Morgunblaðið - 13.08.2021, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Þetta var einfaldlega þannig að
ég var að taka til fyrir svona
þremur árum síðan og fann fullt
af dagbókum og bréfum sem ég
gluggaði í. Þar komu í ljós heilu
doðrantarnir af hugsunum mínum
og hugleiðingum. Ferðalag mitt í
gegnum lífið bara. Þá hugsaði ég
að ég yrði að gera eitthvað við
þetta, búa eitthvað til úr þessu,“
segir Bjarni Snæbjörnsson leikari
um sjálfsævisögulega heimilda-
söngleikinn Góðan daginn faggi
sem verður frumsýndur í Þjóðleik-
húskjallaranum í kvöld, föstudag-
inn 13. ágúst.
„Af því ég er nú leikari þá
fannst mér rakið að búa til leikrit
og af því ég er söngvari og elska
söngleiki þá fannst mér rakið að
búa til söngleik. Þetta er auðvitað
mjög mikil einföldun og þetta tók
náttúrulega langan tíma en svona
byrjaði þetta.“
Útkoman er einleikurinn Góðan
daginn faggi. Í fréttatilkynningu
segir að þar leiti fertugur söng-
leikjahommi skýringa á skyndi-
legu taugaáfalli sem hann fékk
upp úr þurru einn blíðviðrisdag.
Eftir vandasaman leiðangur um
innra líf sitt, fortíð og samtíma
rekst hann á rætinn hommahatara
á óvæntum stað. Sýningin, sem er
samstarfsverkefni Þjóðleikhússins
og leikhópsins Stertabendu, er
berskjaldandi leiðangur um
skömm og mennsku og einlægt
samtal við drauminn um að til-
heyra.
Storka örlögunum
Fljótlega eftir að hafa fundið
dagbækurnar og bréfin fékk
Bjarni gott fólk til liðs við sig.
„Ég byrjaði á að tala við Grétu
Kristínu Ómarsdóttur leikstjóra.
Hún er meðhöfundur að þessu.
Hún var strax til í þetta og fannst
þetta spennandi. Við höfum verið
að skrifa þetta í næstum því þrjú
ár. Svo kom Axel Ingi Árnason
tónskáld snemma inn í þetta líka
og hann hefur verið í sköpunar-
ferlinu með okkur frá upphafi.“
Þau mótuðu þannig texta og
tónlist samhliða. „Við höfum verið
að henda hugmyndum í pottinn,
eitthvað dettur út og eitthvað sit-
ur eftir og núna erum við bara
komin með sýningu.“
Axel Ingi hefur samið söng-
leikjatónlist sérstaklega fyrir
verkið og verður titillag sýningar-
innar gefið út á næstu dögum.
Tónskáldið verður með Bjarna á
sviðinu og mun hann leika á píanó.
„Hann verður mér til halds og
trausts,“ segir leikarinn.
Stefnan var að frumsýna verkið
í fyrravetur en vegna samkomu-
takmarkana varð ekki úr því. „Við
ætluðum svo að frumsýna á Pride
í síðustu viku en það komu þarna
hertar reglur svo við ákváðum að
taka okkur aðeins meiri tíma og
gera salinn öruggan. Það eru
miklu færri sem komast að núna.“
Þau láta óhappadagsetninguna,
föstudaginn þrettánda, ekki
stoppa sig. „Við ætlum að storka
örlögunum.“
Erfitt og ógeðslega fyndið
Bjarni viðurkennir að það hafi
verið erfitt að vinna með eitthvað
sem er jafn persónulegt og manns
eigin dagbækur. „En það hefur
líka verið ógeðslega fyndið. Það
hefur verið allur skalinn. Þar er
ótrúlega áhugavert að kynnast
sjálfum sér upp á nýtt, einhverj-
um hluta af sér sem maður var
búinn að gleyma.“
Efniviðurinn, dagbækurnar og
bréfin sem sýningin er unnin upp
úr, spannar langt tímabil enda
hefur Bjarni haldið dagbækur síð-
an í æsku. „Sumt er alveg yfir 25
ára gamalt. Ég les til dæmis upp
eitt bréf frá því ég er þrettán ára.
Ég átti svo mikið af pennavinum
svo ég var alltaf að skrifa bréf og
byrjaði svo fljótlega eftir það á
dagbókum. Svo þetta er mjög mik-
ið af efni,“ segir hann.
„Meginþorrinn er samt frá því
ég var að koma út úr skápnum um
tvítugt. Stóra hugleiðingin sem
þetta byggir allt á er frá því tíma-
bili. Það er miðjan í þessu verki.“
Spurður hverju áhorfendur
megi búast við af sýningunni segir
leikarinn: „Miklum húmor, ber-
skjöldun, sannleikanum, sársauka
og uppgjöri. Og allt þar á milli.
Bara fáránleika lífsins.“
Bjarni segir það afar mikilvægt
að segja hinsegin sögur. „Það er
ekki bara mikilvægt fyrir hinsegin
fólk heldur fyrir allt samfélagið.
Og ég vona bara innilega að fólk
grípi gæsina og komi og sjái og
upplifi með okkur.“
Morgunblaðið/Unnur Karen
Leikari „Þar komu í ljós heilu doðrantarnir af hugsunum mínum og hugleiðingum. Ferðalag mitt í gegnum lífið
bara. Þá hugsaði ég að ég yrði að gera eitthvað við þetta,“ segir Bjarni um tiltektina sem varð að einleik.
Húmor, berskjöldun og uppgjör
- Sjálfsævisögulegi heimildasöngleikurinn Góðan daginn faggi frumsýndur í kvöld - Unnið upp úr
dagbókum og bréfum Bjarna Snæbjörnssonar leikara - Þykir mikilvægt að segja hinsegin sögur
Kátir Bjarni og tónskáldið Axel Ingi á sviðinu í Þjóðleikhúskjallaranum.
Syningin Úr fórum Alísar verður
opnuð í dag, föstudag, kl. 16 í
Deiglunni á Akureyri. Er það yfir-
litssýning á verkum Alice Sigurds-
son sem fæddist árið 1921 og dó
árið 2011. Hún ólst upp við Lake
Tahoe í Sierra Nevada-fjöllum í
Kaliforníu, útskrifaðist frá Cali-
fornia College of Arts and Crafts í
Oakland 1944 með BA-próf í graf-
ískri hönnun og með kennararétt-
indi í myndlist. Hún vann eitt ár
við auglýsingateiknun í San Franc-
isco þar til hún giftist og fluttist til
Íslands árið 1945. Auk húsmóður-
starfa sinnti hún ýmiss konar graf-
ískum verkefnum fyrir einstakl-
inga, félög og fyrirtæki á
Akureyri, einkum Prentverk Odds
Björnssonar, að því er fram kemur
í tilkynningu og segir þar að
margir kannist við jólamerki kven-
félagsins Framtíðarinnar sem hún
hafi teiknað um árabil. Þá fékkst
Alice líka við málaralist og þá
einkum vatnsliti og tók þátt í
mörgum sýningum. Alice hlotn-
aðist heiðursviðurkenning Akur-
eyrar fyrir framlag sitt til menn-
ingarmála í bænum, segir í
tilkynningu og að öll verkin á sýn-
ingunni séu til sölu og andvirði
þeirra renni óskipt til Hollvina-
samtaka Sjúkrahússins á Akureyri.
Náttúruunnandi Alice naut sín best á hestbaki í ósnortinni náttúru þar sem flestar
mynda hennar urðu til, eins og segir í tilkynningu. Hér má sjá vatnslitamynd eftir hana.
Yfirlitssýning á verkum Alice í Deiglunni