Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 28

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 28
Ég velti því stundum fyrir mér hvernig hún varð til þessi þörf, að ögra heiminum og reyna að standa með sjálfum mér. Kannski á ég allt þetta að þakka þeirri staðreynd að ég gekk í gegnum hræðilegt einelti í æsku. Ég er fæddur árið 1968 og ólst upp í Danmörku fyrstu ár ævinnar. Fjölskyldan fluttist svo til Íslands þegar var ég á áttunda ári og ég settist í Snælandsskóla í Kópavogi, í hóp krakka sem höfðu verið saman frá því þau voru sex ára. Þeim þótti ég skrýtinn. Ekki svo að skilja að ég talaði með hreim, þvert á móti talaði ég óvenju vandaða íslensku sem ég hafði lært af foreldrum mínum, var harðmæltur eins og mamma, og kunni alls ekkert íslenskt slangur. Það eitt nægði til að gera mig öðruvísi í augum krakkanna. Tilraun til manndráps í Snælandsskóla Ég hafði heldur engan áhuga á þeirra hugðarefnum, gat til dæmis engan veginn skilið hvað væri svona spennandi við íþróttir og smám saman jókst eineltið. Þegar ég var tólf ára leið mér hræðilega. Þann vetur bað söngkennarinn okkur einu sinni um að velja lag sem okkur langaði til að syngja og koma með tillöguna í tíma. Ég fékk mikið hrós frá kennaranum fyrir það hvað ég hefði sett mál mitt vel fram og útskýrt hvað mér þætti svona gott við lagið. Þá tók steininn úr og á heimleiðinni þennan dag var setið fyrir mér. Ég var laminn sundur og saman, ég missti meðvitund, með háræðasprengingar í augum og illa marinn á barkakýlinu eftir kverkatak strákanna í bekknum. Faðir minn læknirinn sá til þess að ég fór í rækilega skoðun og þar var kveðinn upp sá úrskurður að aðeins hefði munað hársbreidd að ég hefði verið drepinn. Þetta varð auðvitað stórmál og kom til kasta skólastjórans en þar var engan stuðning að fá. Hann sneri málinu á hvolf, spurði hvort ég gæti ekki látið minna fyrir mér fara því það væri greinilega eitthvað við mig sem storkaði fólki. Með þann dóm á bakinu þraukaði ég næstu árin. Nakinn drengur á kletti Og svo lá leiðin í Menntaskólann í Kópavogi. Það varð hans mikla happ því að fæstir af gömlu félögunum úr Snælandsskóla fóru í framhaldsnám. Í nýjum skóla var Sibbi óþekkt stærð. Þessu fylgdi alveg ótrúlegt frelsi og nú braust hann út þessi vilji til að finna sjálfan mig og kveðja litlu mýsluna. Og ég kom út úr skápnum á þann hátt sem sextán ára strákur kunni best. Ég fór markvisst að senda heiminum mín skilaboð og varð „flamboyant“ svo um munaði. Einn daginn mætti ég í skólann með lakkaðar neglur, annan daginn með tvílitt hár og þann þriðja með gloss á vörum og bleikan augnskugga. Það merkilega var að þessu var tekið meðal krakkanna, þetta var um miðjan níunda áratuginn og ég féll á einhvern hátt inn í ærslin og ókyrrðina sem lá í loftinu. Stundum olli þetta fjaðrafoki á efri hæðum en þó keyrði um þverbak þegar við nokkrir strákar stofnuðum Pervertafélag Ingólfsskóla, PISK. Eina framtak félagsins var að búa til fyrstu síðu í dagatali með mynd af „dreng mánaðarins“ og auðvitað varð ég fyrstur fyrir valinu. Af mér voru teknar þessar fínu myndir þar sem ég sat nakinn uppi á kletti og síðan búið til plakat sem við hengdum upp á skólaganginum. Þá upphófst mikið fjaðrafok meðal sumra strákanna