Morgunblaðið - 17.08.2021, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 17.08.2021, Qupperneq 21
Það var okkur mikil gæfa þegar Rúna hóf störf hjá Rauða kross- inum. Við kynntumst fljótt, vinátt- an jókst með árunum og áttum við einstaklega gott samband. Það varð strax ljóst að Rúna var baráttukona hvað varðar mannréttindi og hikaði ekki við að láta til sín heyra ef henni mislíkaði eitthvað á pólitískum vettvangi, sem og í mannúðarmálum. Mikið var rætt á því sviði þegar við hitt- umst og gaman var að fylgjast með rökræðum Rúnu og Ingu Jónu þegar þær voru að spá í lífs- ins gagn og nauðsynjar. Voru þær oftast sammála ef ekki þá gat Rúna sannfært með sínum góðu upplýstu rökum. Þegar Rúna var nýbyrjuð hjá Rauða krossinum heyrði hún á göngunum að Imma væri að fara í göngu í Fjörður. Hún greip inn í umræðurnar og sagðist langa að fara með í þá ferð því forfeður hennar væru frá Kussungsstöð- um. Það var auðsótt og gaman að vera henni samferða í þeirri ferð. Þetta var árið 2001 og var það byrjunin á gönguferðum þeirra saman, árlega var farið í göngu- ferðir um okkar fallega land og síðan bættust við ferðir í Dólómít- ana og fjórar ferðir utanlands með félagsskapnum Skotgöngu. Í heildina fóru Rúna og Imma sam- an í 29 ferðalög á þessum 20 árum fyrir utan margar fleiri göngu- og berjaferðir. Við minnumst ferðarinnar sem við fórum allar þrjár með maka okkar til Tenerife, það var góð ferð og mikið gengið um og meðal annars farið í Masca-gilið sem nú hefur verið lokað. Rúna kunni líka að njóta sín við sundlaugabakka og skoða sig um. Talað var um að fara margar þannig ferðir sem aldrei varð úr því fyrst kom Covid og síðan krabbameinið sem fór svo illa með elsku Rúnu. Síðasta gönguferð var í septem- ber í fyrra þegar við sáum hina einstöku náttúruparadís Rauðu- fossa og augað. Þá var Rúna farin að finna fyrir þróttleysi og pantaði sér læknisrannsókn. Rúna hafði ætlað sér að verða 100 ára en sá að hún þyrfti að end- urskoða þá ákvörðun þegar hún greindist, hún var mjög skipulögð og búin að sjá efri árin fyrir sér með Jóni sínum. Þegar farið er yf- ir farinn veg sést að hún lifði 100 ár miðað við allt sem hún áorkaði. Elsku Jón Ágúst, Bjarki Rafn, Vala Sif, Sindri Freyr, Vera Björk og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ingibjörg (Imma) og Inga Jóna. Rúna var yndisleg kona. Hún var kát, glettin, skemmtileg, stað- föst, trúföst, ósérhlífin, þrautseig og einstaklega trygglynd. Hún sat í stjórn Hagsmuna- samtaka heimilanna frá 2013–2020 og er ein af þeim sem bar starfið uppi án þess að mikið bæri á. Hún tranaði sér aldrei fram en mætti á hvern einasta stjórnarfund, alltaf með prjónana, og lagði til málanna þegar henni þótti ástæða til og þá var rík ástæða til að hlusta, því Rúna var einstaklega vel inni í málum og vissi hvað hún söng. Hún hafði sterka sannfæringu. Grunnhugsjón hennar var rétt- læti. Réttlæti fyrir alla þá sem höfðu orðið undir og þá sem brotið hafði verið á. Hún lagði sig alla fram í þeirri baráttu og auk þess að berjast fyrir réttindum heim- ilanna í stjórn HH sat hún einnig í stjórnum stéttarfélaga og var í fulltrúaráði ASÍ. Það er fólk eins og Rúna sem ber uppi félagsstarf í landinu. Fólk sem starfar af hugsjón og fyrir aðra án þess að ætlast til nokkurs í staðinn. Þeir