Morgunblaðið - 17.08.2021, Blaðsíða 32
www.gilbert.is
ÚRSMÍÐAMEISTARI
OKKARMISSIR ALDREI
EINBEITINGUNA
101 38mm og 101 32mm
Islandus 1919 44mm og
Frisland 1941 42mm
Islandus
Dakota 44mm
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 229. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Víkingur úr Reykjavík og Breiðablik elta Val eins og
skugginn á toppi úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi
Max-deildarinnar. Víkingar unnu afar sannfærandi 3:0-
sigur gegn Fylki á Würth-vellinum í Árbænum í sautjándu
umferð deildarinnar í gær á meðan Breiðablik vann tor-
sóttan 2:1-sigur gegn botnliði ÍA á Kópavogsvelli. Þá eru
KR-ingar enn þá með í baráttunni um Íslandsmeistaratit-
ilinn eftir 1:0-sigur gegn HK í Kórnum í Kópavogi. Þrátt
fyrir úrslit gærdagsins eru Valsmenn með þriggja stiga
forskot á toppi deildarinnar. »26
Fimm lið berjast um Íslandsmeist-
aratitilinn í úrvalsdeild karla
ÍÞRÓTTIR
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Katrín Heiða Jónsdóttir íþrótta-
fræðingur kallar ekki allt ömmu
sína en síðustu áramót setti hún sér
það markmið að ganga hundrað
sinnum upp að Steini í hlíðum Esju
á árinu. Þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins náði tali af henni í gær var
hún búin að fara 96 ferðir og stefndi
þá á að ná hundruðustu ferðinni í
lok vikunnar. Katrín, sem er 42 ára,
ætlar þó ekki að láta staðar numið
þar.
„Þar sem þetta gekk betur en ég
átti von á er ég að spá í að fara 150
ferðir á árinu,“ segir hún.
Aðspurð segir Katrín lítið liggja
að baki þeirri hugdettu hennar að
fara þetta margar ferðir upp á Esj-
una. Hún hafi þó verið virk í íþrótt-
um og útivist alla tíð og hafi viljað
skora á sjálfa sig.
Nokkrar ferðir upp á Everest
„Þetta er bara smá hugmynd sem
ég fékk og er að framkvæma. Ég
hafði gengið nokkuð reglulega upp
á Esjuna í fyrrasumar og svo höfum
við fjölskyldan haft það að hefð að
ganga þangað upp á nýársdag,“
segir hún. „Svo sagði ég við ein-
hvern að ég væri að spá í að fara
hundrað ferðir á árinu og þá varð
ég að standa við orð mín.“
Gangan frá bílastæðinu við Esju-
stofu og upp að steini undir Þver-
fellshorni er um 6-6,4 km og hækk-
unin um 575 m. Takist Katrínu að
fara sínar 150 ferðir upp og niður
mun hún hafa gengið um 1.800-
1.920 km á árinu og samanlögð
hækkun um 86.250 metrar.
„Ef ég næ að klára þá jafngildir
þetta nokkrum ferðum upp á Eve-
rest í hækkun,“ segir hún. „Bless-
unarlega sleppur maður samt við
háfjallaveikina sem fylgir göngunni
upp á Everest.“
Kemur fyrir að maður stoppi
Aðspurð segist Katrín sjaldan fá
leiða á því að ganga alltaf sama
fjallið enda sé hún dugleg að stunda
annars konar hreyfingu inn á milli.
„Það kemur alveg fyrir að maður
stoppi á bílastæðinu, horfi upp og
hugsi að maður nenni ekki, en um
leið og maður er búinn að reima á
sig skóna, þá er maður bara klár.
Þetta er svo geggjað þegar maður
er kominn af stað. Mér finnst svo
gott að vera úti, sama hvernig það
viðrar,“ segir hún. „Mér finnst bara
gaman að ganga í svolítið leiðinlegu
veðri og verða svolítið veðurbarin.
Það er alveg partur af upplifuninni,
að tækla þær aðstæður sem manni
bjóðast hverju sinni.“
Aðeins einu sinni yfir síðustu
fjóra og hálfan mánuð hafi veðrið
þó verið of slæmt til að ganga upp
að Steini, að sögn Katrínar.
„Ég hef einu sinni hætt við að
fara. Það var þegar skiltin á leið-
inni, sem sýna vindmælingar á
svæðinu, voru með himinháum,
rauðum tölum. Þegar ég kom á bíla-
stæðið var svo mikið rok að ég gat
ekki opnað bíldyrnar. Ég lét því
skynsemina ráða og sneri við á bíla-
stæðinu.“
Ljósmynd/Katrín Heiða Jónsdóttir
Ofurkona Katrín Heiða Jónsdóttir lætur veðrið ekki aftra sér frá göngunni.
Hyggst ganga 150 ferð-
ir upp á Esjuna á árinu
- Stefnir á að ganga hundruðustu ferðina fyrir vikulok
MENNING
Tónleikar Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara á há-
tíðinni BBC Proms í Royal Albert Hall í London laugar-
daginn 14. ágúst hafa hlotið lof í enskum fjölmiðlum.
Víkingur lék tvö píanókonsertverk eftir Bach og Mozart
með fílharmóníusveitinni og hafa lof-
dómar birst í The Telegraph og The
Times og segir gagnrýnandi þess
síðarnefnda að töfrandi píanó-
leikur Víkings sé sá fegursti sem
hann hafi heyrt á árinu. Bæði blöð
gefa tónleikunum fjórar stjörnur
af fimm mögulegum, en The
Guardian gefur þrjár af fimm.
Segir gagnrýnandi The
Guardian að Víkingur hafi
sýnt sínar bestu hliðar.
Víkingur er fyrsti íslenski
einleikarinn sem kemur
fram á hinni virtu tón-
listarhátíð BBC.
Gagnrýnendur hrifnir af píanóleik
Víkings á BBC Proms um helgina