Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 22
Hinsegin dagar – til hvers?
Hugleiðing um tilverurétt hátíðarinnar
Síðan síðasta hátíð Hinsegin daga var haldin hefur margs konar
umræða um hinsegin málefni farið fram á Íslandi í fjölmiðlum og
á öðrum vettvangi. Sú umræða hefur oft verið jákvæð en líka
neikvæð. Nokkuð hefur borið á gagnrýni á hinsegin fólk, raddir
þess og sýnileika, sem sumum þykir orðinn of mikill. Orð á borð
við „frekjusamkynhneigð“ hafa heyrst en með því er gefið í skyn
að nú hafi samkynhneigðir öðlast öll hin sömu borgaralegu réttindi
og aðrir þegnar og að þegar þeir bendi á óréttlæti eða mismunun
séu þeir bara með frekju og yfirgang. Einnig hefur sú skoðun verið
látin í ljós að gleðiganga Hinsegin daga sé klámfengin og skaðleg
börnum, þar sem nekt og ástaratlot fólks af sama kyni eigi ekki
að vera sýnileg þar sem börn sjá til. Svo virðist sem komið sé að
þolmörkum hjá ákveðnum hópi fólks sem umber hinsegin fólk
ef það hefur ekki of hátt. Um leið og sýnileikinn verður meiri og
ögranirnar við hið gagnkynhneigða gildismat margvíslegri fara að
heyrast kvartanir. Lítum í því sambandi nánar á tilgang og hlutverk
Hinsegin daga.
Hinsegin dagar eru hátíð sem þjónar að minnsta kosti þrenns
konar hlutverki. Í fyrsta lagi að gleðjast yfir þeim áföngum sem
náðst hafa í mannréttindabaráttu hinsegin fólks og fagna sýnileika
samkynhneigðra, tvíkynhneigðra, transfólks, intersex fólks og
annarra sem falla undir hinsegin regnhlífina. Í öðru lagi stuðlar
hátíðin að umfjöllun um menningu og sögu hinsegin fólks. Í þriðja
lagi – og þetta atriði vill oft gleymast – minna Hinsegin dagar
á þau réttindi sem ekki hafa enn náðst og það óréttlæti og þá
fordóma sem enn viðgangast, bæði á Íslandi og meðal annarra
þjóða. Það er staðreynd að þótt réttarstaða samkynhneigðra á
Íslandi sé með því besta sem þekkist þá viðgangast enn fordómar
og mismunun og aðrir hópar innan hinsegin samfélagsins hafa ekki
fengið sín réttindi tryggð. Í könnun sem Samtökin ’78 létu gera
síðastliðinn vetur kom í ljós að rúm 80% þátttakenda höfðu orðið
fyrir aðkasti vegna kynhneigðar sinnar eða kynvitundar, fengið
óviðeigandi spurningar eða athugasemdir, heyrt fordómafulla
umræðu eða lent í einelti – og meirihlutinn hafði upplifað slíkt á
síðustu þremur árum.
Það er ekki frekja að krefjast þess að fordómum sé eytt
úr samfélaginu eða að fólk sýni umburðarlyndi og víðsýni. Það
er heldur ekki réttmæt krafa að fólk hegði sér á ákveðinn hátt
til að þóknast öðru fólki sem ekki er tilbúið að viðurkenna
margbreytileika mannlífsins. Hinsegin dagar fagna margbreytileika,
ekki bara þeim sem hegða sér eins og „venjulegt fólk“ – hvað sem
það nú þýðir. Gleðiganga Hinsegin daga er grasrótarviðburður
og atriðin í henni eru ekki skipulögð af stjórnendum hátíðarinnar
heldur fólkinu sem tekur þátt. Það fólk er alls konar –
samkynhneigt, tvíkynhneigt, gagnkynhneigt og pankynhneigt;
transfólk, sísfólk og intersex fólk; giftir og ógiftir; mæður,
dætur og systur; synir, bræður og feður; fólk í lopapeysum og
fólk í lendaskýlum; konur með skegg og karlar í kjólum; fólk
sem fílar að fara í ísbíltúr á sunnudögum og fólk sem finnst
nauðsynlegt að ögra ríkjandi viðhorfum; fólk sem kyssist og fólk
sem helst í hendur. Ef einhverjum finnst of mikið um nakið hold í
gleðigöngunni eða ef einhverjum ofbýður að sjá tvo einstaklinga
af sama kyni kyssast á almannafæri leggjum við til að viðkomandi
líti á auglýsingar í fjölmiðlum og það sjónvarpsefni sem daglega
er fyrir augum – til dæmis tónlistarmyndbönd – og íhugi hve oft
þeir sjá gagnkynhneigða nekt og gagnkynhneigð atlot á almannafæri.
Samanburðurinn leiðir að öllum líkindum í ljós að mun líklegra er að
börn sjái nekt og kossa annars staðar en í gleðigöngu Hinsegin daga.
Gleðigangan er fyrir alls konar fólk. Hinsegin fólk. Það er
hinsegin af því að það er ekki „venjulegt“ og af því að kynhneigð
þess, kynverund eða líkamar falla ekki að því sem talið er gott og
gagnkynhneigt. Þess vegna höldum við hátíðlega Hinsegin daga –
til að undirstrika að það er fagnaðarefni að vera hinsegin! Sú krafa
að allir séu „venjulegir“ býður upp á mismunun, kúgun og fordóma
sem beinast ekki bara að þeim sem alla jafna fylkja sér undir merki
hátíðarinnar heldur líka öllum þeim sem ekki ganga í takt við
ríkjandi gildismat. Með öðrum orðum, öllum sem eru „of“ þetta
eða „ekki nógu“ hitt. Heimurinn verður svo miklu mannúðlegri og
betri ef allir regnboginn fær að njóta sín. Sýnum umburðarlyndi og
víðsýni – fögnum fjölbreytileikanum og fordæmum fordóma.
Stjórn og samstarfsnefnd Hinsegin daga í Reykjavík Landleguball
Shore Leave Dance
Kiki, Laugavegi 22
föstudaginn 8. ágúst
kl. 23:00. Aðgangur:
1.000 kr. Pride passi gildir.
Kiki Queer Bar,
Laugavegur 22, Friday
8 August at 11:00 p.m.
Admission: 1.000 ISK.
Pride Pass valid.
Eftir siglingu um sundin blá býður Kiki sæförum og
landkröbbum að hita upp fyrir hinsegin helgina með
glæsilegu landleguballi. Plötusnúðar og lifandi tónlist
í boði fram á nótt með hýrri sjóliðastemningu.
The annual Shore Leave Party will take place
at Kiki Queer Bar following the Pride Cruise,
providing the perfect chance to jumpstart your
Pride weekend. DJs and live musical performances
until early morning.
42