sem eru áberandi í framlínu félagasamtaka eru það af því fólk eins og Rúna starfar á bak við tjöldin. Þetta fólk, sem fáir vita af, er hryggjarstykkið í öllum fé- lögum eða samtökum sem eitthvað láta að sér kveða. Framlag Rúnu til HH verður seint metið til fulls. Hún hætti í stjórn samtakanna skömmu áður en hún veiktist en þrátt fyrir sína erfiðu baráttu fylgdist hún með okkur. Síðast sáum við hana þegar hún mætti á aðalfund samtakanna í lok febrúar á þessu ári, sem okk- ur þótti öllum virkilega vænt um og segir meira um hug hennar til HH en mörg orð. Núna þegar Rúna hefur háð sína síðustu baráttu, vilja Hags- munasamtök heimilanna þakka henni ómetanlegt starf í gegnum árin og votta öllum aðstandendum og vinum innilega samúð. Guð blessi minningu Rúnu okk- ar. Fyrir hönd Hagsmunasamtaka heimilanna Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður. Flestar vorum við um tvítugt haustið 1974, áræðnar og öflugar stelpur með hugsjón. Við ætluðum að breyta lífi ungra barna og kvenna. Skólinn, þar sem við kynntumst, hét Fósturskóli Ís- lands. Þremur árum seinna út- skrifuðumst við 56 fóstrur og réð- um okkur til starfa í leikskólum innan og utan lands. Rúna fór aðra leið en flestar okkar og starfaði lengst af við skrifstofustörf. Hún hélt samt tryggð við okkur og var virkur félagi í „saumklúbbi“ sem þær allra hörðustu í kvennabar- áttunni töldu vera tímaskekkju. Tilgangur klúbbsins er að hittast og ræða saman. Við gerum mikið af því og höfum skoðanir á öllu. Umræðan hefur þróast frá barn- eignum og fagmálum í að skemmta okkur og hlæja mikið enda hefur lífið kennt okkur að gleðin og samhygðin eru okkur mikilvægust. Rúna var hugsjóna- og baráttu- kona. Hún hafði samúð með lítil- magnanum og tók þátt í baráttu fyrir bættum kjörum fjölskyldna sérstaklega eftir hrunið. Sjálf var hún hagsýn og fór vel með fé. Á sinn yfirvegaða hátt fræddi hún okkur um fjármál og réttindi og hvernig við gætum ferðast á ódýr- an hátt eftir að hægt var að panta flug á netmiðlum. Þegar einhver okkar varð fyrir áfalli sýndi Rúna einstaka ræktarsemi. Hún hringdi, hlustaði, styrkti og hugg- aði af einstakri hjartagæsku. Fyrir nokkrum árum stakk Rúna upp á því að við færum til Glasgow. Hún skipulagði ferðina, pantaði flug, hótel og borð á veit- ingastað. Rúna vissi nákvæmlega hvar átti að búa, borða og versla. Löng helgi var skipulögð út í ystu æsar. Þar sem við erum sjálfstæð- ar konur vorum við fegnar að fá svolítið frelsi innan skipulagsins og kvöldhrafnarnir nutu rölts milli karíókípöbba borgarinnar á með- an morgunhanarnir hvíldu lúin bein. Fyrir tæpum tveimur árum bauð ein úr hópnum í vikulangan saumaklúbb í húsi sínu á Spáni. Rúna var upptekin vikuna áður í gönguferð í Austurríki. Það stoppaði hana ekki þótt hún þyrfti að skipta um flugvél í Leifsstöð og kæmist ekki heim til sín á milli ferða. Aftur tók hún stjórnina í praktískum málum. Hún fann ódýrasta flugið til Alic- ante. Þegar við hittum hana í Leifsstöð, vel búnar undir nætur- flug til Spánar, var ekki að sjá að Rúna væri að koma úr göngu og kvöldflugi því henni fylgdi smit- andi gleði og galsi sem hélst út þennan vikulanga saumaklúbb. Við leigðum fimm manna bíl sem notaður var til að ferja okkur sjö konur innanbæjar en þegar ákveðið var að fara til Torrevieja