Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 12

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 12
takk takk tikki takk takk tikki takk takk vér skáld megum ekki missa gætur og vald á tímanum vér elskendur sem enn enn og aftur smölum fuglum enn og aftur funandi fuglum inn í réttu reitina enn og aftur beint á eyðublað vér skáld leigusálir sem enn og aftur brennimerkjum loftið takk takk tikki takk tikki ta a akk tikki takk tikki ta a akk ég er klukka því ég geri tilboð í ást ég geri tilboð í ást ég geri smátt og smátt fleiri tilboð í meiri ást ég er í þessu vændi því ég er skáld með rólu á milli læranna ég er hóra sem syngur dýrt meðan tíminn sveiflast áfram og tifar tregt úr munni mér takk takk tikki takk takk tikki takk takk tikki takk takk Elías Knörr (Elías Portela) Elías er skáld og þýðandi, fæddur í Galisíu. Árið 2010 kom út á íslensku ljóðabók hans Sjóarinn með morgunhestana undir kjólnum en á galisísku hefur hann birt ljóðabækurnar Imaxes na pel og Cos peitos desenchufados. Elías yrkir á ýmsum tungumálum og ljóð hans hafa birst í ljóðasöfnum bæði á Íslandi og erlendis. Elías hefur verið virkur í reykvísku bókmenntalífi síðustu árin og tekið þátt í og staðið fyrir hinsegin ljóðaviðburðum. Söngleikur um tíma og skáld Hinsegin bókmenntir og upplestur Björk Þorgrímsdóttir Björk Þorgrímsdóttir er reykvískt skáld. Hennar fyrsta bók, Bananasól, kom út árið 2013 hjá forlaginu Tunglið og í byrjun þessa árs kom út hennar fyrsta ljóðabók, Neindarkennd, hjá Meðgönguljóðum. Auk þess hefur hún fengist við dagskrárgerð og birt sögur og ljóð í safnbókum og tímaritum. Sigurður Örn Guðbjörnsson Sigurður er fæddur árið 1966, mannfræðingur, bókavörður og skáld. Hann hefur birt greinar og ljóð í bókum og tímaritum. fiskar sem elskast í hljóði gutlandi öldur undir djúpum tifa æðar berir silkifingur inni í mér eitthvað brestur augun falla saman flóðgáttir opnast úr munninum streymir foss tungur fléttast klófesta tunglin og vegirnir koma í ljós leggjast varlega að fótum okkar tunglskinið í augnbotnum og ást mín gleypir ljósgeisla við hvern andardrátt opnaði honum leið út úr bókinni burt frá þessum tollerandi konum gat aldrei um frjálst höfuð strokið gættu þín á strákunum, gættu þín á strákunum, þuldu þær og köstuðu honum upp í loft þó var hann hræddastur við þær opnaði honum leið og um kvöldið spiluðum við othello á beddanum áður en við sofnuðum þegar ég rumskaði um nóttina opnaði ég augun og horfði á eftir honum hverfa inn í aðra bók Eva Rún Snorradóttir Eva Rún starfar sem sviðslistakona með framandverkaflokknum Kviss búmm bang og sviðslistahópnum 16 elskendum. Hún gaf á síðasta ári út ljóðabókina Heimsendir fylgir þér alla ævi. Hún býr með konu sinni og bróður sínum í Vesturbæ Reykjavíkur. Fjallahneigð Prúð, stillt, mjúk og góð ólst ég upp, umvafin blokkum sem földu ykkur vandlega, kyrfilega. Það var ekki talað um ykkur nema í fornum sögum. Menn fóru upp á ykkur. Konur úr öðrum víddum ráfuðu um ykkur í litríkum kjólum, þreifandi á grösugum lendunum. Grjót rennur niður mjúkar hlíðar ykkar. Vindar leika um sællega toppana. Rakir moldarhólar bíða snertingar. Og ég, siðspillt tröllskessa uppfull af skömm, lít undan lokkandi ásjón ykkar á ferðum mínum um þjóðveginn, læt á engu bera. Hinsegin ljóð Dagskrárrit Hinsegin daga er ein helsta heimildin um íslenska hinsegin menningu en blaðið kom fyrst út árið 2002. Í ár fékk ritstjórn fjögur skáld til að semja frumsamin ljóð fyrir ritið og eru þau hér birt í fyrsta sinn. Einu tilmælin sem skáldin fengu voru að ljóðin þyrftu að takast á við hinsegin veruleika, sem og þema blaðsins í ár: „ögrun“. Upplestur Föstudaginn 8. ágúst verður boðið upp á ljóða- og bókmenntaupplestur þar sem hinsegin skáld og aðrir velunnarar lesa úr verkum sínum. Upplesturinn fer fram á Loft Hosteli, Bankastræti 7, 4. hæð og hefst stundvíslega klukkan 17:00. Fram koma meðal annars Jónína Leósdóttir, Sjón, Björk Þorgrímsdóttir, Sigurður Örn Guðbjörnsson, Eva Rún Snorradóttir og Elías Knörr. Að lestri loknum verður opnað fyrir spurningar og samtöl milli skáldanna og áhorfenda. Loft Hostel býður upp á hamingjustund (Happy hour) frá kl. 16:00 til kl. 20:00. Queer literature – Reading Guest of Reykjavik Pride can meet local queer writers and poets on Friday 8 August at Loft Hostel, Bankastræti 7, 4th. floor. The event will begin at 5 p.m. and is open to everyone. Happy hour at Loft Hostel is on between 4 p.m. and 8 p.m. Please note that the event will be in Icelandic. 22 23

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.