Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 24
G arðar Hilmarsson fædd- ist 13. ágúst 1951 í Reykjavík og ólst upp í Camp Knox til fimm ára aldurs, en þá flutti fjöl- skyldan á Rauðarárstíginn og síðan í Laugarnesið þegar hann var 10 ára, en á þessum árum var mikil húsnæð- isekla í bænum. Garðar gekk í Aust- urbæjarskólann og síðan í Lauga- lækjarskóla. Garðar byrjaði 11 ára að bera út Morgunblaðið og Vísi. Síðan varð hann sendill á Morgunblaðinu eitt sumar og veturinn eftir þegar hann var tólf ára var hann kvöldsen- dill. „Það var mjög fínt, en bara stutt- ir álagstímar og svo var mikið af dauðum tíma. Ég held ég hafi náð að lesa Moggann frá upphafi, þennan vetur, eða alla vega þá hluta blaðsins sem vöktu áhuga minn, en í sérstöku herbergi voru innbundnir Moggar frá upphafi blaðsins.“ Garðar gekk í Gagnfræðaskóla verknáms, fyrst í Brautarholti og síð- ar í Ármúla, þar sem nú er Fjöl- brautaskólinn í Ármúla. Hann lærði síðan prentiðn og starfaði við það í tæpt ár eftir útskrift 1973, en hóf síð- an störf hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar árið 1974, sem síðar breyttist í Skýrr. „Ég hafði mik- inn áhuga á tölvum. Á þessum tíma voru tölvurnar engin smásmíði og var vinnsluminnið líklega minna en í hefðbundnum snjallsíma í dag. Ég vann þar í flestum deildum fyrir- tækisins og endaði sem kerfisfræð- ingur, en fyrirtækið bauð upp á nám sem kallað var Skýrr-skólinn.“ Á þessum árum bætti hann einnig við sig námi í viðskipta- og rekstr- arfræði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hann vann hjá Skýrr í 24 ár, til ársins 1999. „Þá vildi ég breyta til, langaði ekki að vera lengur í tölvu- bransanum. Ég var snemma valinn sem trúnaðarmaður hjá Starfs- mannafélagi Reykjavíkur, sat í mörg- um samninganefndum, m.a. í kjara- samningum við Skýrr þegar það var einkavætt, var í forsvari fyrir B-hluta Starfsmannafélagsins sem samdi við félög og fyrirtæki á almenna mark- aðnum. Þetta varð til þess að ég hóf störf hjá Starfsmannafélagi Reykja- víkurborgar (St.Rv.) á kjarasviði þeg- ar það bauðst og varð síðan formaður félagsins frá 2006-2019 þegar félagið sameinaðist SFR og varð að félaginu Sameyki, þar sem ég varð varafor- maður. Lauk því tveggja ára verkefni nú á vordögum. Er ég því að renna inn á eftirlaun.“ Hann var í stjórn BSRB frá 1994- 1997 og síðan samfellt í stjórn félags- ins eftir að hann tók við formennsku í Starfsmannafélaginu. „Ég kunni mjög vel við starfið og einnig að vera formaður félagsins. Það kom sér líka vel að hafa reynslu í gerð kjarasamn- inga og nóg að gera, enda næst- stærsta félagið innan BSRB.“ Garðar hefur einnig verið formaður Styrkt- arsjóðs BSRB frá stofnun hans 2001 og setið í stjórn Brúar lífeyrissjóðs. Áhugamál Garðars eru margvísleg. „Ég byrjaði í skátunum sem strákur, en fór þaðan í hjálparsveitina. Ég var í Eyjum að rýma húsnæði og moka af þökum í gosinu 1973 í tæpan hálfan mánuð og það var mjög sérstakt en gefandi verkefni. Að vera á svona stað er mjög sérkennilegt, þetta var eins og maður gæti ímyndað sér úr myndinni Innrásin frá Mars eða þar sem veiran léki lausum hala og bæir tæmdust.“ Síðan eru hjólreiðar og hlaup of- arlega á lista. „Ég byrjaði að hjóla í og úr vinnunni þegar ég var hjá Skýrr og svo hef ég hjólað talsvert um landið, m.a. um Sprengisand og Arnarvatnsheiði, ég nota enn hjólið sem samgöngutæki hér í borginni.“ Síðan tóku hlaupin við, en Garðar hef- ur hlaupið fjölda keppnishlaupa, bæði hér heima og erlendis, og hefur m.a. hlaupið fimm Laugavegarhlaup. „Svo er golfið að sækja á og ég vonast til að geta aukið það þegar ég er kominn í hóp eftirlaunamanna.“ Garðar segir að í gegnum starfs- ferilinn hafi hann eignast marga vini Garðar Hilmarsson fv. formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar – 70 ára Las Moggann frá upphafi á þrettánda ári Hjónin Hér var Garðar að hlaupa ultra- maraþon um Laugaveginn svokallaða ár- ið 2005 og Sig- ríður tók á móti honum. Barnabörnin Hér eru barna- börnin á Mallorca 2018, en Elísa, sú yngsta, var þá ekki fædd. Kína 2005 Hér er Garðar við Kínamúrinn, en Sigríður tók myndina. Þau hlupu hálfmaraþon og hluti þess var á múrnum. 