fannst Rúnu lítið mál að ganga þessa 12 km sem voru milli bæja. Tvær okkar gengu með henni og áttu fullt í fangi með að fylgja Rúnu eftir í 30 stiga hita þrátt fyrir að vera í góðu formi. Þegar hún sagði okkur, rúmlega ári eft- ir Spánarferðina, að hún hefði greinst með mein í lunga fannst okkur sorglegt að Rúna, sem hreyfði sig á hverjum degi og lifði heilsusamlegu lífi, skyldi kenna sér slíks meins. Baráttukonan vakti með okkur von. Rúna ætlaði að sigra meinið með jákvæðni og lagði á sig erfiðar meðferðir. Það er huggun harmi gegn að elsku Rúna okkar þjáist ekki lengur. Við vottum Jóni, börnum þeirra og barnabörnum okkar dýpstu samúð. Íris, Lovísa, Margrét, Sig- ríður, Sigrún, Sjöfn, Soffía Dagmar, Soffía, Sólveig, Stefanía, Sæunn, Valdís og Þorbjörg. Þvílíkt lán að við Rúna vorum valdar saman á tveggja manna stofu á fæðingardeildinni fyrir tæpum 29 árum. Þarna var hún öryggið uppmálað með fjórða og yngsta barnið sitt, en ég með frumburðinn og tók óspart út úr reynslubanka Rúnu. Á stofu sjö var mikið spjallað, hlegið og sprellað og þarna tengdumst við systraböndum. Það var Rúnu í blóð borið að rækta garðinn sinn í víðustu og bestu merkingu þess hugtaks. Óhætt er að segja að garðurinn í Jöklafoldinni beri hennar merki, fallegur og skipulagður í sam- ræmi við blómgunartíma. Við hin höfum líka notið góðs af og þykir mér sérlega ljúft að ganga um garðinn minn og fylgjast með fyrrverandi Jöklafoldarafleggj- urum og runnanum góða frá Rúnu vaxa og dafna. Rúna lét ekki sitt eftir liggja í umhverfismálunum. Hún gekk grænum skrefum um samfélagið og hikaði ekki við að benda á leið- ir til úrbóta í þeim efnum. Við vin- konurnar tókum þátt í verkefninu Vistvernd í verki þegar það var enn á tilraunastigi rétt eftir alda- mótin. Visthópurinn okkar fór markvisst saman í gegnum mögulegar aðgerðir til umhverf- isvænni lífsstíls, s.s. að draga úr orkunotkun og úrgangi heimilis- ins. Hver fjölskylda valdi sínar leiðir til að bæta vistspor sitt. Gerðar voru mælingar í upphafi og aftur í lokin til að sjá hvernig til tókst hjá hverju heimili. Mig minnir að það hafi verið afar lítið svigrúm til bætingar hjá Rúnu og fjölskyldu því hún var bara með þetta, alltaf jafn útsjónasöm og nýtin. Barátta Rúnu fyrir réttlæti og bættu samfélagi var drifin áfram af sterkri réttlætiskennd og lét hún til sín taka á mörgum víg- stöðvum. Hjá henni var aldrei neitt hálfkák. Hún skoðaði mál ofan í kjölinn og var einstaklega nösk á að átta sig á kerfisvillum. Umbótasinninn Rúna sat ekki úti í horni og tuðaði, heldur kom mál- efnum á framfæri við hlutaðeig- andi aðila. Með einstökum hætti tókst henni að tala um flókin mál á mannamáli. Nú rifjast upp ótal samveru- stundir með hádegishópnum og Rauðu hættunum og alls konar annað í boði Rúnu, þegar hún var dregin út í leikjum á rás tvö eða Bylgjunni. Hún var líka allt- af til í sprell. Einn morguninn datt Rúnu í hug að upplagt væri gleðja Önnu vinkonu okkar með óvissuheimsókn þar sem hún væri að flytja til Danmerkur. Hún var ráðskona í ferðaþjón- ustusveit í Borgarfirði á þessum tíma. Þegar við nálguðumst bæ- inn var Anna þegar komin út, því haldið var að þarna væri forset- inn sjálfur að renna í hlað. Því var svarta drossían hennar Rúnu aldrei kölluð annað en for- setabíllinn eftir þetta. Ég sé fyr- ir mér prakkarasvipinn á Rúnu þegar Anna áttaði sig á því að símtalið frá henni um morgun- inn hafði verið upplýsingaöflun og hluti af plottinu. Eins og svo oft tókst Rúnu þarna að skapa dásamlegan og afar fjörugan vinafund og minningar sem lifa. Það sem ég á eftir að sakna þín elsku vinkona. Kæru Jón, Bjarki, Vala, Sindri Vera og fjölskyldur, við Rituhöfðafjölskyldan vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Herdís Sigurjónsdóttir. