Morgunblaðið - 17.08.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2021
SMÁRALIND
www.skornir.is
1
Stær r -ði 36 42
Margrét Þóra Þórsdóttir
maggath61@simnet.is
Vinnustofa þar sem kynnt verður
læknanám við Jessenius-lækna-
deildina við háskólann í Martin í
Slóvakíu verður í Mennta-
skólanum á Akureyri nk. fimmtu-
dag, 19. ágúst, kl. 14.
Farsælt samstarf hefur í rúm-
an áratug verið á milli MA og
læknadeildarinnar ytra og hafa þó
nokkuð margir nemar við báða
framhaldsskólana á Akureyri auk
fleiri norðlenskra skóla stundað
læknanám í Martin í Slóvakíu.
Jón Már Héðinsson, skóla-
meistari Menntaskólans á Akur-
eyri, segir að væntanlegir nemar
við læknadeildina þreyti aðgangs-
próf sem byggist að mestu á
grunnatriðum í líffræði og efna-
fræði og þeir sem standist það fái
skólavist. Heimavist er við skólann
en margir MA-nemar hafa reynslu
af slíku fyrirkomulagi. Um 1.700
nemar eru við Jessenius-lækna-
deildina, þar af um 600 erlendir,
flestir frá Noregi og Íslandi.
„Það hafa þó nokkuð margir
fyrrverandi nemendur okkar út-
skrifast frá læknadeildinni í Slóv-
akíu og starfa á heilbrigðisstofn-
unum hér um slóðir. Ég heyri vel
látið af þeim, þeir þykja góðir og
vel menntaðir starfsmenn. Þeir
hafa auk læknanámsins einnig
vald á pólsku sem er bónus og gott
að hafa í bakhöndinni á Norður-
löndunum þar sem mikið er um
Pólverja. Það er ágætis valkostur
við annað námsframboð á þessu
sviði að geta boðið upp á námið í
Slóvakíu.“
Fulltrúar frá háskólanum í
Martin hafa komið í heimsókn í
menntaskólann og eins hafa for-
svarsmenn sveitarfélagsins heim-
sótt fulltrúa Akureyrarbæjar og
rætt hugsanlegt samstarf. Til
stendur að fulltrúar frá MA heim-
sæki háskólann ytra nú um kom-
andi mánaðamót en Jón Már segir
á þessari stundi ómögulegt að
segja hvort af henni verður. Þar
ráði þróun faraldursins miklu um
hvort viðeigandi sér nú að endur-
gjalda heimsóknina.
Skólastarf að hefjast
Skólastarf hefst við Mennta-
skólann á Akureyri mánudaginn
23. ágúst næstkomandi og eru
nemendur um 540 talsins, talsvert
færri en þegar framhaldsskóla-
nám var að jafnaði fjögur ár en
ekki þrjú eins og nú.
Jón Már segir að miðað við
þær sóttvarnareglur sem í gildi
eru nú verði þráðurinn tekinn upp
frá því sem var í vor sem leið, þ.e.
eins metra regla og 200 manna
samkomutakmarkanir. Bekkj-
arkerfi er í MA og hafði hver bekk-
ur sína heimastofu og hélt sig að
mestu leyti þar, en kennarar fóru á
milli. Það fyrirkomulag reyndist
vel og skólastarf gekk áfallalaust
fyrir sig en undanfarin misseri
hefur faraldurinn einna helst bitn-
að á félagslífinu, sem var ekkert
þegar verst lét.
Miklar áskoranir
„Ég er mjög heppinn með það
að kennarar við skólann eru já-
kvæðir, útsjónarsamir og hug-
myndaríkir. Þeir hugsa í lausnum,
finna aðra fleti, og hafa verið mjög
flinkir og gert það besta úr hverri
stöðu sem upp hefur komið. Við
ætlum að efla félagslífið, skapa
nýjar hefðir, mögulega annars
konar félagslíf, en auðvitað vonum
við að úr rætist og hægt verði að
efla fjölmennt félagslíf á ný,“ segir
Jón Már.
Hann segir nemendur marga
hverja ekki þekkja annað skóla-
hald en með takmörkunum. „Það
eru miklar áskoranir í aðstæð-
unum en við reynum að einblína
ekki á það sem ekki er hægt að
gera heldur skoða leiðir til að gera
eitthvað nýtt og öðruvísi. Það lítur
út fyrir að við munum þurfa að lifa
með kórónuveirunni áfram, að hún
verði hluti af lífi okkar, svo við
verðum að finna út hvernig það
verður best gert, m.a. með því að
skapa nýjar hefðir sem eru innan
þess ramma sem okkur er settur.“
Leita allra leiða til
að bæta skólastarf
Jón Már segir að ávallt sé ver-
ið að leita leiða til að bæta skóla-
starf nemendum til hagsbóta. Eitt
af því sem verið er að skoða í því
sambandi er að taka upp þriggja
anna skipulag í stað tveggja.
