Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Síða 2
Velkomin á Hinsegin
daga í Reykjavík
Welcome to Reykjavík Pride
Hinsegin dagar í Reykjavík eru nú haldnir í sextánda sinn og hátíðin
er umfangsmeiri og margbreytilegri en nokkru sinni fyrr. Dagana
5.–10. ágúst bjóðum við upp á fjölbreytta menningardagskrá,
svo sem kvikmyndasýningar, fyrirlestra, pallborðsumræður og
íþróttaviðburði, að ógleymdum hápunktunum: opnunarhátíð,
gleðigöngu, útitónleikum og hátíðardansleik.
Að þessu sinni er þema dagskrárritsins „ögrun“ en með því
er átt við allt það sem gengur gegn því sem þykir „venjulegt“ eða
hefðbundið og vekur fólk til umhugsunar um slík norm. Hinsegin
fólk er í eðli sínu ákveðin ögrun við samfélög sem gera ráð fyrir að
gagnkynhneigð og kynjaðar staðalmyndir séu sjálfsagðar. Hér er þó
líka lögð áhersla á það sem ögrar sjálfu hinsegin samfélaginu en í
blaðinu birtast þrjú einlæg viðtöl við einstaklinga sem hafa meðal
annars fundið fyrir fordómum og skilningsskorti frá öðru hinsegin
fólki.
Forsíða blaðsins í ár er einnig ögrandi en að þessu sinni var
styttan af Ingólfi Arnarsyni klædd í litrík klæði og atgeirnum breytt
í regnbogafána. Hið sama var gert við fleiri styttur sem staðsettar
eru meðfram gönguleið gleðigöngunnar og birtast í auglýsingum
fyrir hátíðina. Markmiðið með þessum gjörningi er meðal annars
að benda á að langflestar stytturnar í miðborg Reykjavíkur eru
af (eftir því sem við best vitum) gagnkynhneigðum karlmönnum
í valdastöðum, nokkurs konar landsfeðrum, sem hafa orðið að
þjóðhetjum í söguvitund Íslendinga. Aftur á móti hafa fáar konur
og sárafáir – jafnvel engir – opinberlega hinsegin Íslendingar
öðlast þann virðingarsess að fá reista af sér styttu á áberandi
stað. Með því að klæða stytturnar í regnbogaliti vill ritstjórn ögra
lesendum sínum og hvetja þá til að leiða hugann að því að saga
okkar, þjóðerni og menning er að öllum líkindum mun litríkari og
fjölbreytilegri en þessar styttur gefa til kynna dagsdaglega.
Fyrir hönd stjórnar og samstarfsnefndar Hinsegin daga í
Reykjavík bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á hátíðina.
Gleðilega Hinsegin daga 2014!
Iceland celebrates Reykjavik Pride for the 16th time and this
year the festivities are bigger and more diverse than ever
before. Between 5–10 August pride visitors are invited to enjoy
all sorts of events, from film screenings, lectures and panel
discussions to sports events, and of course the main annual events:
the Opening Ceremony, the Pride Parade and the Pride Ball.
This year the magazine’s theme is “provocation”, or
everything that goes against what is considered “normal” or
traditional and urges people to think about such norms. Queers
are a natural provocation to normative societies, but here we
also discuss issues that challenge the gay community and its
norms, such as bisexuality, pansexuality and intersex.
On the cover of the magazine readers will see another
provocation: the landmark statue of Ingólfur Arnarson on the
top of Arnarhóll hill, dressed in colours and carrying the rainbow
flag. Other statues, which are situated along the parade route
and appear in advertisements for the festivities, received the
same treatment. Our goal with this performance is to point out
that most of the statues in Reykjavík’s city center represent
heterosexual (as far as we know) men in power, who have
become national heroes in Icelandic historical memory. There
are, however, few statues of women and very few – if any –
of openly LBGTI individuals in public places in Reykjavík. By
dressing the statues in rainbow colours the editorial board seeks
to encourage readers to think critically about Icelandic history,
nationality and culture – which is much more colourful and
diverse than the statues usually imply.
On behalf of the board and committees we welcome you to
Reykjavík Pride 2014. Happy Pride!
Jón Kjartan Ágústsson og Ásta Kristín Benediktsdóttir
Landsbankinn 410 4000landsbankinn.is
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Gleðilega hátíð
3