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2021 ✝ Sr. Sigurjón Einarsson, fyrrverandi sókn- arprestur og pró- fastur, fæddist 28. ágúst 1928 í Aust- mannsdal í Ket- ildölum í V-Barða- strandarsýslu og ólst upp lengst af á Fífustöðum í Arn- arfirði. Hann lést 23. júlí 2021 að Hrafnistu í Reykjavík. Foreldrar Sigurjóns voru Einar Bogi Gíslason búfræð- ingur, bóndi, sjómaður og hreppstjóri, f. 3. september 1906, d. 14. mars 1987, og Krist- jana Vigdís Andrésdóttir ljós- móðir, f. 3. september 1891, d. 30. mars 1986. Fóstursystkini Sigurjóns voru Stefán Thor- oddsen, f. 12. júní 1922, d. 15. mars 1997, og Rut Salómons- dóttir, f. 30. júlí 1936, d. 6. maí 2014. Sigurjón kvæntist 12. mars 1955 Jónu Þorsteinsdóttur, f. 21. febrúar 1927, d. 6. janúar 2001, bókasafnsfræðingi og kennara. Hún var dóttir Þorsteins Krist- jánssonar, f. 31. ágúst 1891, sem fórst með ms. Þormóði 18. febr- úar 1943, sóknarprests í Sauð- lauksdal, og k.h., Guðrúnar Pet- reu Jónsdóttur, f. 24. desember Æskulýðsfylkingarinnar 1953- 57. Sigurjón var sóknarprestur í Kirkjubæjarklaustursprestakalli 1963-98 og prófastur Skaftafells- prófastsdæmis 1989-98. Á Kirkju- bæjarklaustri vann Sigurjón mjög að ýmsum framfaramálum fyrir héraðið. Hann og kona hans, Jóna, stofnuðu unglinga- skóla á Kirkjubæjarklaustri og Sigurjón var í áratugi formaður skólanefndar Kirkjubæjarskóla. Hann tók einnig mikinn þátt í öðru félags- og menningarstarfi og var m.a. formaður Þjóðhátíð- arnefndar V-Skaftafellssýslu á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar og formaður bygg.nefndar Minn- ingarkapellu sr. Jóns Steingríms- sonar. Sigurjón var um skeið oddviti Kirkjubæjarhrepps, kirkjuþings- maður Suðurlands og sat í Kirkjuráði. Sigurjón skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit um söguleg efni. Hann ritstýrði Dynskógum, hér- aðsriti Vestur-Skaftfellinga, 1982-97, og Verslunarsögu Vestur-Skaftfellinga, 1987-93. Hann var formaður ritstjórnar verksins Kristni á Íslandi og var stundakennari við guðfr.deild HÍ. Árið 2006 kom út ævisaga Sig- urjóns, Undir hamrastáli – Upp- vaxtarsaga og mannlífsmyndir úr Arnarfirði. Útför Sigurjóns fer fram frá Fossvogskirkju í Reykjavík 17. ágúst 2021 klukkan 13. 1901, d. 2. maí 1977. Börn Sigurjóns og Jónu eru: 1) Æsa Sigurjónsdóttir, f. 23. september 1959, listfræðingur, gift Daniel Beaussier, f. 2. júní 1957, tónlist- armanni; börn þeirra eru: Vigdís Lára, f. 11. febrúar 1989, gift Pascal Combescot; Stefán Jón, f. 7. mars 1990, maki Tessa van der Voort; Tómas Bogi, f. 21. apríl 1991, maki Tara Beu- zen-Waller, og Kristján Helgi, f. 23. ágúst 1995. 