24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 30 ÁRA Sylvía fæddist á Egilsstöðum og ólst þar upp til 8 ára aldurs. Þá fluttist hún til Kópavogs og gekk í Snælandsskóla og var í fótbolta hjá HK í nokkur ár. Eftir grunn- skólann byrjaði hún í Menntaskólanum í Kópa- vogi, áður en hún tók sér hlé frá námi. Fyrir fimm árum ákvað hún að flytja aftur til Egilssstaða. „Ég var með svo mikla heimþrá því ég hef alltaf verið með svo sterkar taugar hingað austur. Ég er mikið náttúrubarn og finnst ekkert betra en að fara í göngutúra í sveit- inni með hundinum mín- um.“ Sylvía ákvað í fyrra að fara í háskólagáttina á Bifröst en ákvað svo að taka samhliða diplóm- unám í viðburðastjórnun í Háskólanum á Hólum. „Ég hef svo gaman af því að hafa mikið að gera.“ Sylvía vinnur í sumar hjá Austurbrú, en hún hafði verið þarí verknámi í viðburðastjórnun og skipulagði m.a. Umhverfisdaga í Fljótsdal í apríl sl. „Ég hef fengið að kynnast fjölbreyttum, skemmtilegum og krefjandi verkefnum í sumar, ég er stöðugt að þróast í starfi og nýt mín mjög í fjölbreytileikanum.“ Í haust er hún að fara í tölvunarfræði í Háskólanum í Reykjavík. „Ég ætla að nýta tækifærið og taka skólann í gegnum Háskólann á Akureyri, en skól- arnir eru í samstarfi og þá get ég sótt lotur þangað. Það munar svolítið um þriggja eða sjö tíma akstur.“ Sylvía er nýgift Sveinbirni Árna Björgvinssyni, f. 30.3. 1984, sem vinnur á Verkstæði Svans. Þau giftu sig núna 23. júlí. Sylvía Helgadóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Til þín er leitað með forystu í ákveðnu máli. En passaðu þig að ofmetnast ekki, heldur vertu hógværðin uppmáluð. 20. apríl - 20. maí + Naut Þetta er góður dagur til að ganga frá einhvers konar fjölskyldumálum. Líttu til barnanna, þau kunna svo vel að koma til- finningum sínum á framfæri við aðra. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Gættu þess að ganga ekki á rétt annarra einstaklinga. Besta ráðlegging dagsins er þess vegna að einbeita sér að sínum skyldum og ábyrgð. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Vera má að fólk vanmeti eða hunsi afrek þín á næstunni. Láttu það ekki draga úr þér því þú veist hvað þú þarft að gera. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Einhver í kringum þig er brjálæðislega afbrýðisamur, en þú kemst ekki að því fyrr en þú deilir góðum tíðindum. Láttu það ekki á þig fá og haltu þínu striki. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Láttu ekki deigan síga heldur hamr- aðu á skoðunum þínum þangað til þær hljóta hljómgrunn. Vertu óhrædd/ur. 23. sept. - 22. okt. k Vog Ef þú vilt eiga samskipti við einhvern aftur skaltu stíga fyrsta skrefið í kvöld. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú getur ekki breytt heim- inum og ættir að líta þér nær og koma jafn- vægi á eigið líf. Hafðu í huga að þótt leiðin á tindinn sé torsótt þá getur fallið niður tekið fljótt af. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú átt erfitt með að standast löngun þína til að kaupa þér eitthvað í dag. Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til þess að velta kaupunum fyrir sér. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það er eins og þú sért að spóla áfram með fjarstýringu lífsins. Leyfðu sam- böndum að þróast hægt, svo þau nái að skjóta djúpum rótum. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Það er ekki um annað að ræða en sækja sér hjálp, ef allt er að fara úr böndunum hjá þér vegna tímaskorts. En næst mundu að hugsa þig tvisvar um áður en þú samþykkir að skila tilteknu verkefni innan ákveðins tímaramma. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú kemst ekki hjá því að gera upp ákveðin mál innan veggja heimilisins. Und- irmeðvitundin er á fullu að leysa vanda- málin. Til hamingju með daginn sa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.