Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 11

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 11
Í gleðigöngu Hinsegin daga staðfestir hinsegin fólk tilveru sína, sýnileika og gleði. Þar sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, transfólk og intersex fólk í einum hópi ásamt fjölskyldum sínum og vinum. Gleðigangan er hápunktur og stolt hátíðarinnar. Hinsegin dagar skipuleggja hana og ráða alfarið hvaða atriði fá aðgang að henni. Gangan er engu að síður sprottin úr grasrótinni og það eru einstaklingar og hópar sem móta og setja saman einstök atriði hennar. Gangan hefst, eins og undanfarin ár, á Vatnsmýrarvegi (rétt hjá BSÍ) þar sem henni er stillt upp. Gengið er eftir Vatnsmýrarvegi, inn á Gömlu-Hringbraut, eftir Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi og Lækjargötu og framhjá Arnarhóli þar sem útitónleikarnir eru haldnir. Það er algjörlega óheimilt að auglýsa fyrirtæki eða þjónustu í göngunni án samráðs við stjórn Hinsegin daga. Athugið Gleðigangan Pride Parade að allar ósamþykktar auglýsingar á bílum og fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer af stað. Brot á þessum reglum getur leitt til þess að atriði verði hafnað eða vísað úr göngunni. Leikstjórn og hvatningarverðlaun Hinsegin dagar leggja áherslu á að hvert atriði sem tekur þátt í göngunni miðli skilaboðum sem varða veruleika hinsegin fólks á einn eða annan hátt og vandi til verka við skreytingar vagna og búninga. Skilaboðin geta verið með óteljandi móti og þar skiptir hugkvæmni þátttakenda miklu máli. Bestu atriðin kosta oftar en ekki litla peninga. Í fyrra var besta atriðið heiðrað eftir hátíðina með hvatningarverðlaunum og fjárstyrk og sama hætti verður haldið í ár. Hinsegin dagar bjóða aðstoð leikstjóra sem gefa góð ráð til göngufólks. Ræðið hugmyndir ykkar við ráðgjafa okkar og þau benda á leiðir sem kosta lítið en setja flottan svip á atriðin ykkar. Sendið póst til Hinsegin daga í tæka tíð (pride@ reykjavikpride.com) og við aðstoðum ykkur við að komast í samband við leikstjóra sem hafa langa reynslu af götuleikhúsi og uppákomum af öllu tagi. Skráning og þátttaka Þátttakendur sem ætla að vera með atriði í gleðigöngunni verða að sækja um það til Hinsegin daga eigi síðar en föstudaginn 1. ágúst. Nauðsynlegt er að skrá atriði með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað sem finna má á vefsíðunni reykjavikpride.com. Nánari upplýsingar veita göngustjórarnir Ásta, Helga, Setta og Steina en hægt er að senda þeim póst á gongustjori@gmail.com. Athugið að ekki er hægt að veita fólki með atriði aðgang að göngunni nema rafræna umsóknin hafi verið fyllt út og send og skilmálar samþykktir. Would you like to participate? Viltu vera með atriði? Öllum er velkomið að ganga í göngunni en Hinsegin dagar leggja áherslu á að þeir sem vilja taka þátt í göngunni án þess að vera með sérstakt atriði fylgi henni alla leið frá Vatnsmýrarvegi. Aðrir eru vinsamlega beðnir um að bíða með að slást í hópinn þar til síðasti vagninn hefur farið framhjá. Uppstilling Byrjað verður að raða göngunni upp á Vatnsmýrarvegi, ofan við Læknagarð, kl. 12 laugardaginn 9. ágúst. Þeir þátttakendur sem eru með atriði verða skilyrðislaust að mæta á þeim tíma til að fá sitt númer og fara í röð. Gangan leggur stundvíslega af stað kl. 14 og bíður ekki eftir neinum. Göngustyrkir Hinsegin dagar veita minni háttar fjárstyrki til gönguatriða. Umsóknir um þá skulu berast Gunnlaugi Braga Björnssyni, fjármálastjóra hátíðarinnar, um leið og sótt er um þátttöku. Netfang hans er gjaldkeri@reykjavikpride.com. Styrkir eru einungis veittir gegn framvísun reikninga og skulu þeir hafa borist til Hinsegin daga (b.t. Gunnlaugs Braga Björnssonar), Laugavegi 3, 101 Reykjavík, fyrir 31. ágúst. Ekki er veittur styrkur til að fjármagna leigu á farartækjum eða eldsneyti. Gæði atriðanna skipta hér máli en dómnefnd starfar á göngudaginn og metur bestu atriðin. Hinsegin dagar áskilja sér rétt til að samþykkja eða hafna öllum beiðnum um styrki í samræmi við fjárhag hátíðarinnar. Göngu- og öryggisstjórar: (f.v.) Steina Rún Daníelsdóttir, Eva Jóhannsdóttir, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Helga Kristjana Bjarnadóttir og Sesselja María Mortensen. Groups that wish to participate in the parade must apply to Reykjavik Pride before 1 August by filling out a form which can be found on the website, www.reykjavikpride.com. For any further information about the parade, please contact the parade managers Ásta, Helga, Setta and Steina by e-mail, gongustjori@ gmail.com. The parade leaves from Vatnsmýrarvegur, close to the Bus Terminal BSI, and ends in front of the concert stage at Arnarhóll, city center. All participants are asked to show up at the starting point at 12 p.m. on Saturday, 9 August. The parade starts at 2 p.m. sharp. Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir steggir og fjaðralausar gæsir eru ekki velkomin í gleðigöngu Hinsegin daga. Finnið ykkur vinsamlegast annan vettvang fyrir steggja- og gæsapartí dagsins. Við göngum í þágu mannréttinda og mannvirðingar, ekki niðurlægingar! Trans-Ísland hlaut hvatningar- verðlaun fyrir atriði sitt í göngunni árið 2013 20 21

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.