2) Ketill, f. 19. ágúst 1966, lögfr. og fram- kvæmdastjóri; börn hans eru Guðrún Diljá, f. 30. janúar 1998, og Sigurjón Bogi, f. 6, mars 2001. Barnabarnabörn Sig- urjóns eru nú tvö. Sigurjón varð stúdent frá MA 1950 og lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 1956. Árin 1957-59 stundaði hann framhaldsnám í kirkju- og trúarbragðasögu við háskólana í Vín, Köln og Erlangen. Á náms- árunum var Sigurjón sjómaður á bátum og togurum og kennari í Garði, í Mosfellssveit og við gagnfr.skólann í Kópavogi. Hann tók um skeið þátt í stjórn- málum og sat í samb.stjórn Afi Sigurjón var einstaklega flinkur og skemmtilegur frásagn- armaður og góður í að segja sög- ur, bæði um eigin upplifun og frá sagnfræðilegum atburðum. Hann kenndi mér líka snemma um stuðla og höfuðstafi og hvatti mig til að setja saman vísur. Mér er t.d. minnisstæð ein frá því hann var í heimsókn hjá okkur í Kaupmannahöfn þegar ég var átta ára og hann fór með okkur bróður mínum, Sigurjóni Boga, í dýragarðinn. Guðrún stelpan góð og fín, getur blundað senn. Sigurjón með sitt sverðagrín, segist höggva menn. Afi hélt mikið upp á Köben og það var gaman þegar við spók- uðum okkur í borginni og snædd- um danska pylsu. Einnig áttum við góðar stundir saman á Ís- landi, bæði á Hvassaleitinu með jólaköku og mjólkurglas, þar sem ég teiknaði ófáar myndirnar við gamla skrifborðið hans, og við Hæðargarðsvatn með fallegt útsýnið til Kirkjubæjarklausturs. Allt eru það fjarska góðar minn- ingar. Ég kveð þig, elsku afi. Guðrún Diljá Ketilsdóttir. Í huga mínum skín sólin alltaf á Klaustri og jökullinn er bjart- ur í austri bak við tryggðatröllið Lómagnúp. Á þann veg eru líka minningar mínar um Sigurjón Einarsson, „fóstra“ minn eins og hann sagði stundum sjálfur. Prestssetrið á Klaustri, hjá þeim Jónu, móðursystur minni, og Sigurjóni, var mitt annað heimili í æsku og þar dvaldi ég lungann úr sumrum og síðar meir einnig oft í öðrum skólafrí- um og tengdist því þeim og börnum þeirra, Æsu og Katli, sterkum böndum. Þau hjón höfðu mikil mótunaráhrif á mig og reyndust mér alla tíð einstak- lega vel. Heimilið á Klaustri var mikið menningarheimili og þar voru bókmenntir og fræði í hávegum höfð svo ekki sé minnst á sam- félagsmál sem rædd voru í þaula við gesti og gangandi en ávallt var mikill gestagangur á heim- ilinu. Jafn aðgangur að lífsins kjörum og framfarir til hagsbóta fyrir samfélagið var leiðarljós þeirra hjóna. Í þeim efnum létu þau ekki sitt eftir liggja en eitt þeirra fyrsta verk þá þau fluttu að Klaustri snemma á sjöunda áratugnum var að beita sér fyrir eflingu skólamála þar eystra. Sigurjón var sístarfandi og gegndi í raun mun fleiri störfum en hefðbundnum prestsverkum: sat í hinum ýmsu ráðum og nefndum sem lutu bæði að starfi hans sem prestur og að heima- byggðinni. Í minningunni heyri ég sláttinn í ritvélinni út úr skrifstofunni, sem ætíð var á heimilinu, og verð vör við alls kyns fólk koma og fara af hans fundi. Hann líka að skreppa á Reinsanum góða að vitja sókn- arbarna og hitta mann og annan heima í héraði og utan. Sigurjón gaf sér þó alltaf góðan tíma fyrir heimilisfólkið og ræddi við það af áhuga og hjartahlýju um þeirra sýsl og hugsanir. Sigurjón fór ósjaldan í kvöld- göngu út að Systrastapa að loknu góðu dagsverki. Hann var líka duglegur að fara með okkur Æsu upp á fjall yfir æsilegt klettabelti beint upp af húsinu og þaðan inn á heiði. Í leiðinni fræddi hann okkur um hina miklu sögu staðarins og varaði okkur