„Við munum útfæra nýtt
skipulag á komandi vetri og vænt-
anlega taka það upp haustið 2022,“
segir hann. „Þriggja anna nám
gerir að verkum að nemar eru
stöðugt að, verklagið verður þann-
ig að unnið er að verkefnum jafnt
og þétt allan veturinn. Tíminn nýt-
ist betur og þeir tileikna sér vinnu-
brögð sem tíðkast í háskólum og
úti í atvinnulífinu þar sem samfella
er í þeim verkefnum sem tekist er
á við.“
Skólameistari segir að
reynsla sé fyrir hendi af þriggja
anna kerfi í nokkrum skólum
syðra, þeir séu áfangaskólar en
bekkjarskólar hafi ekki áður tekið
slíkt kerfi upp.
Þá nefnir hann að við MA hafi
nokkuð verið gert af því að flétta
saman fleiri en einni námsgrein
þannig að námið verði fjölbreytt-
ara og meira í takt við samtímann.
Síðastliðinn vetur unnu kennarar í
náttúru- og raungreinum að því að
endurskipuleggja kennslu og nám
á þann hátt að það verði markviss-
ara og kennarar tali og vinni
meira saman.
„Við verðum alltaf að hugsa
málin upp á nýtt og öðruvísi, ekki
festast í gömlu fari,“ segir Jón
Már. „Okkar markmið er að frá
skólanum brautskráist sjálfstæðir
nemendur með gagnrýna hugsun.“
Menntaskólinn á Akureyri í samstarfi við læknadeild háskólans í Martin í Slóvakíu
Valkostur við annað námsframboð
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Akureyri Jón Már Héðinsson hefur verið skólameistari Menntaskólans á Akureyri frá árinu 2003.
- Jón Már Héðinsson, skóla-
meistari MA, fæddist á Pat-
reksfirði árið 1953.
- Hann varð stúdent frá
MA árið 1974 og lauk BA-prófi í
íslensku frá Háskóla Íslands.
Hann lauk MBA-námi í stjórn-
un, rekstri og stefnumótun við
háskóla í Chicago í Bandaríkj-
unum.
- Hefur starfað við MA síð-
an 1980 og skólameistari frá
hausti 2003.
- Jón Már er kvæntur Rósu
Sigursveinsdóttur hjúkrunar-
fræðingi og eiga þau tvö börn.
Hver er hann?
Ríkiskaup hafa auglýst eftir umsókn-
um um þátttökurétt í lokuðu útboði
vegna hönnunar nýbyggingar við end-
urhæfingardeild Landspítalans við
Grensás. Áætlaður heildarkostnaður
við nýbygginguna, sem verður allt að
3.800 fermetrar, er um 2,9 milljarðar
króna.
Aðstæður til endurhæfingar munu
gjörbreytast og endurhæfingarrým-
um fjölga með nýja húsnæðinu, að því
er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir að á undanförnum tveimur
áratugum hafi orðið miklar breytingar
á endurhæfingarstarfsemi í ljósi fram-
fara í meðferð alvarlegra sjúkdóma og
áverka. Þannig hafi þeim fjölgað mikið
sem nú lifa með fötlun af völdum sjúk-
dóma og slysa og þörf fyrir öfluga og
góða endurhæfingu fari vaxandi.
Eldra húsnæði nær 50 ára
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra kynnti á liðnu ári ákvörðun
sína um að setja stækkun endurhæf-
ingardeildarinnar í forgang og var
ráðstafað um 200 milljónum króna af
sérstöku fjárfestingarátaki stjórn-
valda til undirbúnings. Húsnæðið á
Grensási er nær 50 ára gamalt og
stenst ekki nútímakröfur varðandi
sjúkrahúsþjónustu, segir á vef Stjórn-
arráðsins. Mikill undirbúningur hefur
þegar farið fram við frumhönnun við-
byggingar og hefur deiliskipulag verið
samþykkt.
Gert er ráð fyrir að meðferðarstof-
ur sjúklinga verði ekki færri en 32 á
tveimur deildum, 13 í núverandi hús-
næði legudeildar og 19 í nýbyggingu.
Öll þjálfunaraðstaða og meðferðar-
rými verða til fyrirmyndar og mun
uppbyggingin gjörbylta aðstöðu til
endurhæfingar á Grensási og þar með
til endurhæfingarþjónustu í íslensku
heilbrigðiskerfi.
Forvalið er auglýst á Evrópska
efnahagssvæðinu. Að loknu forvali
mun verkkaupi velja fimm fyrirtæki
úr hópi hæfra umsækjenda til þátt-
töku í lokuðu útboði.
Útboð á hönnun á
nýrri Grensásdeild
- Aðstæður til end-
urhæfingar munu
gjörbreytast
Ljósmynd/Landspítalinn
Grensás Nýbygging á að rísa.