elsku pabbi í sína hinstu för. Líf hans hefur verið langt, gott og gjöfult, en þó ekki án sorgar og áfalla. Síðustu árin báru þess merki að líkaminn væri farinn að gefa sig og ef til vill var hann hvíldinni feginn. Það var ekki gassagangurinn og lætin í kringum hann pabba. Hann var mikill rólyndismaður og maður fárra orða. Hann kom úr stórum systkinahópi og þurfti fljótt að hafa fyrir lífnu og vinna fyrir sér. Vinna og dugnaður var honum eðlislægt og féll honum aldrei verk úr hendi. Hann beið ekki eft- ir því að aðrir gerðu hlutina fyrir hann, en gekk sjálfur í verkin. Á 6. áratugnum byggðu hann og mamma framtíðarheimili sitt að Hólagötu 41 í Eyjum. Húsið og garðurinn varð þeirra líf og yndi og ber dugnaði þeirra og eljusemi gott vitni. Flestum sumarstund- um eyddu þau í garðinum, þeim til ánægju og yndisauka. Kominn vel á níræðisaldur, mátti sjá pabba í stiga að hreinsa þakrenn- urnar okkur hinum til lítillar ánægju. Samband pabba og mömmu varði í næstum sjötíu ár og áttu þau 64 ára brúðkaupsafmæli í febrúar síðastliðnum. Þau voru mjög samrýnd og máttu vart af hvort öðru sjá, sérstaklega í seinni tíð. Missir mömmu er mik- ill og syrgir hún nú lífsförunaut sinn. Síðustu ár dvaldi pabbi á hjúkrunarheimilinu Hraunbúð- um í Vestmannaeyjum. Viljum við fjölskyldan þakka starfsfólki Hraunbúða fyrir einstaka umönn- un og góðvild í garð pabba og okk- ar allra. Hvíldu í friði elsku pabbi, Kristín Ósk, Kári, Hafþór og Erna. Elsku afi Lilli okkar. Síðustu daga höfum við yljað okkur við allar þær yndislegu minningar sem við eigum um þig. Þrátt fyrir að vera feiminn og fremur fámáll að Reynistaðasið þá varstu ljúfur og bauðst okkur, ásamt ömmu, alltaf svo velkomin á Hólagötuna og sveipaðir okkur væntumþykju. Það er gott að rifja upp allar góðu stundirnar sem við áttum heima hjá ykkur og í fallega garðinum ykkar sem þið hugsuðuð svo vel um. Svo kom náttúrlega aldrei til greina að fara svangur frá ykkur en þið amma voruð svakalegt teymi í eldhúsinu. Þvílík sam- vinna! Matarboðin standa líka upp úr þar sem við fjölskyldan öll hittumst reglulega og borðuðum dýrindis kræsingar frá ykkur. Svo var spjallað fram eftir kvöldi um pólitík og að sjálfsögðu fót- bolta á meðan yngstu krakkarnir léku sér með bolta í kjallaranum með tilheyrandi látum. Við munum sakna þín sárt en þú munt lifa í hjörtum okkar og við munum hugsa til þín með bros á vör. Þú varst gjöf frá Guði góðum, afi kær. Þig skal mætan muna meðan hjartað slær. Orðin aldrei gleymast elskulega hlý. Vögguvísur þínar vaka minni í. Hljóp ég elsku afi, upp í faðminn þinn, hönd um háls þér lagði, höfuð þér við kinn. Þá var kysst á kollinn, klappað vangann á. En hve blítt þú brostir, besti afi þá. (Sigurlaug Cýrusdóttir) Jóna Heiða, Sara, Kristín Erna og Þorleifur. Elsku besti afi okkar, nú kveðj- um við þig í hinsta sinn. Að hugsa sér hvað við höfum verið heppnar að fá að njóta samvista með þér lengi. Þakklæti er okkur efst í huga. Það er alltaf gott að ylja sér við góðu minningarnar sem við áttum saman og þessi hinsta kveðja mun gera það líka. Þegar við minnumst þín eru hlutir sem að skilgreindu þig eins og nagla- þjölin, vasahnífurinn, afainn- iskórnir, stuttermaskyrturnar, hvítu hlýrabolirnir og ófáu vasa- klútarnir í öllum regnbogans lit- um. Þú varst maður fárra orða en góðmennska þín og blíða