við nykrinum í Systra- vatni. Ég minnist líka margra góðra ferða að sumri til með þeim vítt og breitt og kannski ekki hvað síst hins árlega berja- mós úti í hrauni með góða nestið hennar Jónu í skjóðunum. Messuferðir að Prestbakka eru líka minnisstæðar en gjarnan vorum við Æsa spurðar að þeim afloknum hvað okkur hefði fund- ist um prédikunina og varð þá kannski stundum fátt um svör þar sem barnshugurinn vildi reika á meðan messuhaldinu stóð. En þannig vildi Sigurjón ætíð efla sjálfstæða hugsun ung- menna og stuðla að auknum þroska þeirra. Síðustu æviárin bjó Sigurjón við skerta hreyfigetu og slæm heyrn þjakaði hann, sem kom í veg fyrir að hann gæti átt í þeim félagslegu samskiptum sem hann vildi, en hugurinn var skýr sem fyrr. Hann var því ugglaust hvíldinni feginn eftir langan og giftusaman æviferil. Ég kveð „fóstra“ minn og minnist hans og þeirra beggja, Jónu og Sig- urjóns, með mikilli hlýju og þakklæti. Þóra Björk Hjartardóttir. Séra Sigurjón Einarsson var kjörinn sóknarprestur í Kirkjubæjarklausturs- prestakalli þann 8. desember 1963 og þar með hófst 35 ára prestsþjónusta hans í héraðinu. Skömmu eftir að Sigurjón settist að á Kirkjubæjarklaustri spurði Siggeir Lárusson, oddviti Kirkjubæjarhrepps, hvort hann væri ekki til í að taka til hendinni og þoka skólamálum sveitarfé- laganna áfram: Það samrýmdist vel hugmynd Sigurjóns að sveita- prestur ætti ekki aðeins að helga sig kirkjustarfi heldur einnig að láta að sér kveða í félagsmálum, ekki síst í skólamálum. Ekki er að orðlengja það að Sigurjón tók hvatningu Siggeirs oddvita og fljótlega var hafist handa við að byggja nýjan skóla á Kirkjubæjarklaustri, með þátt- töku allra hreppanna á milli Sanda. Arkitekt var Jes Einar Þorsteinsson. En starfið var ekki alltaf átakalaust, skiptar skoðan- ir um staðsetningu skólans urðu allt í einu svo háværar að sumir menn óttuðust um framhaldið. Þótt Sigurjón gæti verið fastur fyrir þá var hann einnig laginn við að leiða ólík sjónarmið til sátta og farsællar niðurstöðu. Í framhaldinu reis Kirkjubæjar- skóli á Síðu og var settur þann 4. október 1971, sameiginlegur skóli hreppanna á milli Sanda. Óhætt er að fullyrða að stofnun Kirkjubæjarskóla á Síðu var bæði félagslegt og fjárhagslegt afrek þar sem hlutur Sigurjóns er óumdeildur, ekki síst hvernig honum tókst að sætta ólík sjón- armið og ljúka verkefninu á jafn glæsilegan hátt og raun ber vitni. Samstarfið um stofnun Kirkju- bæjarskóla braut ísinn og grunn- ur var lagður að margvíslegri samvinnu sveitarfélaganna. Að- koma Sigurjóns að byggingu heilsugæslustöðvarinnar á Kirkjubæjarklaustri var eftir- minnileg og lagði grunninn að mörgu sem nú þykja sjálfsagðir hlutir, svo sem hjúkrunarheimili og góðri öldrunarþjónustu í sam- félaginu. Héraðsrit Vestur-Skaftfell- inga, Dynskógar, kom fyrst út 1982 undir ritstjórn Helga Magn- ússonar sagnfræðings, Björgvins Salómonssonar, skólastjóra við Ketilstaðaskóla í Mýrdal, og Sig- urjóns. Dynskógar vitna um áhuga frumkvöðlanna þriggja á varðveislu sögu- og menningu héraðsins. Sigurjón var sístarfandi í þágu samfélagsins, ef allt ætti að tí- unda þyrfti að skrifa heila bók, og óhætt er að fullyrða að svipmót Kirkjubæjarklausturs og sveit- Sigurjón Einarsson SJÁ SÍÐU 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.