í skólanum, þeim fannst karlmennskunni ógnað og það varð til þess að Ingólfur skólameistari skipaði mannskapnum að fjarlægja myndina undir eins. Þar endaði félagsstarfið í PISK og næsti „drengur mánaðarins“ komst aldrei upp á vegg. En ég man að þetta voru flottar svarthvítar nektarmyndir! Á þessum árum voru Samtökin ’78 fyrir löngu orðin sýnileg í samfélaginu, allir vissu af þeim og þau buðu upp á vandaða fræðslu og umræðufundi í framhaldsskólum. Fyrstu árin mín í menntaskóla var það reyndar átak að mæta á fund, og strákarnir mönuðu hver annan upp í alls konar fíflalátum til að geta látið sjá sig. Svo var sportið það að reyna að fíflast á fundunum. En þetta breyttist hratt þessi fjögur ár og síðasta veturinn minn í skólanum þótti sjálfsagt mál að mæta á þessa fundi. Nú vildu allir fá Samtökin í heimsókn. Sparkað inn í Samtökin ’78 Í öllum þessum fíflalátum gerðist nokkuð sem hafði áhrif á líf mitt. Einn daginn barst mér umslag frá Samtökunum ’78, fréttabréf og gíróseðill og mér tilkynnt að ég yrði þar fullgildur félagi um leið og ég greiddi félagsgjaldið. Einhverjir spaugarar í vinahópnum höfðu skráð mig símleiðis og haldið sig vera að gera mér grikk. En ég tók tilboðinu, fór niður á Lindargötu 49 þar sem félagið var til húsa og greiddi mitt gjald. Þar var fólk alveg miður sín og ég margfaldlega beðinn afsökunar, svona lagað átti ekki að geta gerst. En ég þakkaði bara pent fyrir mig, hrekkurinn truflaði mig ekki meira en svo. Eiginlega má segja að mér hafi verið sparkað inn í Samtökin ’78! Þar með var Sigurbjörn orðinn „einn af hommunum“. Brátt fór hann að blanda geði við fólk á vettvangi félagsins og það var „svolítið sjokk“ eins og hann orðar það. Ég man að þegar ég kom fyrst inn í félagsmiðstöðina á fimmtudagskvöldi sat þar fyrir hópur af miðaldra mönnum sem stukku beinlínis á mig – ég var jú nítján ára. Tólf ára í Snælandsskóla. Drengur mánaðarins á fyrsta ári. Myndin sem eitt sinn olli uppnámi í menntaskóla er hins vegar löngu glötuð. Og ég man hvað samkynhneigð var ógurlegt tabú fyrir mörgum. Fólk var að leggja bílum sínum niðri við Skúlagötu og laumast eftir krókaleiðum að húsinu og forðast svo að lenda í geislanum af næsta ljósastaur á leið inn í húsið. Þetta fannst mér skrýtið, en eftir á að hyggja er hollt að hafa fengið að kynnast þessum tímum og óttanum sem lá í loftinu. Þetta átti svo eftir að breytast ótrúlega hratt á næstu árum. Og áður en ég vissi af var ég kominn í ungliðahópinn og búinn að finna mér þennan fína kærasta. En örlögin ætluðu Sigurbirni aðra leið. Kvöld eitt var hann staddur á veitingahúsi og við næsta borð sat stúlka með félaga sínum úr hópi hommanna sem Sibbi kannaðist við. Saman héldu þau svo öll í partí vestast í Vesturbænum og þar fengu gestirnir að gista í sófanum um nóttina. Stúlkan sem kúrði við hliðina á Sigurbirni hét Nanna og var förðunarfræðingur eins og hann. Rændir sínum besta syni Ég man að við löbbuðum heim um morguninn og stoppuðum á nokkrum kaffihúsum á leiðinni til að drekka te. Við höfðum um svo margt að tala. Þegar við kvöddumst vorum við orðnir vinir. Svo fórum við að hittast og smám saman urðu til sterkar tilfinningar sem hafa verið með okkur síðan. Þegar ég áttaði mig á því að ég var orðinn