leyndi sér ekki. Við áttum margar gæða- stundir saman. Í sjónvarpsher- berginu á Hólagötunni horfðum við á hasarmyndir bannaðar börnum en ef það voru ekki bíó- myndir voru það íþróttir, Alþingi, „Leiðindarljós“ eða fréttatíminn, þú máttir alls ekki missa af þessu. Að fá ópal hjá þér sem þú geymd- ir í brjóstvasanum er eitthvað sem situr okkur fast í minni. Við systur vorum uppátækjasamar og áttum það til að fara svolítið fram úr okkur. Þegar við frænd- systkinin fórum í vatnsblöðruslag í garðinum æstust leikar sem endaði með því að við unnum smá skemmdarverk á djásninu í garð- inum, gosbrunninum. Þú sagðir ekki neitt en stormaðir út í garð, ekki par hrifin af þessum uppá- tækjum í krakkaskrílnum. Þú varst þó aldrei reiður heldur kom bara smá fát á þig. Þær útlanda- ferðir sem við höfum eytt með þér og ömmu voru líka fullar af fjöri og óútskýranlegri væntumþykju og ást. Í hvert skipti sem við heyrum lagið La bomba er okkur hugsað til þín og ömmu að dilla ykkur í sólinni á Spáni með okkur. Eftir átakanlegar bræluferðir með Herjólfi úr Þorlákshöfn voru ætíð kræsingar á borðum. Hóla- gatan var eins og okkar annað heimili. Það skipti ekki máli hver kom með manni í heimsókn, þeim var tekið eins og einum af fjöl- skyldunni. Minnisstæðustu kvöld lífs okkar voru matarboðin á Hólagötunni með stórfjölskyld- unni. Þú varst svo hrifin af elda- mennskunni hennar ömmu, enda ekki annað hægt. Þú fórst svo fögrum orðum yfir ömmu enda varstu bálskotinn í henni allt frá því vegferð ykkar hófst sem kær- ustupar fyrir meira en 70 árum. Þegar við systur bjuggum um tíð á Hólagötunni varstu okkur ávallt góður. Það var gott að leita til þín og þú varst alltaf til staðar. Þú varst svo flinkur í höndunum og gast lagað hvað sem var. Þegar þú varst kominn á níræðisaldur sprangaðir þú um í garðinum annaðhvort að reita arfa með vasahnífnum góða eða að príla í þverhníptum stiga að taka lauf- blöðin úr þakrennunum. Þið amma hafið verið okkur svo góð alla tíð og okkur hefur líka komið svo vel saman. Að lokum viljum við segja það að við berum þakk- læti til ykkar ömmu fyrir að hafa haldið svona vel utan um fjöl- skylduna okkar. Við frændsystk- inahópurinn höfum alist upp meira eins og systkini heldur enn frændur og frænkur og eigum enn þann dag í dag ómetanlegan vinskap og skemmtilegar sögur að segja frá þökk sé þér og ömmu. Elsku afi, nú ertu kominn í draumalandið á vit ævintýranna eins og þeirra sem þú upplifðir forðum í æsku. Takk afi fyrir allt! Við elskum þig að eilífu. Aðalheiður Kristbjörg Jens- dóttir og Kristbjörg María Jensdóttir. Þorleifur Sigurlásson HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn, Stuttermaskyrta og góður vasaklútur, Með rauðan ópal sem dugði sem mútur. Þú prílaðir út um allt, Á níræðisaldri, okkur þótti það ekki snjallt. Í þig gátum við alltaf klagað, Og allt gast þú með þínum sterku höndum lagað. Á hvert orð þú hlustar, Og af gömlu dóti rykið dustar. Segir ekki við mann allt of mikið, Þó maður fari yfir strikið. Að tala við þig það var svo gaman, Á þeim stundum sem við vorum saman. Amma bakaði sætindi sem þú borðaðir með hraði. Enda var ekkert meira sem afi elskaði. Barnabörn þú áttir mörg, sem voru þín lífsbjörg. Nú ert farinn í himnaríki, afi minn ástríki. Kristbjörg María Jensdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.