Morgunblaðið - 13.08.2021, Page 32

Morgunblaðið - 13.08.2021, Page 32
Gítarleikarinn og tónskáldið Mikael Máni fagnar út- gáfu annarrar sólóplötu sinnar, Nostalgia Mach- ine, með útgáfu- tónleikum í Hörpu í kvöld, 13. ágúst, kl. 20. Tónleikarn- ir verða í salnum Kaldalóni og á þeim verður flutt tónlist eftir Mika- el Mána í útsetn- ingum fyrir óhefð- bundna fimm manna djasshljómsveit og strengjakvartett. Einnig verða flutt lög af fyrstu sóló- plötu Mikaels, Bobby, auk óútgefins efnis. Mikael Máni hefur verið að þróa sinn eigin stíl innan djasstónlistar sem fellur undir kammerdjass. Mikael Máni fagnar útgáfu Nostal- gíuvélarinnar í Kaldalóni í kvöld FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 225. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Karlalandsliðið í körfuknattleik byrjaði ekki vel í for- keppni HM í Podgorica í Svartfjallalandi í gær. Þar mun liðið leika fjóra leiki, tvo gegn Svartfjallalandi og tvo gegn Danmörku, en ekki er leikið heima og að heiman vegna heimsfaraldursins. Svartfjallaland sigraði Ísland 83:69 í leik sem var öllu jafnari en úrslitin gefa til kynna. Íslenska liðið lék illa í sókninni í upphafi leiks og þá náðu heimamenn frumkvæðinu. Íslensku landsliðsmennirnir reyndu megnið af leiknum að vinna upp forskotið. »26 Slæm spilamennska Íslands í fyrsta leikhluta hafði mikil áhrif ÍÞRÓTTIR MENNING Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is „Maður skilur betur núna hvers vegna fólk fer oft berfætt í píla- grímsgöngur og annars konar hug- leiðslugöngur,“ segir Vigdís María Hermannsdóttir, sem gekk berfætt upp í Gvendarskál í Hólabyrðu sl. mánudag. Með henni í för voru móð- ir hennar, séra Solveig Lára Guð- mundsdóttir, vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal, og bróðursynir Vigdísar; Guðmundur Ari og Þorlákur Bene- diktssynir, sem gengu berfættir eins og frænka þeirra. Fetuðu frænd- systkinin þannig í fótspor biskupsins Guðmundar „góða“ Arasonar, sem uppi var á 13. öld. Sagan segir að hann hafi gengið berfættur upp í Gvendarskál til að vera í betri tengslum við guð og náttúruna. „Það kom á óvart hvað þetta er auðvelt þegar maður tekur bara eitt skref í einu. Við vorum með skó í bakpokanum en við tókum þá aldrei upp og fórum berfætt alla leiðina upp og aftur niður,“ segir Vigdís í samtali við Morgunblaðið. Fjölskyldan tók sér góðan tíma í gönguna enda bæði erfitt og hættu- legt að flýta sér um of þegar maður er skólaus, að sögn Vigdísar. „Þessi ganga tekur vanalega svona 1-1,5 klukkutíma en við fórum þangað upp á 2-2,5 tímum með góð- um pásum. Svo vorum við í svona klukkutíma í skálinni þar sem við borðuðum nesti og báðum bænir við altarið sem er þar,“ segir hún. Innt eftir því segir Vigdís unga frændur sína lítið hafa haft fyrir göngunni. „Þorláki, sem er að verða 10 ára, fannst þetta ekkert mál enda vanur því að fara berfættur út um allar trissur. Guðmundur Ari, sem er að verða 14 ára, var berfættur mestalla leiðina upp en fór svo í skó á leiðinni niður.“ Fyrir utan það að verkja aðeins í iljarnar segir Vigdís sér hafa liðið vel eftir gönguna. „Þetta var svo mikil núvitund því maður gat ekki hugsað um neitt ann- að en hvaða skref maður ætlaði að taka næst. Svo tengdist maður nátt- úrunni miklu betur en maður hefði gert hefði maður gengið í skóm,“ sagði Vigdís. Berfætt Vigdís María Hermannsdóttir og bróðursynir hennar, Guðmundur Ari og Þorlákur Benediktssynir. Gengu berfætt upp í Gvendarskál - Fetuðu í fótspor Guðmundar „góða“ Arasonar biskups Tásur Allar tásur komnar heim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.