yfir mig ástfanginn af Nönnu þá fyrst fannst mér ég verða að draga andann djúpt. Tvíkynhneigð var ægilega viðkvæmt málefni innan Samtakanna ’78, alls staðar í kringum mig var fólk sem sagði að þeir sem kölluðu sig tvíkynhneigða væru bara að blekkja sig, þetta væru hommar og lesbíur sem ekki treystu sér til að koma úr skápnum. Eflaust var það brot af sannleikanum, sumir höfðu farið þá leið, en það var bara brot. Áður hafði Einar Þorleifsson talað opinberlega um tvíkynhneigð sína í Mannlífi árið 1986, en af því vissi ég ekki þá og hafði engar fyrirmyndir sem ég þekkti. Enn og aftur stakk ég í stúf við heiminn, ég hafði komið út sem hommi en varð svo að fara í hina áttina og játa það fyrir sjálfum mér og öðrum að ég væri tvíkynhneigður. Þetta kostaði mikið stríð. Ég fann fyrir mikilli reiði og í hópi hommanna var harður kjarni sem lagði bókstaflega fæð á Nönnu. Ýmsir muna Trixí sem nú er látinn. Það var hreinlega óbærilegt að hitta hann á götu. Hann ætlaði beinlínis í Nönnu og hún fékk að heyra það að hún hefði rænt hommaþjóðina sínum besta syni! Hún gat ekki komið á mannamót þar sem Trixí var staddur. En við áttum stuðning ungliðanna, þeim fannst þetta mál okkar Nönnu og voru ekkert að efast um tilfinningar okkar. Þetta var sárast fyrir þann sem ég hafði átt að kærasta nokkrum mánuðum áður. Þá kom þessi spurning: Voru þá tilfinningar þínar til mín bara blekking? En við fórum saman í gegnum sársaukann og erum nánir vinir í dag. Átök og klofningur Átökin færðust svo á stærri vettvang því að nú gerðum við ungliðarnir þá kröfu til Samtakanna ’78 að þau nefndu tvíkynhneigða í undirheiti félagsins. Málið bar nokkuð brátt að og við skiptumst í tvær fylkingar. Ég fékk að heyra það að verið væri að útvatna tilgang og markmið félagsins með þessari tillögu. Sjálfum fannst mér óskiljanlegt að hópur sem barðist svo hart fyrir réttinum til að staðfesta sig hvar sem væri sem samkynhneigðar manneskjur gæti haft svona harða afstöðu gegn tvíkynhneigðum. Það var mikil reiði í loftinu en minna um gagnleg skoðanaskipti og svo fór að tillaga ungliðanna um það að nefna tvíkynhneigða í heiti félagsins var felld á aðalfundi 1993. Ég sé ennþá þennan fund í móðu, ég var svo reiður, fannst ég hafa verið svikinn af hópi sem ég hélt að stæði með mér. Við þetta klufum við okkur út úr félaginu, ungliðarnir, og stofnuðum Félagið, félag samkynhneigðra og tvíkynhneigðra. Þetta var erfiður róður en við störfuðum þó í nokkur misseri og þar var ég formaður fyrsta árið. Félagið var til húsa við Lindargötu, á efri hæð hússins sem hýsti ÁTVR og er nú horfið. Beint á móti stóð hús Samtakanna ’78 og það var lítið talast við yfir götuna næsta árið. En svo sameinuðumst við um kröfugöngu sumarið 1994 og þá um haustið minnir mig að flest í hópnum hafi aftur verið komin á vettvang Samtakanna ’78. Ertu ekki eins og þeytispjald? Á þessum árum mæddi mikið á Sigurbirni, hann var skýrasti og skeleggasti málsvari tvíkynhneigðra í íslensku samfélagi, rólegur og rökfastur svo eftir var tekið. Við hann Hans alter ego – Fríða Johansen. Íslenskur þokki – Fegurðarsamkeppni á Moulin Rouge 1991. Ungfrú Snæfells- og Hnappadalssýsla er fimmta frá hægri. 54 55

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.